Golfmót Breiðabliks 2024 - UPPSELT!
30.07.2024
19. Breiðablik Open golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 23. ágúst n.k. og hefst kl.13:00.
Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir og má reikna með að uppselt verði í mótið eins og undanfarin ár.
Ræst verður af af öllum teigum.(Mæting í skála 12:15)
Leikinn verður höggleikur og punktakeppni í karla- og kvennaflokki og verðlaun verða sem hér segir;
- Höggleikur - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
- Punktakeppni - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
- Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.
- Verðlaun - fyrir lengsta teighögg karla og kvenna (á braut).
- Dregið úr skorkortum.
Hámarksforgjöf er 24 í karlaflokki og 30 í kvennaflokki.
Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði, strax að móti loknu.
Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði, strax að móti loknu.
Þátttökugjald er 7.900 og er málsverður innifalinn ( Pizza hlaðborð )
FULLBÓKAÐ er í mótið en tekið er á móti skráningum á biðlista á netfanginu: olibjoss(hja)gmail.com
Í póstinum þarf að koma fram nafn þátttakanda ásamt aðildarnúmeri hjá golfklúbbi, símanúmeri og/eða netfangi.
- Óskir um holl þurfa að berast tímanlega og í síðasta lagi fyrir 19.ágúst. Eftir það raðar mótsstjórn í holl og er sú röðun endanleg.
- Keppendur fá sendan hlekk til að skrá skor í mótakerfi GSÍ/Golfboxi.
Mótið er öllum opið og sem fyrr lofum við góðri skemmtun og ákjósanlegu veðri.
Áfram Breiðablik !
