Það er komið að næsta leik okkar manna í Bestu deildinni. Um er að ræða leik við ÍBV. Flautað verður til leiks á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum kl.16:00 sunnudaginn.
Sagan & Tölfræði
Fyrsti leikur Breiðabliks og ÍBV var æfingaleikur sem leikinn var í Vestmannaeyjum sumarið 1958 þegar Breiðabliksliðið var að stíga sín fyrstu skref á knattspyrnuvellinum, en knattspyrnudeild Breiðabliks var stofnuð 1957.
Leikur ÍBV og Breiðabliks á sunnudaginn verður 106. mótsleikur liðanna frá fyrsta mótsleik árið 1960. Eyjamenn leiða með 44 sigra gegn 40 og jafnteflin eru 21. Til viðbótar þessum 105 leikjum eru margir óskráðir leikir liðanna í svonefndri Bæjarkeppni - keppni sem var leikin vor og haust í mörg ár í kjölfar eldgossins í Eyjum 1973, enda mikill vinskapur á milli Kópavogsbæjar og Vestmannaeyja.
Efsta deild
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild frá upphafi eru 66. Blikar leiða með 27 sigra gegn 22 - jafnteflin eru 17.
Efsta deild í Eyjum
Heilt yfir er ÍBV liðið er með yfirhöndina í Eyjum. Frá fyrsta leik liðanna í efstu deild árið 1971 leiða Eyjamenn með 13 sigra gegn 8 - jafnteflin er 12.
Frá 2006
Eftir endurkomu okkar manna upp í efstu deild árið 2006 hefur Breiðabliksliðið náð að jafna árangurinn við Eyjaliðið. Leikir liðanna í efstu deild í Eyjum frá 2006 eru 15 og allt frekar jafnt. Blikasigrar eru 4 gegn 3 og jafnteflin eru 8.
40% stigaárangur í síðustu 5 heimsóknum okkar manna til Eyja:
Breiðablikshópurinn 2026
Í leikmannahópi ÍBV liðsins er það Omar Sowe sem hefur spilað með Breiðabliki. Hann kom til Breiðabliks fyrir Íslandsmeistaraárið 2022 og spilaði 24 mótsleiki og skoraði 4 mörk með Blikum. Í Breiðablikshópnum er það Aron Bjarnason sem hefur leikið með Eyjaliðinu. Hann spilaði tvö keppnistímabil með Eyjapeyjum árin 2015 og 2016 en gekk svo til liðs við Breiðablik fyrir keppnistímabilið 2017.
Stuðningsmaðurinn
SpáBliki leiksins gegn ÍBV ólst upp hjá Breiðabliki, byrjaði að æfa í 7. flokki og Smárinn var hans annað heimili langt fram á fullorðinsár. Bestu minningarnar úr yngri flokkunum tengjast ferðunum, mótum úti á landi og erlendis, þar sem manni leið eins og maður væri á HM. Að fá að fara alla leið upp yngri flokkana og spila svo í meistaraflokki er forréttindi og skilur eftir sig ótal góðar stundir.
Það stendur upp úr að hafa tekið þátt í fyrstu Íslands- og bikarmeistaratitlum félagsins, en einnig evrópuleikirnir og ferðalögin sem fylgdu.
"Þetta textainngrip ritstjórnar blikar.is er frá í byrjun febrúar 2026 eftir að Finnur Orri ákvað að leggja skóna á hilluna. Blikinn og snillingurinn Finnur Orri Margeirsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Stuðningsmannavefurinn blikar.is kveður Finn Orra með einlægu þakklæti og óskar honum velfarnaðar í nýjum og spennandi verkefnum. Ferill með Blikum: Aðeins 16 ára gamall var Finnur Orri farinn að fá mínútur með meistaraflokki Breiðabliks í Lengjubikarnum árið 2008. Fyrsti mótsleikur hans var gegn Grindvíkingum í Reykjaneshöllinni í febrúar sama ár. Í júní 2008, þá nýorðinn 17 ára, var Finnur Orri orðinn byrjunarliðsmaður hjá Óla Kristjáns þjálfara. Hann varð síðar fyrirliði liðsins árið 2012. Finnur Orri er uppalinn Bliki og varð bikarmeistari með liðinu árið 2009 og Íslandsmeistari 2010. Hann lék með Blikaliðinu til loka keppnistímabilsins 2014. Um haustið hélt hann á önnur mið, en sneri aftur heim í Kópavoginn fyrir tímabilið 2021. Alls lék Finnur Orri 262 mótsleiki í grænu Breiðablikstreyjunni og skoraði 7 mörk."
Nú þegar skórnir eru komnir upp í hillu horfi ég á deildina með öðrum augum; mér finnst sérstaklega gaman þegar tímabilið er komið af stað og maður getur notið þess sem stuðningsmaður og áhorfandi.
Finnur Orri Margeirsson - Hvernig fer leikurinn?
Leikurinn á sunnudaginn verður spennandi, en það verður líka áskorun fyrir liðið að fylgja eftir góðri frammistöðu í síðasta leik. Sóknarleikur Breiðabliks var góður á móti Þór og það var taktur í spilinu sem beðið hafði verið eftir. Ég hef fulla trú á því að við byggjum ofan á þetta, höldum áfram að halda markinu hreinu og náum í úrslit. Miðað við gírinn sem Anton er í þessa dagana sýnist manni hann ekki ætla að hleypa neinu inn! Leikurinn fer 0–2 og okkar menn sækja sér þrjú öflug stig til Eyja.
Áfram Breiðablik!
Hjónin Finnur Orri og Indíana Nanna
Dagskrá
Flautað verður til leiks í Eyjum kl.16:00!
Miðasala á leikinn er á Stubb
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
/PÓÁ
Klippur Bestu deildarinnar frá leiknum í fyrra: