GUÐJÓNS-FRÆÐI ÞÓRÐARSONAR
31.05.2025


GUÐJÓNS-FRÆÐI ÞÓRÐARSONAR
Þann 29. maí, á uppstigningardag, heimsóttu Skagamenn Blika á Kópavogsvöll. Hiti ellefu gráður, skýjað með köflum. Viktor Karl leiddi sína menn út á völlinn í fjarveru Höskuldar sem var í banni. Þjálfari ÍA var einnig í banni. Staða liðanna fyrir leik var ólík. Blikar við toppinn. Skagamenn á botninum.
Brellnir og bröndóttir
Knattspyrna er í eðli sínu einföld íþrótt – ellefu skrokkar á móti ellefu skrokkum, eins og Skagagoðsögnin Guðjón Þórðarson sagði eitt sinn. Með öðrum orðum: þegar til kastanna kemur skiptir staðan á töflunni engu. En hann sagði reyndar líka: „Fótboltinn er síbreytilegur og það eina sem þú veist er að þú veist ekki neitt.“ Sem er kannski eins og hann lýsti kórónaveirunni á sínum tíma: „Þetta er brellin veira og bröndótt, það er erfitt að eiga við hana.“ Þessa greiningu hefði verið hægt að heimfæra upp á Skagamenn í dag. Þeir voru bæði brellnir og bröndóttir og erfiðir viðureignar.
Blikar hófu leikinn hins vegar af miklum krafti, svo miklum að það var eins og þeir væru manni fleiri en þá var það af því að Ágúst Orri hitaði upp frá fimmtu mínútu við endalínuna. Skýringin á því kom síðar.
Ef þú tekur ekki færin
Viktor Karl átti skot sem var varið í horn eftir átta mínútur. Það hefðu kannski átt að kvikna einhver viðvörunarljós þegar Arnór Gauti var kominn með gult eftir þrettán mínútur en það gleymdist fljótt því að litlu síðar átti Kristófer hörkuskalla í slánna og niður. Og skallaði boltann svo í kjölfarið framhjá. Það var sem sagt allt að gerast hjá okkar mönnum, lítil hætta í teig Blika en eins og Guðjón Þórðarson sagði eitt sinn svo eftirminnilega: „Ef þú tekur ekki færin þín, ef þú klárar þau ekki og misstígur þig svo hinum megin, þá endar þetta með ósköpum.“
Og nú dundu ósköpin yfir.
Eftir 28 mínútur tóku gestirnir langt innkast og skoruðu upp úr því af stuttu færi. Staðan orðin 0-1. Mínúturnar á undan höfðu fjölmargir áhorfendur í stúkunni veitt því eftirtekt að Óli Valur, sem hafði ógnað með hraða sínum og krafti, gerði það á annarri löppinni. Eftir hálftíma leik kom Ágúst Orri inn á fyrir hann. Litlu síðar fengu Skagamenn hornspyrnu á stórhættulegum stað og aftur lá boltinn í netinu. Staðan orðin 0-2 og brúnin farin að þyngjast á gestum í stúkunni. Þó var engin örvænting því að okkar menn spiluðu ágætlega og á 35. mínútu var Ágúst Orri felldur inni í teig en ekkert var dæmt. Tíðindamaður Blikar.is hafði þegar samband við VAR-herbergið sem var að þessu sinni staðsett í hjólhýsi austur á Flúðum. Var þetta ekki víti? Svarið var mjög skýrt: „Ekki viss. Held ekki.“
Þáskildagatíðin
Áfram hélt leikurinn og örfáum mínútum síðar komust Skagamenn upp að endamörkum og gáfu fyrir. Þar var að sjálfsögðu mættur leikmaður númer 9 sem mun eiga lögheimili á fjærstönginni og staðan orðin 0-3. Var þetta þá bara búið? Nei, ekki aldeilis því að mínútu síðar var Kristófer sparkaður niður í teignum hinum megin og Tobias skoraði af öryggi úr vítinu. 1-3.

Það var ekkert lát á fjörinu.
Við endalínuna í teig Blika var Valgeir sleginn fólskulega og lá óvígur eftir (um stund). Skagamaðurinn fékk gult en eftirfarandi skilaboð bárust óumbeðin úr VAR-hjólhýsinu á sömu mínútu: „Eins rautt og hægt er “. Það má auðvitað velta vöngum yfir því hvað mundi hafa gerst ef dómarinn hefði fengið orð í eyra á þessari stundu frá Flúðum en knattspyrna er víst ekki leikin í þáskildagatíð.
