Getur áskriftarsæti Blika – 4. sætið – breyst í lokaumferðinni?
Blikar fara inn í lokaumferð Bestu deildarinnar um helgina í 4. sæti, sem hefur verið þeirra „áskriftarsæti“ undanfarnar vikur. Spurningin er hvort það geti breyst áður en deildin skiptist í efri og neðri hluta.
Hvað þarf til að tryggja 4. sætið?
-
Sigur á KA á sunnudaginn tryggir sætið algjörlega.
-
Jafntefli dugar í flestum tilfellum – nema Keflavík vinni stórsigur á Val og/eða ÍA vinni stórsigur á KR.
-
Blikar eru með +3 í markatölu fyrir umferðina, Keflavík og ÍA bæði með –4, þannig að sveiflan þyrfti að vera mjög stór til að ná Blikum.
-
Hvernig geta Blikar fallið niður um eitt eða tvö sæti?
Til þess þarf allt eftirfarandi að gerast:
-
KA vinnur Blika
-
Keflavík vinnur Val og fer þá upp fyrir Blika á stigum
-
ÍA vinnur KR og nær Blikum á stigum (30)
-
ÍA þyrfti jafnframt að ná 7 marka sveiflu til að fara upp fyrir á markatölu.
-
Staðan í deildinni þegar deildartímabilinu er að ljúka. Blikar í 4. sæti en KA í harðri botnbaráttu við ÍBV:
Sagan & Tölfræði
Keppnisleikir Breiðabliks og KA í öllum mótum eru 58 leikir. Vinningshlutfallið fellur með okkur: 38 sigrar gegn 12 - jafnteflin eru 8.
Efsta deild
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 32 leikir. Blikar hafa unnið 22 leik gegn 4 - jafnteflin eru 6.
Efsta deild á Akureyri
Á Akureyri eru leikirnir 16. Blikar með 10 sigra, 3 töp og 3 jafntefli.
Síðurstu 5 innbyrðist leikir liðanna í Bestu á Akureyri:
Hópurinn
Okkar maður Ívar Örn Árnason er fimmti leikjahæsti maður KA í efstu deild frá upphafi og var fyrirliði liðsins síðustu tímabil. Leikmaður KA, Danijel Dejan Djuric, er uppalinn Bliki. Og framkvæmdastjóri KA, Sævar Pétursson, er fyrrverandi leikmaður Blika með 119 mótsleiki og 23 mörk.
Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.
Dagskrá
Miðasala á leikinn er á Stubb.
Flautað verður til leiks á Greifavellinum á Akureyri kl.14:00 á sunnudaginn!
PÓÁ
Í síðustu heimsókn okkar mann til KA var það Aron Bjarnason kom boltanum í markið á þrettándu mínútu eftir flotta sókn í kjölfar stutts horns. Höskuldur komst í boltann inn í teig og náði að renna honum á Aron sem renndi honum mjög snyrtilega í markið.