Þegar horft er til leiksins gegn Ægi í 8-liðs úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ er ekki hægt að líta fram hjá nafni sem lifir enn sterkt í minningu stuðningsmanna Breiðabliks. Stuðningsmönnum. Serbneski framherjinn Nenad Zivanovic kom til Breiðabliks árið 2006 og varð í kjölfarið einna af lykilmönnum Breiðabliksliðsins næstu árin á eftir. Nenad skoraði 25 mörk í 71 mótsleik á þremur tímabilum með Blikum og varð fljótt vinsæll meðal Blika.
En nú, rúmum áratug eftir að hann lagði skóna á hilluna mætir Nenad gamla félaginu sínu í 8‑liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ á heimavelli Ægismann í Þorlákshöfn.
En þegar flautað verður til leiks á föstudaginn verður engin rómantík í boði. Þetta eru 8‑liða úrslit, bikarleikur þar sem allt getur gerst, og bæði lið koma til með að mæta ákveðin til leiks.
Sagan & Tölfræði
Eini innbyrðis mótsleikur liðanna er þessi leikur í Lengjubikarnum á Sandgrasvellinum í Kópavogi árið 1997. Mörk Blika í leiknum skoruðu Kjartan Einarsson (2), Sævar Pétursson, Bjarki Pétursson og Ívar Sigurjónsson. Mark Ægis skoraði Björgvin Stefánsson.
Áfram Breiðablik!
-PÓÁ