Þótt liði að lokum hálfleiksins var þetta ekki búið. Á 45. mínútu björguðu okkar menn á línu og sagði farand-VAR-herbergið að boltinn hefði verið inni – en endurskoðaði afstöðu sína í hálfleik. Dómurinn hefði verið hárréttur. Og til að kóróna fjörið var varið frá Tobiasi af markteig á lokamínútu hálfleiksins.
Dýrin í skóginum
Í hálfleik var um það rætt að mark okkar manna hefði gjörbreytt stöðunni. Það væri allt annað að vera 1-3 undir. „Ef það kom einhverjum á óvart að Skagamenn spiluðu fast – jafnvel gróft …“ byrjaði einn valinkunnur Bliki og annar botnaði: „þá hafa menn ekki lesið Íslandssöguna.“ Reyndar hefði dugað að gúgla „Óli Þórðar“ því að mjög framarlega kemur tilvitnun í hann: „Úti á vellinum eru þetta bara dýrin í skóginum.“ Hér skal fullyrt að hann var ekki að vísa í Dýrin í Hálsaskógi í því samhengi.
Halldór gerði aðra breytingu á liði sínu í hálfleik. Ásgeir Orrason fór út fyrir og Anton Loga. Það vakti athygli að hann var ekki með hanska og töldu menn það til marks um að nú skyldi látið sverfa til stáls. Leikurinn hófst með miklum látum því að Skagamenn sendu aftur á markmanninn eftir að hafa tekið miðju og mátti engu muna að furðulegasta sjálfsmark knattspyrnusögunnar liti dagsins ljós en boltinn fór naumlega í horn.
Anton Ari til bjargar
Þetta var þó enginn fyrirboði um það sem koma skyldi því að í upphafi hálfleiksins fengu gestirnir þrjú horn í röð. Tvö fyrri sköpuðu hættu og það þriðja stórhættu.
Áfram héldu Blikar samt að banka án þess að skapa teljandi hættu. Þó fengu þeir hornspyrnu á 59. mínútu en upp úr henni komust gestirnir aftur á móti í stórhættulega skyndisókn en Anton Ari bjargaði glæsilega. Og á næstu mínútum áttu Skagamenn nokkur afar álitleg færi án þess þó að skora.
Það sem þú átt skilið
Þegar 68 mínútur voru á klukkunni sneri Arnór Gauti Skagamann niður við miðlínu, fékk sitt seinna gula spjald og var sendur í sturtu. Ekki vænkaðist hagur okkar manna við það og á næstu mínútum fengu gestirnir nokkur Dauðafæri (með stórum staf) en af óskiljanlegum ástæðum var þeim fyrirmunað að hitta á markið. Undir lokin varði markmaður Skagamanna aukaspyrnu Tobiasar af vítateigsboga í horn og litlu seinna varði hann frá Antoni Loga. Leikurinn var þó ekki búinn því að á síðustu andartökunum komst Akurnesingur einn í gegn og skoraði fjórða markið.
Okkar menn áttu ekki góðan dag á þessum helga degi, þegar Jesús birtist lærisveinunum í síðasta sinn áður en hann fékk sér sæti við hægri hönd Guðs. Og svo aftur sé vitnað í Guðjón Þórðarson: „Það er ekki spurt að því hvort við fáum dauðafæri og eigum skot í stöng nokkrum sekúndum áður en þeir skora, það er ekki spurt að því. Þú færð það bara út úr fótboltaleik sem þú átt skilið.“
Samkvæmt Fotmob var meðaleinkunn Skagamanna 7,94 en hjá Blikum 6,17 og því miður verður að viðurkennast að Skagamenn voru miklu hættulegri á Kópavogsvelli.
Á sunnudaginn koma Víkingar í heimsókn í Smárann. Þá hljóta menn að gyrða sig í brók og mæta Fossvogspiltum af festu, jafnvel eins og dýr í skógi, og nýta vonandi færin – svo þetta endi ekki með ósköpum. Það getur að minnsta kosti allt gerst.
Eða svo vísað sé einu sinni enn í Guðjóns-fræði Þórðarsonar: „Þú veist aldrei hvað gerist í lífinu, það er fegurðin við lífið.“
PMÓ