T
Breiðablik
1 3
Valur
A-deild 18. umferð Eikarvöllurinn 09.08.2026
15
1
7

Það var brakandi blíða og sól skein í heiði þegar undirritaður söðlaði hjólhestinn og rann skeiðið niður á Kópavogsvöll sem nú hefur verið nefndur Eikarvöllur af til þess bærum aðilum. Um þá athöfn er það eitt að segja að verra gat það verið. Eikarvöllurinn er fínt. Hiti um 14°C, létt gola af breytilegri átt og fór dvínandi þegar á leið leikinn. Sólfar. Blikar léku í sínum fagur grænu búningum að venju en andstæðingarnir sem að þessu sinni voru Valsmenn í  dökkum búningum.

Blikar byrjuðu frísklega og pressuðu Valsmenn hátt á vellinum og voru þokkalega ákafir í pressunni um allan völl þegar gestirnir lögðust í löngu boltana. Fyrir vikið voru okkar menn talsvert með knöttinn og einkum fyrstu 20 mínúturnar en ekkert reyndu þeir á markvöð gestanna og hugmyndin um að skjóta á markið virtist víðs fjarri, eins og stundum áður. Of oft reyndar. En þá skipti um í leiknum. Gestirnir náðu sinni fyrstu alvöru sókn og létu það verða sitt fyrsta verk að lúðra boltanum á markið og Anton mátti hafa sig allan við að bjarga. Af þessu hefðu okkar menn getað lært hið fornkveðna að það eru meiri líkur á marki ef maður reynir að setj´ann. Næstu mínútur var þetta fram og til baka og liðin áttu horn á víxl en næsta skot á mark kom frá gestunum og enn þurfti Anton að taka á honum stóra sínum. Hálftími liðinn og Blikar enn ekki farnir að láta reyna á markvörð gestanna. Nokkru mínútum síðar kom mjög flott sókn hjá okkar mönnum þar sem boltinn gekk hratt með fáum snertingum hvers og eins og endaði reyndar með 1. skoti okkar manna á markið en það var varið. ,,Jæja þetta er í áttina“ varð einum sessunaut að orði við þessar sjaldséðu trakteringar, en Adam var ekki lengi í Paradís. Örskömmu síðar sóttu gestirnir upp hægri vænginn og það virtist sannast sagna lítil hætta, en þegar síst skyldi rann varnarmaður okkar á rassinn. Sóknarmaður gestanna þakkaði pent fyrir, óð inn að markteigshorni og lét vaða í nærhornið uppi, án þess Anton kæmi við vörnum. Herfilegur varnarleikur og Blikar lentir undir. Ekkert sérlega óvænt enda gestirnir mun hættulegri í sínum sóknum. Það sem eftir lifði hálfleiks gerðist lítið og raunar ekkert sem fer í sögubækurnar.

Það var kökuhlaðborð í hálfleikskaffinu og auðvitað hefði það smakkast betur ef staðan hefði verið önnur. En við fengum okkur samt bita. Menn alveg rasandi með varnarleikinn í markinu og skort á skotum og alvöru tilraunum hjá okkar mönnum. Valsmenn alltaf hættulegir í sínum sóknum.

Síðari hálfleikur var ekki gamall þegar Blikar komust í góða stöðu eftir horn en skotið beint á markmann Vals. Skömmu síðar fengu gestirnir álitlegt færi, en skalli af stuttu færi fór naumlega framhjá okkar marki. Strax í kjölfarið áttu okkar menn góða sókn sem lauk með því að Kristófer átti flotta sendingu inn á Davið sem þrumaði boltanum í hornið fjær, óverjandi fyrir markvörð gestanna. 1-1 og kættust nú Blikar heldur.

 

Blikar skiptu skömmu síðar Jónatan og Þorleifi inn fyrir Dag og Kristófer, sem var nú í byrjunarliði eftir langt hlé. Blikar þjörmuðu vel að gestunum næstu mínútur en inn vildi boltinn ekki, þrátt fyrir ágætar tilraunir. Skömmu síðar skiptu Valsmenn Patrick Pedersen útaf og var það mikill léttir því sá danski hefur oft reynst okkur þungur í skauti svo ekki sé meira sagt. Var það mál manna að heldur vænkaðist nú hagur Strympu.
Skömmu síðar skiptu Blikar svo Kristni Steindórs inn fyrir Höskuld sem var nú aftur kominn í byrjunarliðið eftir þrálát meiðsli. Vonandi förum við að fá fleiri úr meiðslum, ekki veitir af.
En 5 mínútum síðar náðu gestirnir aftur forystunni, mest fyrir andvara leysi okkar manna sem gáfu þeim allt of mikið pláss eftir að hafa herjað duglega á þá. Valsmenn náðu nokkrum sóknum í beit og því lauk með marki á silfurfati þegar þeir fengu nægan tíma til að dóla með boltann við okkar teig og senda svo yfir á fjærstöng þar sem einn Valsari var ódekkaður og skallaði í stöng og inn að því okkur sýndist. Herfilegur varnarleikur hjá liðinu þarna.
Blikar reyndu að jafna og töldu sig eiga að fá víti þegar fyrirgjöf sýndist lenda í útréttri hönd varnarmanns gestanna en ekkert dæmt. Grindvíkingurinn knái Helgi Jónas, styrktarþjálfari Blika, ekki par ánægður með starfsmenn leiksins og lét það í ljós og uppskar rautt spjald. Helgi var reyndar alveg oní þessu atviki þar sem hann var að stjórna upphitun varamanna Blika. Kristinn Jóns og Arnar Bjarki komu inn fyrir Gabríel og Davíð en skömmu síðar fengu okkar menn svo rothöggið. Valsmenn negldu boltanum fram völlinn og skyndilega voru Valsmenn komnir tveir á móti einum þar sem Ásgeir Helgi lá á vellinum eftir að hafa lent illa eftir skallaeinvígi. Til að gera langa sögu stuttu þá skoruðu Valsmenn þar sitt 3ja mark og gerðu endanlega út um leikinn. Þó enn væru 5 mínútur ti leiksloka var allur vindur úr okkar mönnum og gestirnir reyndar líklegri til að bæta við 4. markinu
En þeim vannst ekki tími til þess og að loknum 93 mínútum flautaði dómarinn til leiksloka.

Þetta var gallsúr niðurstaða en það er varla hægt að segja að þetta hafi verið ósanngjarnt. Blikar voru einfaldlega ekki nógu góðir í kvöld. Byrjuðu þennan leik ágætlega en nýttu það ekki til að herja almennilega á Valsmenn sem aftur á móti voru ávallt hættulegir og skilvirkir í sínum sóknaraðgerðum.
Síðari hálfleikur var að vísu skárri en sá fyrri að því leytinu að við áttum fleiri marktilraunir en að öðru leyti er sóknarleikurinn ekki nægilega markviss og sem dæmi má nefna að fyrirgjafir sem rötuðu á samherja voru teljandi á fingrum annarrar handar. Virkar mjög tilviljanakennt og betu má ef duga skal. Varnarlega eru okkar menn að gefa allt of mörg ódýr mörk og 30 mörk fengin á okkur í 18 leikjum er bara allt of mikið.
Auglýst er eftir meiri eldmóði og bassa, en minni diskant.

Næsti leikur er úti gegn KR næsta sunnudag kl.18:00.
Við mætum þar og styðjum við bak okkar manna. Það er betra að þeir verði tilbúnir.


Áfram Breiðablik!

OWK.