NÆSTI LEIKUR
FRAM - BREIÐABLIK
ÚRSLITAKEPPNI - EFRI HLUTI
ÞRIÐJUDAG - 19:15
LAMBHAGAVÖLLURINN
Strákarnir okkar létu ekki hrakspár fjölmiðla og sjálfskipaðra sérfræðinga hafa áhrif á sig og lönduðu bikarmeistaratitlinum fyrir árið 2026! Það voru þeir Höskuldur Gunnlaugsson og Kristófer Ingi Kristinsson sem settu mörkin tvö sem tryggðu okkur 2:1 sigur á gömlu UMSK-félögum okkar úr Aftureldingu.
"Það hefur gustað hressilega um strákaliðið okkar undanfarnar vikur og höfðu þeir gengið um dimman dal í aðdraganda þessa leiks. Fyrir viku síðan höfðu fáir trú á því að Blikaliðið gæti rifið sig upp eftir slakt gengi í síðustu leikjum. En með mikilli vinnu strákanna okkar á æfingum og góðri markaðssetningu hjá forystumönnum Breiðabliks fór landið að rísa. Miðasalan tók að glæðast Blikamegin á miðvikudag og fimmtudag þrátt fyrir massíva auglýsingaherferð fyrirtækja í Mosó. Blikastrákarnir grilluðu ofan í stuðningsmenn sína og áskorun fyrirliðans Höskuldar Gunnlaugssonar til áhangenda Blika hitti greinilega í mark. Grænklæddir Kópavogsbúar fjölmenntu í Laugardalinn og trofylltu Þróttaraheimilið fyrir leikinn." Nánari umfjöllun um Bikarleikinn hér.
Fyrsti bikartitill Blika vannst árið 2009, gegn sterku liði Fram — sem eru einmitt fyrstu andstæðingar okkar í efri hluta úrslitakeppni Bestu deildar karla keppnistímabilið 2026.
Staðan fyrir fyrstu umferð af fimm í efri hluta Bestu deildar karla 2026
Sagan & Tölfræði
Efsta deild
Allir innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 63. Fram hefur þar yfirhöndina með 29 sigra gegn 17 - 17 leikir hafa endað með jafntefli..
Besta deild 2026
Fram hefur sigrað báðum innbyrðis leikjum liðanna á í Bestu deildinni á þessu ári í miklum markaleikjum. Markaskorun er 8:6 þar sem Fram vinnur báða leikina 4:3.
"Súrnar í augum í Úlfarsárdal" skrifar pistlahöfundur blikasíðunnar eftir fyrri leik liðanna í sumar.
Eftir síðari leikinn á Kópavogsvelli er fyrirsögn pistlahöfundar "Hvar er Valli"
Efsta Deild - Úrslitakeppni
Liðin hafa einu sinni áður mæst í úrslitakeppninni
Bikarmeistarahópur Breiðabliks 2026
Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.
Dagskrá
Miðasala á leikinn er á Stubb.
Flautað verður til leiks á Lambhagavellinum á þriðjudag kl.19:15!
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
/PÓÁ
Klippur frá leik liðanna í úrslitakeppninni á Kópavogsvelli í byrjun október í fyrra: