Sigur Blika á ÍBV 1:0 í Bestu deild karla minnti á baráttu rússnesku stórmeistaranna Karpov og Kasparov um heimsmeistaratitilinn í skák á árunum 1984-1990. Margar skákir í þessum einvígum einkenndust af mjög varfærinni uppbyggingu. Báðir aðilar börðust um miðjuna og þróuðu stöðuna áður en til skarar var látið skríða. Og það voru bara smávægilegir stöðuyfirburðir sem skópu sigurinn. Í leiknum í gær var það seigla Ágústar Orra sem gerði útslagið og gerði það að verkum að stigin þrjú urðu eftir í Kópavogi.
Eins og í of mörgum leikjum í sumar byrjuðu gestirnir mun betur. Fyrstu 15-20 mínúturnar áttu þeir sviðið en tókst samt ekki að skapa sér nein almennileg tækifæri. Ekki frekar en stórmeistararnir tveir í einu þeirra frægasta einvígi þeirra árið 1987 þegar Kasparov varð heimsmeistari með því að vinna síðustu skákina í einvíginu. Á margan hátt má segja að þjálfarar Blika hafi teflt Petrosjan kerfi í Kóngindverskri vörn þar sem hvítur (Blikaliðið) byggir upp mjög trausta stöðu áður en ráðist er til atlögu. Þessi taktík gekk upp því smám saman náðu heimapiltar betri tökum á stöðunni og sóttu nokkuð undir lok hálfleiksins. En hvorugu liðinu tókst að koma tuðrunni í markið.
Blikar komu með miklum krafti inn í síðari hálfleikinn líkt og Kasparov gerði í einvíginu við Karpov árið 1985. Þá mætti liðið fullt sjálfstraust og það skilaði sér í marki Ágústar Orra á 51.mínútu.
En ólíkt Kasparov þá lét Blikaliðið ekki kné fylgja kviði. Þess í stað féllum við of mikið aftur og Eyjamenn náðu frumkvæðinu á nýjan leik. En sem betur fer tókst gestunum ekki að skora þrátt fyrir 1-2 ágæt færi og því fögnuðum við vel í leiklok, bæði leikmenn, þjálfarateymið og áhorfendur. Staðan í einvíginu gegn ÍBV er því 2:0 fyrir okkur því við unnum einnig fyrri leikinn í Eyjum. Kasparov væri ánægður með Blikaliðið.
Ágúst Orri átti enn stórleikinn fyrir Blikaliðið. En einnig átti Hlynur Freyr Karlsson öflugan leik sem djúpur miðjumaður. Mikill happafengur fyrir Blikaliðið að fá hann til baka. Leikmaðurinn á bara eftir að verða enn betri þegar hann kemst í betra leikform. Einnig var ánægjulegt að sjá að meiðslalistinn er að styttast og voru bæði Kristinn Jóns og Óli Valur í byrjunarliðinu. Næsti leikur er á erfiðum útivelli gegn Þór á Akureyri á þriðjudaginn. Vonandi lengja einhverjir fríið um Versunarmannahelgina og mæta á nýjan og flottan gervigrasvöll Þórsara í Þorpinu.
-AP