T
ÍA
4 1
Breiðablik
A-deild 24. umferð - Efri hluti Akranesvöllur 20.09.2026
9
1
7

Fallegt veður á Skipaskaga
Gott veður var á hinum fallega Skipaskaga fyrir fótbolta. Tíu stiga hiti og nær logn. Fullt af áhorfendum. Völlurinn grænn og fagur. Blikar bikarmeistarar og komnir í Evrópu og því vonaði ég að stressið og pressan féllu af liðinu og það myndi sýna sjálfstraust og sitt rétta andlit. 

Það er alltaf frábært að koma á Skipaskaga að spila eða horfa á fótbolta. Faðir minn, Elías Snæland, var auðvitað Bliki í gegn eftir að hann flutti í Kópavog um tvítugt. Hins vegar hafði hann alltaf taugar til Skagans frá barnsaldri. Við vorum auðvitað (og erum) öll fótboltaóð fjölskyldan svo ég á margar góðar minningar af því þegar fjölskyldan fylgdist með gullaldarliði Skagamanna á tíunda áratugnum. Ef ekki var Blikaleikur þann dag keyrðum við oft á Skipaskaga eingöngu til að sjá fallegan og listrænan fótbolta. Því ber ég alltaf mikla virðingu fyrir knattspyrnugetu Skagamanna. Ég gerði mér grein fyrir því að Blikar þyrftu að mæta með fulla einbeitingu og mikla baráttu í þennan leik. 

Andlausir Blikar

Leikurinn byrjaði rólega hjá Blikum eins og oft áður í sumar. Skagamenn voru meira á tánum fyrstu mínúturnar. Á sjöttu mínútu náði Dagur Örn samt skoti á markið eftir góða sókn en það fór vel framhjá. Mikil stöðubarátta tók við og fátt var um fína drætti. Dagur Örn var samt sprækur og átti góða sendingu á kollinn á Þorleifi á 17. mínútu en boltinn fór vel yfir. 

Fótboltaheimspeki Blika þessa dagana virðist hins vegar, hvort sem það er lagt upp með það viljandi eða ekki, vera hið gamla enska “sparka og vona”. Áhersla á styttra spil og flottu þríhyrningana sem liðið gerði svo vel fyrir nokkrum árum hefur minnkað mikið. Ekki finnst mér það góð þróun en fótbolti er auðvitað alls konar. Á 20. mínútu tóku strákarnir samt upp gamla takta og gott spil. Davíð átti frábæra sendingu á Þorleif sem renndi boltanum á Anton Loga sem var í mjög góðu færi. Hann renndi boltanum rétt framhjá en sóknin var mjög vel útfærð. En það var ekki merki um það sem koma skyldi. Blikar voru alls ekki á tánum og áttu mjög fáar vel heppnaðar sendingar sín á milli.

Það var svo á 29. mínútu sem ónefndur fyrrum miðjumaður Breiðabliks skoraði fyrsta mark Skagamanna eftir að hann fékk góða sendingu frá Blikum. Blikar lentir undir eins og svo oft í sumar. Viðbrögðin voru engin hjá liðinu. Það verður að segjast að afgangurinn af hálfleiknum var arfaslakur hjá Breiðabliki. Voru varla með. Staðan varð svo 2-0 á 43. mínútu. Sanngjarnt. Það er rannsóknarefni hvernig svona góðir leikmenn geta aftur og aftur spilað eins og amatörar sem hafa aldrei hist áður. Sorglegt. Ekkert meira um þennan hálfleik að segja. 

Hræðilegur seinni hálfleikur

Viktor Karl kom inn á í byrjun seinni hálfleiks fyrir Gabríel Snæ og Höskuldur fyrir Hlyn Frey. Breytti engu. Breiðablik var ekki með. 3-0 á 52. mínútu. Mig langaði að hætta að horfa og keyra heim og leggjast bara í rúmið að gráta. En auðvitað veit maður að ef þessir Blikar fara loks í gang og ná að sýna hvað þeir geta, þá gætu alveg dottið inn fullt af mörkum á stuttum tíma. Einnig var ég búinn að lofa að skrifa um leikinn. Svo ég hélt áfram að horfa. 

Blikar hresstust aðeins í nokkrar mínútur. Davíð átti ágæt skot á 53. mínútu og 59. mínútu. En samt. Það var áfram alltof mikið af lélegum sendingum og skrítnum ákvörðunum og ljóst að sjálfstraust leikmanna situr í botnfreðinni mýri í djúpum dal. Á 64. mínútu komu svo inn Jónatan og Birkir Þorsteinsson, sem fæddur er 2009, fyrir Kidda Jóns og Dag Örn. 

Aftur breytti það litlu. Skagamenn bættu við fjórða markinu á 68. mínútu. Mjög sanngjarnt. Blikar voru einfaldlega ekki með í þessum leik. Bjartur Orri Jónsson, einnig 2009 módel, kom inn á í lokin. Við lok venjulegs leiktíma skoraði reyndar Birkir Þorsteinsson frábært mark með skalla eftir fullkomna sendingu frá Þorleifi Úlfarssyni. Við skulum fylgjast vel með honum í framtíðinni. En hræðilegur leikur hjá Breiðabliki. 4-1. 

Frábært lið Breiðabliks Íslandsmeistarar í fimmta flokki

Á jákvæðari nótum þá varð Breiðablik í dag Íslandsmeistari í fimmta flokki karla eftir hörkubaráttu einmitt gegn Skagamönnum. Leikið var á Eikarvellinum og Blikar unnu Skagamenn 2-1 með tveimur mörkum frá Ingva Þór Kristinssyni. Blikar voru mjög agaðir og skipulagðir og börðust eins og ljón undir dyggri stjórn þjálfara sinna Reynis Magnússonar og Bjarna Harðarssonar. Stúkan var vel setin. Framtíðin er björt og græn þótt dalurinn hjá meistaraflokki virðist djúpur akkúrat núna. 

Úlfar Harri.