Blikar unnu góðan sigur á Þrótti 1:2 í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni karla í Laugardalnum í gær. Blikar voru mun betri í leiknum og mörk frá Davíð Ingvarssyni og Kristóferi Inga tryggðu okkur áfram i 8-liða úrslit keppninnar. Þetta var heilsteypt frammistaða hjá strákunum okkar sem lofar góðu um framhaldið.
Eins og við mátti búast sóttu heimapiltar nokkuð á okkur í byrjun leiks. En vörnin okkar stóðst allar árásir þeirra rauðþverröndóttu og smám saman náðum við tökum á leiknum. Við gerðum nokkuð harða hríð að marki Þróttara en það var ekki fyrr en rétt fyrir leikhlé að Davíð Ingvars setti gullfallegt mark. Staðan var því nokkuð vænleg þegar liðinu gengu til búningsherbergjanna.
Síðari hálfleikur hófst nokkuð rólega en svo dundi ógæfan skyndilega yfir. Viktor Örn ætlaði að ræna knettinum af einum Þróttaranum en rann í bleytupolli og tæklaði manninn illilega. Dómarinn gat því ekki annað en sýnt miðverðinum hugumprúða rautt spjald. En sem betur fer hélt Blikaliðið ró sinni og hinn funheiti Kristófer Ingi tryggði sigurinn með góðu marki eftir frábæran undirbúning Ágústar Orra. Reyndar minnkuðu heimapiltar muninn nokkrum sekúndum fyrir leikslok en sigurinn var í raun aldrei í hættu.
Þessi sigur á eftir að gera mikið fyrir Blikaliðið. Liðið sýndi á köflum ágætis sóknartilþrif og vörnin var grjóthörð. Nú fer landið að rísa í deildinni líka og verður gaman að sjá til liðsins á Hlíðarenda á sunnudaginn.
Það ætla allir sannir Blikar að mæta!
Áfram Blikar- alltaf- alla leið!
AP