Þá er komið að einum mikilvægasta leik okkar manna í sumar - undanúrslitaleikur í Mjólkurbikarnum gegn Reykjavíkur Víkingum á Kópavogsvelli á sunnudaginn kl.14:00!
Miðasala er á Stubbur app: Stubb
Mætum í grænu !!! Fyrir þá sem ekki eiga neitt grænt þá verður Blikaklúbburinn með sölu á Blikavarningi fyrir utan Kópavogsvöll. Þar verður hægt að kaupa húfur, trefla, peysur, flísteppi og annan varning í Blikalitunum!
Stutt er á milli heimsókna Víkinga á Kópavogsvöll. Aðeins örfáir dagar síðan við spiluðum við Fossvogsliðið í Bestu deildinni á Kópavogsvelli. Nánar um leikinn: Spyrjum að leikslokum!
Um leikinn á sunnudaginn
Þetta er ekki flókið - sigur okkar manna gegn Fossvogsliðinu á Kópavogsvelli á sunnudaginn tryggir okkar mönnum sæti í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli föstudaginn 11. september gegn Fylki eða Aftureldingu. Leikurinn á sunnudaginn verður erfiður. Víkingar eru með fyrna sterkt lið. Það sást vel í leiknum á Kópavogsvelli á fimmtudaginn var.
Sagan
Blikar hafa þrisvar leikið til úrslita í Bikarkeppni KSÍ: 1971, 2009, 2018 og unnið titilinn einu sinni - 2009.
Víkingar hafa sjö sinnum leikið til úrslita: 1967, 1971, 2019, 2021, 2022, 2023, 2024 og unnið fimm sinnum: 1971, 2019, 2021, 2022 og 2023.
27 undanúrslitaleikir
Bæði lið eiga að baki marga undanúrslitaleiki í Bikarkeppni KSÍ - Breiðablik 14 leikir og Víkingar 13 leikir, samtals 27 leikir - en aðeins einu sinni áður hafa lið mæst innbyrðis í undanúrslitaleik.
Breiðablik: 1971 Fram 1:0 / 1976 fyrri leikur Valur 0:0 seinni leikur Valur 0:3 / 1978 ÍA 0:1 / 1980 ÍBV 3:2 / 1983 ÍA 4:2 / 1998 ÍBV 2:0 / 1999 KR 3:0 / 2007 FH 3:1 / 2008 KR 1:1 (1:4 vító) / 2009 Keflavík 2:3 / 2013 Fram 2:1 / 2018 Víkingur Ó 2:2 (6:4 Vító). 2019 Víkingur R 1:3
Víkingur: 1967 ÍA 1:0 / 1971 ÍA 2:0 / 1974 fyrri leikur Valur 2:2 seinni leikur 2:1 / 1982 ÍA 1:2 / 1988 Valur 0:1 / 1990 Valur 2:0 / 2006 Keflavík 4:0 / 2014 Keflavík 0:0 (4:2 vító). 2019 Breiðablik 3:1 / 2021 Vestri 3:0 / 2023 KR 4:1 / 2024 Stjarnan 5:4 vító
Um bikarkeppni KSÍ
Bikarkeppnin var fyrst leikin á Íslandi árið 1960. Breiðablik hefur tekið þátt í bikarkeppni KSÍ óslitið frá upphafi keppninnar.
Breiðablik tekur fyrst þátt í knattspyrnumóti á vegum KSÍ árið 1957 - félagið sendir ekki lið til keppni í mótum árin 1958 og 1959 - órofin þátttaka Breiðabliks á knattspyrnumótum hefst því ekki fyrr en árið 1960.
Árið 1957 spilaði Breiðablik 4 mótsleiki í B-deildinni þar af einn leik gegn Víkingum – sem var jafnframt fyrsti innbyrðis keppnisleikur liðanna frá upphafi. Leikið var á Melavellinum 17. júlí.1957. Blikar töpuðu leiknum 6:2. Það var stíll yfir blaðaskrifum á þessum tíma. Tökum dæmi úr skrifum Þjóðviljans eftir leikinn 1957. Þar segir m.a. „Lið Kópavogs er sýnilega lítið æft og kann ekki mikið í listum knattspyrnunnar, en þeir eiga mikinn kraft og flýti en það er ekki einhlítt. Leikinn og skilningur á því hvað knattspyrna er, verður að vera með, annars fara menn í flýtinu fram hjá knettinum og skilja hann eftir. Vafalaust geta þessir ungu Kópavogsmenn náð miklum árangri en það kemur ekki nema með mikilli vinnu og elju“.
Fyrsti innbyrðis stórleikurinn
Fyrsti stórleikur Breiðabliks og Víkings var úrslitaleikur bikarkeppni KSÍ á Laugardalsvelli í september 1971 – Víkingar unnu leikinn 1:0. Breiðablik var með fantalið árið 1971. Leiðin í úrslitaleikinn gegn Víkingum var ekki auðveld. Blikar unnu lið Keflvíkinga 1:2, Val 2:1 og Fram 1:0 en töpuðu úrslitaleiknum gegn Víkingum 1:0. Árið 1971 er ekki síður merkilegt vegna þess að það ár spilaði Breiðablik í fyrsta sinn í efstu deild.
10 eða 12 bikarleikir?
