Komið að næsta leik sem verður erfiður leikur á útivelli gegn Þór á Akureyri á þriðjudaginn kl.18:30.

Vonandi lengja einhverjir fríið um Verslunarmannahelgina og mæta á nýjan og flottan gervigrasvöll Þórsara í Þorpinu.

Miðasala á leikinn er á Stubb. 

Staðan í deildinni eftir 16 umferðir

Sagan & Tölfræði

Innbyrðis keppnisleikir liðanna eru 47 frá fyrsta leik árið 1977. Blikar leiða með 30 sigra gegn 6, jafnteflin eru 11.

Leikir í A-deild eru 22 – sigurleikir Blika eru 11 gegn 3, jafnteflin eru 3.

Leikir í A-deild á heimavelli Þórs á Akureyri eru 11 - sigurleikir Blika eru 5 gegn 1, jafnteflin eru 5.

Nýliðar Þórs eru aftur komnir í efstu deild eftir fjarveru síðan 2014.

Síðustu þrjár innbyrðis viðureignir liðanna í efstu deild á Akureyri

T
Þór
2 0
Breiðablik
A-deild 21. umferð Þórsvöllur 28.09.2014
5
S
Þór
1 2
Breiðablik
A-deild 12. umferð Þórsvöllur 21.07.2013
8
11
S
Þór
1 2
Breiðablik
A-deild 21. umferð Þórsvöllur 25.09.2011
11
1

Hópurinn

Í leikannahópi heimaliðsins eru tveir leikmenn sem þekkja vel til í Kópavoginum. Ágúst Eðvald Hlynsson spilaði 55 mótsleiki með Blikum árin 2016 og 2023. Og Atli Sigurjónsson spilaði 49 mótsleiki árin 2015-2017. 

Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.

Leikmannahópur Breiðabliks 2026

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins gegn Þór er uppalinn Kópavogsbúi og Bliki frá unga aldri. Hann æfði knattspyrnu með Breiðablik sem krakki til 17 ára aldurs þegar hann hætti í fótboltanum og hóf að stunda frjálsar íþróttir með félaginu. Síðar tók hann upp þráðinn aftur og lék í nokkur ár með ÍK í þriðju deildinni. Blikinn ólst upp austast á Nýbýlaveginum en lét það ekki hindra sig í að mæta á æfingar á Vallagerðisvelli. "Mér telst til að vegalengdin frá æskuheimili mínu að Vallargerðisvellinum séu um 2 km. Til að komast á æfingar gekk ég, hjólaði eða tók strætó. Einstaka sinnum hafi pabbi tækifæri til að keyra mig". Lífið á þessum árum snérist mest um fótbolta. "Ef það voru ekki æfingar hjá Breiðablik þá vorum við í strákarnir í fótbolta á grasbletti skammt frá heimili mínu. Og við nutum velvildar Valda vallaverðar sem gerði við boltana okkar meðan við vorum á æfingum". SpáBlikinn lét sér ekki nægja að stunda æfingar á Vallargerðisvellinum heldur var hann einnig duglegur að sækja leiki meistaraflokks. Þá voru Guðmundur Þórðarson, Einar Þórhallsson, Þór Hreiðarsson, Magnús Steinþórsson og fleiri hetjurnar og fyrirmyndirnar. 

Þó svo að Blikinn hafi ekki verið duglegur að sækja leiki Blikanna undanfarin ár hefur hann alla tíð fylgst vel með liðinu gegnum fjölmiðlana. "Ég hefði gjarnan vilja sjá karlaliðið ná í fleiri titla gegnum tíðina miðað við það öfluga yngri flokka starf sem fram fer hjá félaginu. En það er með fótboltann eins og lífið. Boltinn er ekki alltaf sanngjarn og maður fær ekki allt sem maður vill".

Markús Einarsson  - Hvernig fer leikurinn?

Þetta verður hörkuleikur. Þórsararnir eru að berjast fyrir tilverurétti sínum í deildinni og Blikarnir mega ekki missa efstu liðin lengra frá sér. Það hefur verið tauga trekkjandi að fylgjast leikjum Blikanna í sumar og oft hafa þeir ekki náð að klára þá fyrr en rétt í lokin. Ég spái að Blikar vinni leikinn 3 - 2 og sigurmarkið komi í uppbótartíma. 

Áfram Breiðablik!

SpáBlikinn Markús Einarsson þegar fór holu í höggi á 16. holu á La Finka á Spáni

Dagskrá

Miðasala á leikinn er á Stubb. 

Flautað verður til leiks á VÍS vellinum á Akureyri þriðjudaginn 4. ágúst kl.18:30! 

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

/PÓÁ

Klippur frá leik liðanna í Kópavogi í lok apríl