Hlynur framlengir og lánaður til Njarðvíkur
03.03.2018Markvörðurinn snjalli, Hlynur Örn Hlöðversson, hefur verðið lánaður til nýliða Njarðvíkur í Inkasso-deildinn í sumar.
Fyrir stuttu framlengdi Hlynur samning sinn við Blikaliðið til ársins 2020.
Hlynur Örn, sem er fæddur árið 1996, spilaði á lánssamningi hjá Fram í 1. deildinni í fyrra og lék þar nánast alla leiki liðsins. Hann hefur einnig leikið með Tindastóli og Grindavík á láni. Hlynur á 11 unglingalandsleiki fyrir Íslands hönd.
Hlynur er stór og sterkur markvörður sem á framtíðina fyrir sér.
Við óskum Hlyn góðs gengis í Inkasso-deildinni í sumar.