BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Milos ekki áfram með Blika

03.10.2017
Knattspyrnudeild Breiðabliks og Milos Milojevic þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að samningur Milosar um þjálfun liðsins verður ekki endurnýjaður þegar hann rennur út núna í október. Milos tók við afar erfiðu verkefni þegar hann kom til starfa hjá Breiðabliki þegar keppnistímabilið var nýhafið.  Hann hefur unnið afar gott starf með leikmönnum félagsins og sinnt því af mikilli fagmennsku.  Knattspyrnudeildin vil þakka Milos Milojevic fyrir samstarfið og þá uppbyggingu sem hann leiddi hjá Breiðabliki á nýliðnu sumri. Við óskum honum og fjölskyldu hans alls hins besta í framtíðinni.
 
Fyrir hönd knattspyrnudeildar Breiðabliks,
Ólafur Hrafn Ólafsson
formaður stjórnar

Til baka