Dýrmæt reynsla fyrir unga Blika
08.02.2026
Ungir Blikar lutu í gras 3:0 fyrir Fylki í fyrsta leik Breiðabliks í Lengjubikarnum í ár. Ólafur Ingi og þjálfarateymi hans tefldi fram bráðefnilegu liði gegn fílelfdum Árbæingum.
Allir leikmenn Blikaliðsins voru á 2. flokks aldri og stóðu sig mjög vel í leiknum. Blikaliðið var betra framanafleiknum en gaf frekar ódýr mörk seinni partinn í fyrri hálfleiknum. Leikurinn var síðan í járnum í síðari hálfleik en heimamenn bættu við þriðja markinu í blálokin.
Þrátt fyrir þessi úrslit geta ungu Blikastrákarnir borið höfuðið hátt. Liðið spilaði hraðan og skemmtilegan bolta og reyndi að halda boltanum innan liðsins.Þessi leikur fer í reynslubankann hjá þessum strákum og er alveg ljóst að margir þessara leikmanna munu verða í lykilhlutverki í Blikaliðinu í framtíðinni. Einnig er ljóst að einhverjir þessara stráka munu reyna fyrir sér í atvinnumennsku á komandi misserum. Framtíðin er því björt hjá okkur Blikum!
-AP