BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Meistarakeppni KSÍ 2023: Breiðablik - Víkingur

01.04.2023 image

Í Meistarakeppni KSÍ mætast alla jafna Íslands- og bikarmeistarar fyrra árs, en sé sama félag í senn Íslandsmeistari og bikarmeistari skulu Íslandsmeistararnir leika gegn liði því sem varð í öðru sæti efstu deildar. Ef jafnt verður eftir venjulegan leiktíma er ekki framlengt, heldur farið beint í vítaspyrnukeppni til að ákvarða sigurvegara.

Víkingur hefur þrisvar unnið keppnina. Árið 1982 gegn ÍBV, 1983 gegn ÍA og 2022 gegn Blikum.

Breiðablik hefur þrisvar áður tekið þátt. Gegn FH árin 2010, 2011 og gegn Víkingum 2022. Leikurinn á þriðjudaginn verður því annar innbyrðis leikur liðanna í röð í Meistarakeppni KSÍ. 

Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.19:30!

Miðasala á stubbur app.

Leikurinn verður sýndur á RÚV fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.

Meistarkeppni KSÍ frá 1969

Leikið hefur verið um titilinn, sem að í daglegu tali er kallaður meistarar meistaranna, síðan 1969 fyrir utan árin 1999 - 2002 þar sem að ekki var leikið í keppninni. Valsmenn hafa oftast unnið keppnina eða 11 sinnum. 

Í lok ágúst 1969 fór fram á Laugardalsvelli sögulegur leikur Breiðabliks og Víkings um sæti í 1. deild. Víkingsliðið búið að vera í 2. deild frá 1964 og ætlaði sér aftur upp í deild þeirra bestu.

Blikamenn, á sínu ellefta keppnisári, komnir með fyrnasterkt lið og ætluðu sér upp í 1. deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. En Víkingar tryggðu sér sætið í 1. deild árið 1970 með 2:3 sigri í framlengdum leik. Unnu leikinn á vítspyrnudómi í framlengingu. Staðan var 2:2 eftir venjulegan leiktíma. 

Nánar um leikinn hér:

20.08 20:29
1969
Breiðablik
Víkingur
2:3
8
3
B-deild | Úrslitaleikur #1 um sæti
Laugardalsvöllur | #

Sigurvegari leiksins fór beint upp en tapliðið spilaði við neðsta lið 1. deildar um sæti í deildinni árið eftir.

Breiðabliksliðið fékk því annað tækifæri gegn ÍBA sem tryggði sér svo sætið í 1. deild 1970 eftir tvo sögulega leiki við okkar menn. Nánar hér.

Blikar unnu 2. deildina 1970 og léku í efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins árið 1971.

Sagan

Heilt yfir eru innbyrðis mótsleikir Breiðabliks og Víkinga 91 leikir. Nánast jafnt á öllum tölum - Blikasigrar eru 35 gegn 34 og jafnteflin eru 22.

Liðin eiga sér langa sögu. Víkingur er stofnað 1908. Breiðablik, stofnað 1950, sendir fyrst lið til keppni í knattspyrnu árið 1957. Spilað var í 2. deild: Þróttur R. Keflavík, Víkingur R, ÍBS og Breiðablik.

Breiðablik tapaði öllum 4 leikjunum 1957 - skoruðu 3 mörk en fengu á sig 23. Breiðablik sendi næst lið til keppni árið 1960 og hefur síðan tekið óslitið þátt í Íslandsmótum síðan.

Fyrsti mótsleikur okkar manna gegn gestaliðinu var árið 1957:

Frímann Helgson ritsjóri íþrótta hjá Þjóðviljanum skrifaði pistil um leikinn 1957 og fór nokkrum orðum um unga og reynslulitla leikmenn í liði Víkings sem ættu framtíðina fyrir sér. 

Um Kópavogsliðið skrifar blaðamaður: „Lið Kópavogs er sýnilega lítið æft og kann ekki mikið listum knattspyrnunnar, en þeir eiga mikinn kraft og flýsti, en það er ekki einhlítt, leiknin og skilningur á því hvað knattspyrna er, verður að vera með, annars fara menn í flýtinum framhjá knettinum og skilja hann eftir. Vafalaust geta þessir ungu Kópavogsmenn náð miklum árangri, en það kemur ekki nema með mikilli vinnu og elju. Í Kópavogi eru orðnir það margir íbúar að þar ætti að geta verið mjög gott lið þegar tímar líða og aðstaðan batnar“.

Leikurinn á þriðjudaginn

Leikur Breiðabliks og Víkings í Meistarakeppni KSÍ 2023 fer fram á Kópavogsvelli þriðjudagskvöldið 4. apríl.

Flautað verður til leiks kl. 19:30!

Miðasala á stubbur app.

RÚV sýnir leikinn fyrir þá sem ekki geta mætt á Kópavogsvöll.

Áfram Blikar - alltaf, alls staðar!

image

Smella á myndina til að sjá allt um lokaleikinn í Bestu 2022 - Breiðablik - Víkingur á Kópavogsvelli.

Til baka