BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Daniel Obbekjær til Færeyja

29.06.2025 image

Varnarmaðurinn Daniel Obbekjær hefur fengið félagaskipti yfir í NSÍ Runavík í Færeyjum.

Daniel gekk til liðs við Breiðablik í mars á síðasta ári og var hluti af Íslandsmeistaraliði Breiðabliks árið 2024.

Við þökkum Daniel kærlega fyrir sitt framlag og óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Ferill

Í apríl 2019 skrifar Daniel - þá 16 ára gamall - undir samning við OB og verðu hluti af aðalliðshópnum. Í lok mánaðarins fékk Daniel frumraun sína í efstu deild þegar hann kom inn á fyrir OB í leik gegn F.C. Kaupmannahöfn og varð með því þriðji yngsti leikmaðurinn til að spila fyrir OB í efstu efstu deild, þá 17 ára og 94 daga gamall.

Í janúar 2020 fór 17 ára Daniel á reynslu til Brighton & Hove Albion.

Í janúar 2021 gekk Daniel til liðs við SPAL á Ítalíu á láni út tímabilið það ár. Í júlí sama ár fór hann á reynslu til Hobro IK.

Í janúar 2022 gerði Daniel tveggja ára samning við kanadíska úrvalsdeildarliðið York United. Í júní sama ár gengur Daniel svo til liðs við 07 Vestur í Færeyjum.

Október 2023. Eftir góðan tíma í Vestur, þar sem hann varð fyrirliði liðsins og valinn í lið ársins í Færeyjum yfirgaf Daniel færeyska félagið þegar samningur hans rann út í lok október 2023 og skrifaði undir samning við Breiðblik sem gildir út árið 2025.

image

Daniel gekk til liðs við Breiðablik í mars á síðasta ári og var hluti af Íslandsmeistaraliði Breiðabliks árið 2024.

Til baka