Vonandi sjá sem flestir Blikar sér fært að mæta í Laugardalinn fyrir Herrakvöldið í Smáranum um kvöldið og hvetja Blikaliðið til sigurs. Leikurinn hefst klukkan 17:30 á miðvikudaginn á AVIS vellinum í Laugardal. Miðasala á Stubb.

Leið liðanna í 16-liða úrslit 2026

Þróttur lagði ÍBV 4:6 í Eyjum eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum. Skýrslan: Þróttur áfram í 16-liða úrslit eftir sigur í Eyjum.

Blikar unnu öruggan 1:6 sigur á liði Kormáks og Hvatar í 32-liða úrslitum á gervigrasvellinum á Sauðárkróki. Sannfærandi á Króknum!

Fyrsti keppnisleikur Breiðabliks var gegn Þrótti

Knattspyrnufélagið Þróttur í Reykjavík er fyrsti andstæðingur Breiðabliks í mótsleik í knattspyrnu frá upphafi. Bæði félög þá nýlega stofnuð - Þróttur í ágúst 1949 og knattspyrnudeild Breiðabliks stofnuð 1957. Leikurinn fór fram á gamla Melavellinum í Reykjavík:

Þetta var skrifað í blöðin eftir leikinn 7. júní 1957: „Í kvöld leikur nýtt utanbæjarlið hér sinn fyrsta leik, Ungmennafélagið Breiðablik í Kópavogi leikur gegn Þrótti í 2, deildarkeppninni og hefst leikurinn kl. 20,30“

"Þeir sem léku fyrir Kópavog í fyrsta leik félags þaðan í landsmóti i knattspyrnu eru:"

 Nánari umfjöllun.

Á þeim 70 árum sem liðin eru frá þessum fyrsta mótsleik Breiðabliks í knattspyrnu hafa liðin mæst 58 sinnum í opinberri keppni.  Niðurstaðan: Blikasigrar eru 26 gegn 22 - jafnteflin eru 10.

Innbyrðis bikarleikir

Innbyrðis bikarleikir Þróttar og Breiðabliks fá upphafi eru fjórir. Sá fyrsti 1960 og síðasti 2023:

S
Þróttur
0 3
Breiðablik
Bikarkeppni KSÍ 16-liða úrslit Þróttarvöllur 18.05.2023
10
T
Þróttur
3 1
Breiðablik
Bikarkeppni KSÍ 1. umferð Þróttarvöllur 27.05.1987
2
S
Þróttur
1 2
Breiðablik
Bikarkeppni KSÍ 16-liða úrslit Laugardalsvöllur 01.07.1980
5
T
Þróttur
2 0
Breiðablik
Bikarkeppni KSÍ 3. umferð Melavöllur 01.09.1968
2

Dagskrá & Herrakvöld Breiðabliks

Vonandi sjá sem flestir Blikar sér fært að mæta í Laugardalinn á miðvikudaginn og hvetja Blikaliðið til sigurs. Leikurinn hefst klukkan 17:30 á miðvikudaginn á AVIS vellinum í Laugardal.  Miðasala á leikinn á Stubb.

Herrakvöld Breiðabliks fer fram í Smáranum um kvöldið. Húsið opnar kl. 17:15. Boðið verður upp á nautalund og béarnaise með tilheyrandi meðlæti að hætti Blikanna Kristjáns Hlöðverssonar og Kristjáns Nóa. Veislustjóri kvöldsins er Rikki G, uppistand verður í höndum Sögu Garðars og Björns Braga. Leikur Breiðabliks gegn Þrótti R. á Þróttarvelli sem hefst kl. 17:30 verður sýndur í salnum en fyrir þá sem vilja byrja á vellinum verða rútusæti í boði Breiðabliks frá vellinum en mikilvægt er að skrá sig á hlekk í miðasölu hér. 

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

/PÓÁ

Mörkin þrú í bikarleiknum 2023: