T
Valur
3 2
Breiðablik
A-deild 7. umferð Hlíðarendi 17.05.2026
12
7

Það sem átti að vera kærkominn útisigur Breiðabliks gegn Val í sjöundu umferð Bestu deildarinnar breyttist í algjöra martröð á lokamínútunum. Kópavogsbúar sýndu ótrúlegt kæruleysi í lokin, köstuðu frá sér forystu og töpuðu að lokum 3-2 á Hlíðarenda. 

Leikurinn byrjaði fjörlega og staðan hefði hæglega getað verið tvö-eitt fyrir Breiðablik eftir fimmtán mínútur en þá var Anton Ari búinn að verja frábærlega og Ívar og Aron báðir búnir að eiga góð færi hinu megin. Byrjunin lofaði góðu. Fljótlega fór samt að fjara undan spili Blika. Í heild var frammistaða Blika í fyrri hálfleik fremur stirð. Inn á milli brá fyrir góðum sprettum en allt of sjaldan. Valur komst yfir eftir rúman stundarfjórðung, þar sem vörn Blika hreinlega fraus og var einfaldlega of sein að bregðast við góðri fyrirgjöf. Samt ekki svo góðri að hún hefði átt að sleppa í gegn. Staðreyndin samt 1-0 fyrir heimaliðið í hálfleik  

Blikar mættu svo loksins til leiks í seinni hálfleik. Tóku öll völd á vellinum. Ágúst Orri jafnaði metin á fimmtugustu og fimmtu mínútu með góðu marki úr þröngri stöðu eftir flotta sendingu frá Aroni Bjarnasyni.

Á sextugustu og fjórðu mínútu kom hinn ungi Arnar Bjarki Gunnleifsson inn á fyrir Kristófer Inga. Blikar héldu eftir þetta áfram boltanum og pressuðu stíft á Valsmenn. Var bara eitt lið á vellinum. Hefðu með smá heppni getað skorað fyrr en það var hins vegar ekki fyrr en á áttugustu mínútu að Aron átti frábært skot í markið upp við vinkilinn. Aron var búinn að hita upp fyrir þetta með nokkrum tilraunum yfir og það var þess virði því þarna smellhitti hann boltann. Breiðablik komið yfir og tíu mínútur eftir. Leit vel út. Tvö eitt fyrir Breiðablik og lítið eftir. 

Þessar síðustu tíu mínútur reyndust hins vegar hræðilegar. Í stað þess að loka leiknum fagmannlega hrundi hreinlega spilamennska Blika. Á áttugustu og fimmtu mínútu kom leikmaður Vals með langa kýlingu fram er ekki hefði átt að vera flókið að bregðast við. Hún hins vegar sigldi yfir vörn Blika á sóknarmann Vals sem jafnaði metin. Það var svo á lokamínútunni að Valur fékk hornspyrnu. Þar virtist lítil hætta á ferðum en hins vegar tókst leikmanni Breiðabliks að skora sjálfsmark. Gríðarleg óheppni. En samt ekki. Að fá á sig tvö jafn einföld mörk á lokamínútum eftir að hafa alveg stjórnað leiknum er bara ekki nógu gott. Ég verð að vera heiðarlegur. Ef varnarleikur liðsins verður svona áfram í sumar verða Blikar í botnbaráttu, ekki toppbaráttu. Þetta þarf að laga strax. 

Harri