Það er brekka hjá okkar mönnum 

"Stuðningsmenn Blika klóra sér í hausnum eftir þennan leik. Hvað er það sem gerist hjá liðinu hvað eftir annað í sumar? Liðið virðist slökkva á sér og fær á sig mark eftir mark. Svo mætir allt annað Blikalið inn á völlinn eftir leikhlé eða í næsta leik. Er virkilega of mikið að biðja um smá stöðugleika? Næsti leikur verður hreinn mælikvarði á þetta. Þá mæta Blikar Stjörnumönnum á Eikarvellinum á mánudagskvöld kl. 19:15. Mikið hefur gengið á í herbúðum Stjörnunnar í sumar og má búast við þeim dýrvitlausum í þennan leik. Þá reynir á karakterinn í Blikaliðinu. Valli Guðjóns mætir örugglega – en hvað með okkur hin, bæði leikmenn og áhorfendur? Ætlum við að mæta? Það kemur í ljós á mánudaginn." skrifar pistlahöfundur eftir leik Breiðabliks og Fram á mánudaginn var. 

Þessi kaflaskipti í leikjum, og jafnvel innan hálfleikja, eru með ólíkindum. Hvað er eiginlega í gangi? Liðið hefur náð aðeins einu stigi af tólf mögulegum í síðustu fjórum leikjum. Það hlýtur að vera búið að greina hvað er að! Nú þarf bara að endurræsa, stilla sig í gírinn og mæta tilbúinn í þessa átta leiki sem eftir eru í deild og bikar frá næstu mánaðamótum fram í lok október - einn leik í einu!

Staðan í deildinni

Það munar sex stigum á liðunum í deildinni. Breiðablik er í 4. sæti með 30 stig eftir 20 umferðir. Stjarnan er í 7. sæti með 24 stig eftir 20 umferðir.

Sagan & Tölfræði

Innbyrðis mótsleikir

Innbyrðis mótsleikir Breiðabliks og Stjörnunnar eru 79. Blikar leiða með 38 sigra gegn 27 - jafntefli eru 14.

Efsta deild

Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 46. Staðan er okkar mönnum í vil með 25 sigra gegn 11 - jafnteflin eru 10. Skoruð mörk í þessum 42 leikjum er: Breiðablik 94 mörk, Stjarnan 65 mörk. Samtals 159 mörk. 

Efsta deild í Kópavogi

Leikir liðanna í efstu deild í Kópavogi eru 24. Blikar leiða með 15 sigra gegn 5 - jafnteflin eru 4.

Síðustu 5 heimsóknir Stjörnunnar í Kópavoginn í heðbundnu 22. leikja móti:

S
Breiðablik
2 1
Stjarnan
A-deild 3. umferð Kópavogsvöllur 23.04.2025
72
1
16
S
Breiðablik
2 1
Stjarnan
A-deild 7. umferð Kópavogsvöllur 21.05.2024
42
1
15
J
Breiðablik
1 1
Stjarnan
A-deild 14. umferð Kópavogsvöllur 29.07.2023
1
12
S
Breiðablik
3 2
Stjarnan
A-deild 5. umferð Kópavogsvöllur 11.05.2022
40
1
15
S
Breiðablik
4 0
Stjarnan
A-deild 5. umferð 21.05.2021
50
1
23

Leikmenn

Uppalinn Bliki, Guðmundur Kristjánsson, leikur með Stjörnunni. Guðmundur spilaði 136 mótsleiki og skoraði 36 mörk með Breiðabliki á árunum 2006-2012 og var sterkur póstur í Bikarmeistaraliði Breiðabliks 2009 og Íslandsmeistaraliðinu 2010. Varnarmaður Stjörnunnar, Sindri Þór Ingimarsson, er uppalinn Bliki. Og Blikinn Benedikt V. Warén leikur nú með Stjörnunni, en hann á  31 mótsleik og 5 mörk með Blikum á árunum 2019 til 2022.

Okkar maður Kristófer Ingi Kristinsson er uppalinn hjá Stjörnunni en hélt mjög ungur út í atvinnumennsku og náði þ.a.l. aðeins einum mótsleik með Stjörnuliðinu. Óli Valur Ómarsson, fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar, kom til Breiðabliks fyrir keppnistímabilið frá sænska félaginu Sirius og skrifaði undir 4 ára samning við Breiðablik til ársins 2028. Í þjálfarateymi Breiðabliks eru einn fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar. Haraldur Björnsson markmannsþjálfari með 138 leiki fyrir Stjörnuna á árunum 2017-2022.

Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.

Meistaraflokkur 2026

Dagskrá

Flautað verður til leiks á Eikarvellinum í Kópavogi kl.19:15 á mánudagskvöld. 

Græna stofan verður að sjálfsögðu opin.

Nú þurfum við Blika í stúkuna! Mætum í grænu, tökum fjölskyldu og vini með og búum til frábæra stemningu á Eikarvellinum. Strákarnir okkar þurfa á stuðningnum að halda og við ætlum að láta vel í okkur heyra!

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

/PÓÁ

Svipmyndir frá heimsókn Stjörnumanna í Kópavoginn í 3. umferð í lok apríl í fyrra: