Blika goðsögn kveðir boltann sem leikmaður
01.11.2024Grafík: Halldór Halldórsson
Þessi ánægjulegu tíðindi bárust úr Smáranum um daginn:
Arnór Sveinn Aðalsteinsson ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla https://t.co/4hKTN28ToW
— Blikar.is (@blikar_is) October 14, 2024
Ferillinn
Fyrsti mótsleikur Arnórs í meistaraflokki var bikarleikur gegn Njarðvík í júní 2003 - þá 17 ára gamall. Fyrsti deildaleikur Arnórs var gegn Fjölni á Kópavogsvelli í lok ágúst 2004.
Árið 2005 tekur Nóri þátt í 14 deildaleikjum, en árið 2005 var einmitt árið sem Blikaliðið vann sig upp um deild og hefur ekki litið til baka síðan.
Arnór Sveinn var eini leikmaðurinn í leikmannahópi Breiðabliks 2024 sem á að baki leiki með Blikaliðinu í næst efstu deild.
Arnór var einn af lykilmönnum í Bikarmeistaraliðinu 2009 og Íslandsmeistaraliðinu árið 2010. Hann hélt í atvinnumennsku til Noregs og lék þar með Hönefoss í Noregi í tvö ár frá 2011 til 2013. Í Noregi spilaði hann 55 leiki með Hönefoss og skoraði 1 mark.
Síðan kom hann til baka og spilaði með Blikum í nokkur ár áður en hann söðlaði um og fór til KR en þar átti hann 6 farsæl ár. Spilaði 142 leiki og skoraði 3 mörk með Vesturbæjarliðinu.
Arnór á að baki 12 A landsliðsleiki og 9 leiki með U21.
Arnór var fjölhæfur varnarmaður og gat spilað bæði sem bakvörður og sem miðvörður
Arnór Sveinn Aðalsteinsson er Íslandsmeistari með Breiðabliki árið 2024.
Framhaldið
Takk fyrir allt Arnór Sveinn Aðalsteinsson, þú ert einstakur. Um leið og við þökkum fyrir allt sem þú hefur gert þá hlakkar okkur til alls sem þú munt gera fyrir okkur sem þjálfari.
POA