Samkvæmt talningu blikar.is eiga liðin 12 leiki að baki í Bikarkeppni KSÍ, en skráning á vef KSÍ segir innbyrðis leiki liðanna vera 10. Mismunurinn liggur í því að KSÍ skráir ekki leiki B-liða Breiðabliks og Víkings í bikarkeppninni 1968 og 1969.
Þrjá leiki þurfti til að knýja fram úrslit í bikarrimmu liðanna árið 1962
1962 Leikur #1 - 2.8.1962: Fyrsti leikurinn var á Melavellinum, heimavelli Víkinga, en gefum blaðamanni Þjóðviljans orðið “…. leiknum lauk með jafntefli hvorugu liðinu tókst að skora mark, og með réttu lagi hefði átt að framlengja leiknum, þar sem um útsláttarkeppni er að ræða. En myrkur var skollið á og taldi dómarinn ekki ráðlegt að halda leiknum áfram, þessi lið verða því að keppa að nýju”.
1962 Leikur #2 - 29.8.1962: Annar leikurinn fór fram í Hafnarfirði - hlutlausum velli. Gefum blaðamanni Vísis orðið “Enn lauk leiknum með jafntefli og varð að hætta við svo búið, og verður að koma þriðja leiknum á til að fá úr því skorið hvort liðanna fær að halda áfram í keppninni. Víkingar skoruðu fyrsta markið í leiknum, en Kópavogspiltarnir jafna fljótlega og komast svo marki yfir. Í hálfleik var staðan 2.1 fyrir Breiðablik. Víkingar jöfnuðu í síðari hálfleik, en Breiðablik skorar 3:2 og Víkingur jöfnuðu aftur 3:3. Leikurinn var oft harður og glannalegur á báða bóga og undir lokin var harkan orðin svo mikil að engu munaði að upp úr syði”.
1962 Leikur #3 - 4.9.1962: Mjög lítið af upplýsingum er að finna um þriðja leik liðanna í rimmunni. Blikar vinna leikinn 3:0 og fara áfram í 2. umferð keppninnar og mæta þar liði Í.B.H (Íþróttabandalag Hafnarfjarðar). Breiðablik vinnur leikinn við Hafnfirðinga 4:5 á Hvaleyrarholtsvelli. Og aftur er skortur á flóðljósum að trufla. Hafnfirðingar höfðu í hyggju að kæra leikinn þar sem komið var næstum svarta myrkur í leikslok. Nokkur kurr var í Hafnfirðingum einkum vegna þess að leikið var með dökkum knetti í myrkri! Nánar> Blikar detta svo út í þriðju umferð eftir stórt tap gegn Keflavík í brjáluðu veðri á Framvellinum “og var það furðuleg sjón að sjá leikmennina kappklædda með slæður bundnar yfir höfuð og sokka á höndum til að halda hita á sér, línuverði með glasaþurrkur o.s.frv.” skrifar blaðamaður Vísis. Upphaflega átti leikurinn að fara fram á Melavellinum, en hann reyndist ekki í leikhæfu ástandi vegna polla.
Bikarkeppni 3 ár í röð 1967-1969
1967 – 2. umferð: Breiðabliksliðið tapar 3:2 í jöfnum og skemmtilegum leik. Víkingsliðið fór alla leið í keppninni árið 1967 en tapar í úrslitum fyrir KR 3:0. Nánar>
1968 – 3. umferð: B-lið. Víkingur R vinnur leikinn 4:0.
1969 – 3. umferð: B-lið. Víkingur R vinnur leikinn 4:1.
Fyrsti úrslitaleikur Blika - annar úrslitaleikur Víkinga
1971 – Úrslitaleikur: Fyrsti stórleikur liðanna var svo auðvitað úrslitaleikurinn í Bikarkeppni KSÍ á Laugardalsvelli í 9. september 1971 sem Víkingar unnu 1:0. Blikar voru með fantalið það ár - á fyrsta ár liðsins í efstu deild. Leið liðsins í úrslitaleikinn gegn Víkingum var ekki auðveld. Blikar unnu Keflvíkinga 1:2, Valsmenn 2:1 og lið Fram 1-0:
Þrír leikir í 8- og 16 liða úrslitum
1983 – 8-liða úrslit: Blikar slá Íslandsmeistara Víkings út í 8-liða úrslitum með glæsilegu sigurmarki Sigurðar Grétarssonar í byrjun seinni hálfleiks. Meira>
1991 – 16-liða úrslit: Blikar tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum með 2:0 sigri á Sandgrasvellinum í Kópavogi. Grétar Steindórsson skoraði strax á 8. mín og besti maður vallarins, Arnar Grétarsson, skoraði skemmtilegt mark eftir góða samvinnu við Rögnvald “Gogga” Rögnvaldsson. Meira>
2013 – 8-liða úrslit: 1:5 stórsigur á 1. deildarliði Víkings R á Víkingsvelli tryggði Blikum sæti í undanúrslitum Borgunarbikarsins árið 2013. Meira>
Fyrsti innbyrðis leikur í undanúrslitum
2019 - Undanúrslit: 3:1 tap gegn frískum Víkingum á þeirra heimavelli í Fossvoginum:
Dagskrá
Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á sunnudaginn kl.14:00!
Miðasala er á Stubbur app: Stubb
Hefðbundin árskort Blika gilda ekki á leiki í Mjólkurbikarnum.
Áfram Blikar! Alltaf, alls staðar!
/POA