21. Breiðablik Open golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 19. júní n.k. og hefst kl.11:00.

Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir. Uppselt hefur verið í mótið undanfarin ár og eru kylfingar því hvattir til að skrá sig tímanlega.

Ræst verður samtímis af öllum teigum.(Mæting í skála kl. 10:00)
Leikinn verður höggleikur og punktakeppni í karla- og kvennaflokki og verðlaun verða sem hér segir;

   - Höggleikur - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.

   - Punktakeppni - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.

   - Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.

   - Verðlaun - fyrir lengsta teighögg karla og kvenna (á braut).

   - Dregið úr skorkortum.

Hámarksforgjöf er 24 í karlaflokki og 30 í kvennaflokki.

Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði strax að móti loknu.

Þátttökugjald er 10.330 og er málsverður innifalinn ( Pizza hlaðborð )

Tekið er á móti skráningum á netfanginu: olibjoss(hja)gmail.com

Í póstinum þarf að koma fram nafn þátttakanda ásamt aðildarnúmeri hjá golfklúbbi, símanúmeri og/eða netfangi.

Óskir um holl þurfa að berast tímanlega og í síðasta lagi fyrir 15.júní. Eftir það raðar mótsstjórn í holl og er sú röðun endanleg.

- Keppendur fá sendan hlekk til að skrá skor í mótakerfi GSÍ/Golfboxi.

Mótið er öllum opið og sem fyrr lofum við góðri skemmtun og ákjósanlegu veðri.

Áfram Breiðablik !

Myndir frá vel heppnuðu Blikar Open í fyrra: