Ellert Hreinsson með nýjan samning
22.05.2015Þau ánægjulegu tíðindi voru að berast að Ellert Hreinsson hafi skrifað undir nýjan 2 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.
Ellert sem verður 29 ára á þessu ári lék sinn lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2003 og hefur í allt spilað 134 leiki með meistaraflokki Breiðabliks og skorað í þeim 36 mörk. Ellert á að baki 73 leiki með Stjörnunni og 11 leiki með Víking Ólafsvík.
Ellert er geysilega öflugur framherji og flestir knattspyrnuspekingar telja að Ellert eigi enn eftir að raða inn mörkum í sumar enda hefur Ellert sjaldan verið í eins góðu formi eins og núna.
Það þarf vart að taka fram hve þessi áfangi er mikilvægur fyrir Blikaliðið enda Ellert geysilega öflugur framherji sem gefur alltaf 100% í alla leiki.
Blikar.is fagnar þessum tíðindum og vonar að þetta verði upphafið að nýjum bikarkafla í sögu Blikaliðsins