Breiðabliksliðið heimsækir Óskar Hrafn Þorvaldsson og eldsprækt lið KR í Frostaskjólið á sunnudaginn kl. 18:00.
KR‑liðið er á fljúgandi siglingu og hefur unnið stórsigra í síðustu heimaleikjum. Í nýjustu viðureign á Meistaravöllum vann KR 5–0 sigur á Stjörnunni. Heimaleikurinn þar á undan endaði 5–2 gegn ÍBV. Fyrir það kom 5–3 sigur á ÍA og annar 5–3 sigur á KA í lok maí.
KR er því búið að slá met og skora 64 mörk í 18 leikjum (37 heima, 27 úti) og hefur unnið 12 leiki, gert 3 jafntefli og tapað 3. Einn af tapleikjunum var stórmerkileg viðureign þeirra gegn okkar á Kópavogsvelli 22. maí þar sem við skoruðum sex í 9 marka leik.
Hvað gerist á sunnudaginn er óskrifað blað. Það er ekki flókin spá að átta sig á því hvað heimaliðið mun reyna að gera — en stóra spurningin er hvernig okkar menn mæta til leiks. Í fyrri leiknum í sumar pressuðum við þá út um allan völl. Og eins og Óskar sagði eftir leik „Þetta er í fyrsta skipti í sumar sem við spilum á móti liði sem lagði sig meira fram en við..." Óli Skúla sagði „Jú jú, strákarnir voru bara tilbúnir frá fyrstu mínútu. Mér fannst við vera yfir í ákefð og návígum. Við kláruðum það mjög vel. Við vorum agressívir að fara aftur fyrir þá og völdum vel þar sem skapaði fullt af góðum tækifærum. Við nýttum þau ágætlega í dag, hefðum getað skorað fleiri.“
Stigatafla KSÍ talar sínu máli: KR er í 2. sæti með 39 stig eftir 18 leiki. Blikaliðið er í 4. sæti með 29 stig einnig eftir 18 leiki:
Sagan & Tölfræði
Jafntefli verður að teljast afar ólíkleg niðurstaða viðureign liðanna á Meistaravöllum á sunnudaginn. Á stuttum kafla frá 2013 til 2018 „afrekuðu“ liðin að gera sex jafntefli í röð. Öll voru það 1–1, nema leikurinn árið 2015, sem endaði 0–0 jafntefli.
En innbyrðis mótsleikir KR og Breiðabliks frá upphafi eru 107 leikir. KR leiðir með 50 sigra gegn 27 - jafnteflin eru 29. Fyrsti keppnisleikur liðanna var heimaleikur Blika í Bikarkeppni KSÍ 8. september 1964. Leikið var á Vallargerðisvelli í vesturbæ Kópavogs.
Efsta deild frá 1971
Í 82 leikjum liðanna í A-deild hefur KR yfirhöndina með 36 sigra gegn 21 sigri okkar manna - jafnteflin eru 24.
Í 40 leikjum liðanna í A-deild á heimavelli KR leiðir heimaliðið með 15 sigra gegn 10 - jafnteflin eru 15.
Frá endurkomu Breiðabliks upp í efstu deild árið 2006 leiðir KR með 16 sigra gegn 14 - jafnteflin eru 13.
Í 21 leik liðanna frá 2006 á heimavelli KR er hnífjafnt á öllum tölum. Bæði lið með 6 sigra – jafnteflin eru 9
Fínn árangur okkar manna í síðustu 5 heimsóknum í Frostaskjólið; 3 sigar, 1 jafntefli og 1 tap.
Hópurinn
Okkar leikmaður Kristinn Jónsson hefur spilað með Vesturbæjarliðinu.
Í núverandi leikmannahópi KR eru þeir Galdur Guðmundsson, sem kom til okkar í 4. flokki frá ÍBV og spilaði 13 meistarflokksleiki með Blikum árið 2022 og Jason Daði Svanþórsson en hann á 136 mótsleiki og 42 skorðuð mörk að baki með Blikaliðinu á árunum 2021-2024. Jason kom til Blika frá uppeldisfélaginu Aftureldingu þar sem hann spilaði 72 meistaraflokksleiki og skoraði 72 mörk á árunum 2017 til 2020. Eftir 2024 tímabilið var Jason Daður seldur til Englands. Frétt á blikar.is: Jason Daði til Englands
Og þjálfari KR, Óskar Hrafn Þorvaldsson, var hjá Breiðabliki í nokkur ár. Óskar tók við Breiðabliksliðinu fyrir keppnistímabilið 2020 og sinnir því starfi til loka Bestu deildarinnar árið 2023. Óskar skilar Breiðabliksliðinu í 4. sæti árið 2020 og er aðeins hársbreidd frá því að vinna Íslandsmeistaratitilinn árið 2021. Undir stjórn Óskars verður Breiðablik Íslandsmeistari með yfirburðum 2022, og árið 2023 nær Breiðabliksliðið þeim áfanga að verða fyrsta íslenska karlalið sem kemst í riðlakeppni á Evrópumóti UEFA.
Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.
Dagskrá
Miðasala á leikinn er á Stubb.
Flautað verður til leiks á Meistaravöllum á sunnudaginn kl.18:00!
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
/PÓÁ
Klippur frá fjörugum leik liðanna á Meistaravöllum í fyrra: