BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Sannfærandi á Króknum!

06.04.2026 image

Blikar unnu sannfærandi 1:6 sigur á sameiginlegu liði Kormáks og Hvatar í 32-úrslitum Mjólkurbikarsins í knattspyrnu í gær. Þar sem vellirnir á Hvammstanga og Blönduósi voru ekki tilbúnir svona snemma vors þá fór leikurinn fram á gervigrasvellinum á Sauðárkróki. Þar voru aðstæður ágætar og var slæðingur af fólki að fylgjast með leiknum. Þess má geta að Tindastóll og Hvöt hafa oft háð harða rimmu sín á milli á héraðsmótum í gegnum tíðina þannig að varla var hægt að segja að Blönduósingar og Hvammstangabúar væru á heimavelli!

Strax frá upphafi var ljóst að þetta var leikur kattarins að músinni. Blikar byrjuðu með hápressu og komust heimapiltar vart fram yfir miðju. Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson gaf tóninn strax á áttundu mínútu þegar hann setti knöttinn í netið eftir góða sendingu frá Óla Val. Kristófer Ingi setti síðan annað markið snyrtilega einnig eftir góðan undirbúning frá Óla Val. Þeir grænklæddu hægðu aðeins á tempóinu eftir þetta mark og heimamenn náðu aðeins að komast inn í leikinn. En staðan 0:2 þegar liðinu gengu til búningsherbergjanna.

Síðari hálfleikur byrjaði rólega en þegar Ágústi Orra var skipt inn eftir rúmlega tíu mínútur var eins og Blikaliðið fengi vítamínsprautu í rassinn!  Hraðinn jókst í leiknum á nýjan leik og þeir dökkklæddu vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Ágúst Orri spændi upp völlinn hvað eftir annað, setti tvo mörk og lagði upp tvö önnur á þá Kristófer Inga og Óla Val áður en yfir lauk. Heimaliðið getur prísaði sínum sæla að drengurinn spilaði ekki allan leikinn!

Þetta var góður og sannfærandi sigur. Liðið leit vel út og fletir leikmenn að verða tilbúnir í alvöru slaginn. En við megum ekki gleyma því að nokkrar deildir skilja liðin að þannig að Blikaliðið verður ekki dæmt af þessum eina leik. Sigurinn var hins vegar góður og við eigum að fagna því! Sérstaklega þegar horft er til sögunnar en við slógum einmitt Hvöt út úr bikarkeppninni árið 2009! Og allir sannir Blikar muna hvaða lið varð bikarmeistari árið 2009!

Alvaran tekur hins vegar við á föstudaginn þegar við förum í Víkina og mætum Íslandsmeisturunum. Það verður eitthvað!

-AP

Til baka