J
Víkingur
1 1
Breiðablik
A-deild 1. umferð Víkingsvöllur 10.04.2026
1
20

Við Blikar höfum staðið í ströngu síðustu daga, undirritaður er kominn í framboð til stjórnar Visku og heimasíða okkar Blika var að fá glæsilega andlitslyftingu. Bravó Gylfi Steinn, Pétur Ómar og co. Síðan er sú besta á landinu eins og var ítrekað sungið á pöllunum í gær og greint frá í Dr. Football. Hrikalega vel gert og kom á hárréttum tíma í loftið, rétt fyrir upphafsspyrnu Bestu deildarinnar 2026.

Eins og síðustu ár höfum við verið í eldlínunni í fyrsta leik mótsins. Nú heimsóttum við Víkina til að leika við firnasterka Víkinga. Spekúlantar helstu fjölmiðla og hlaðvarpa voru búnir að spá þessum liðum efstu tveimur sætunum. Undantekningarlaust vorum við Blikar settir í 2. sætið en Víkingar í það fyrsta og voru af öllum sérfræðingum sagðir vera með langsterkasta liðið. Ef fótbolti væri spilaður á pappír eða í excel skjölum þá ætti þetta Víkingslið að vinna deildina með utanfótar vinstri. En fótbolti hefur aldrei verið spilaður á pappír…

Breiðablik var með upphitunarpartý í Smáranum fyrir leik en sá sem þetta ritar ákvað fremur að setjast á rökstóla gárunganna í gini ljónsins í Marklandinu, þó í vernduðu umhverfi þar sem húsráðandi Breki Barkarson er gallharður Bliki. Saman eigum við glæstar minningar upp árganga Breiðabliks og síðar í meistaraflokki Augnabliks, hver veit nema við leiðum hesta okkar á ný í Smára í sumar. Ákveðið var að mæta snemma í Víkina þar sem veðrið var gott og við vildum fá góð sæti. Það kom skemmtilega á óvart hvað mikill fjöldi var mættur á völlinn um 30 mínútum fyrir leik og við fengum ekkert sæti heldur stóðum á pöllunum.

Við stilltum óvænt upp í 5 manna vörn, sem ég hafði reyndar giskað á í færslu á X. Anton var í markinu, svo stóðu Valgeir, Ásgeir Helgi, Viktor Örn, Ívar Örn og Davíð vaktina í vörninni. Með Andra Yeoman og Höskuld á miðjunni og Óla Val, Kristófer Inga og Ágúst Orra í framlínunni. Eftir að hafa séð liðið og uppstillinguna fengum við gárungarnir góða tilfinningu fyrir leiknum. Svo sáum við myndaseríu á Instagram af leikmönnum og Ólafi Inga mæta í Víkina og það sást strax á þeim myndum að menn væru svalir, einbeittir og hungraðir.

Svo hófst veislan. Víkingar ógnuðu strax með hættulegum fyrirgjöfum frá þeirra hægri kanti en við stóðum vaktina. Strax á fimmtu mínútu vann Höskuldur návígi gegn Gylfa Sigurðssyni og kom boltanum á Ágúst Orra sem gerði áhlaup á vörn Víkinga og renndi boltanum fyrir og refurinn Kristófer Ingi var mættur á fjær og setti boltann í netið. 0-1 þið getið ekki neitt! Gott að fá þessa tvo menn á blað með mark og stoðsendingu, þeir verða mikilvægir fyrir liðið í sumar.

Leikurinn var svo í járnum, Víkingar voru meira með boltann í fyrri hálfleik en við Blikar vorum harðir og unnum návígin á miðjunni trekk í trekk og fórum hratt í sóknir. Nikolaj Hansen fékk dauðafæri um miðbik fyrri hálfleiksins en skaut framhjá en það kom upp úr föstu leikatriði.

Við leiddum í hálfleik 1-0 gárungarnir veltu því fyrir sér hvort sætið hans Sölva væri strax farið að hitna.

Áfram var leikurinn í járnum en manni leið aldrei illa með 1-0 forystu þó það sé viðkvæm staða að leiða. Við vorum áfram að vinna návígin á miðjunni og Víkingar fengu fá færi, að sama skapi fórum við að þreytast er Víkingar byrjuðu að rúlla á hópnum sínum.

Á 70. mínútu jöfnuðu Víkingar eftir mistök hjá Antoni Ara sem kom út úr markinu og hitti boltann illa sem endaði hjá Gylfa Sigurðssyni sem tók við boltanum og setti hann auðveldlega yfir vörnina og í autt markið. Pirrandi því Anton var búinn að vera frábær í leiknum enda er hann besti markvörðurinn í deildinni og að sama skapi var Gylfi búinn að vera skugginn af sjálfum sér.

Okkar leikmenn voru farnir að þreytast verulega þegar við gerðum fyrstu skiptinguna á 83. mínútu þegar Valgeir, Andri Yeoman og Kristófer markaskorari fóru útaf og inn komu Viktor Karl, Arnór Gauti og Kristinn Steindórsson. Á þessum tímapunkti voru Víkingar byrjaðir að setja pressu á okkur og við komumst lítið úr skotgröfunum. Leikurinn fjaraði svo út en Víkingar vildu hendi víti á Ásgeir Helga í blálokin en við sáum ekkert úr stúkunni.

Lokastöður leiksins 1-1. Sterkt stig á erfiðasta útivelli deildarinnar þar sem öll útilið eiga að tapa miðað við styrk leikmannahóps Víkinga og orðræðu fjölmiðla. Við komum varnarsinnaðir inn í þennan leik og maður sá fljótlega eftir jöfnunarmakið að við vorum sáttir með að fá stigið.

Mér fannst orkan og baráttugleði okkar manna til fyrirmyndar og gefur góð fyrirheit fyrir tímabilið sem ég held að verði gott fótboltasumar. Kannski ég gerist djarfur og spái titlinum í Kópavoginn, því Víkingar vinna deildina kannski á pappír en fótbolti er spilaður í raunheimum.

Freyr Snorrason