J
Breiðablik
3 3
FH
A-deild 6. umferð Kópavogsvöllur 08.05.2026
11
1
8

Það var frekar þungt hljóð í stuðningsmönnum Blika eftir 3:3 jafntefli liðsins við FH í Bestu deild karla á Kópavogsvelli á föstudagskvöldið. Blikaliðið var mun betra í fyrri hálfleik og var komið með tveggja marka forskot þegar flautað var til leikhlés. En það var eins og slökkt væri á þeim grænklæddu í byrjun síðari hálfleiks og fengum við þrjú mörk á okkur á innan við 20 mínútna kafla. Sem betur náði fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson að jafna úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok. Segja má að við höfum sloppið fyrir horn þar og þar með er Blikaliðið enn taplaust í deildinni.

Töluverð stemmning var fyrir leik þar sem blásið var til Hleragrills á bílastæðinu fyrir utan Kópavogsvöll. Þar reyndu pólitísku flokkarnir í Kópavogi að heilla kjósendur með grillmeti og öðru gúmmelaði. Aðeins Borghildur og Halldór ásamt fjölskyldu mættu með almenna hlerastemmingu og voru það nokkur vonbrigði að ekki fleiri létu sjá sig. En veðrið var frekar kalt og það reyndist einnig hafa áhrif á mætingu á völlinn. Frekar fáir Hafnfirðingar mættu enda hefur gengi þeirra manna ekki verið beysið að undanförnu.

Blikar voru mun sterkari í fyrri háflleik en gestirnir áttu líka sín færi. En Ásgeir Helgi og Kristófer Ingi sáu til þess að við fórum með tveggja marka forystu inn í búningsklefana. Það var því þokklegt hljóðið í stuðningsmönnum Blika, bæði í Glersalnum og Blikaklúbbskaffinu. Menn gengu út frá því að þetta myndi þróast eins og síðustu leikir þ.e. að Blikaliðið væri ekki með neina flugeldasýningu en liðið myndi samt sigla sigrinum í öruga höfn.

En Adam var ekki lengi í Paradís í síðari hálfleik. Okkar piltar voru steinsofandi og FH liðið vann sig strax inn í leikinn. Eftir klaufaleg mistök á miðjunni og kæruleysislegan varnarleik var staðan allt í einu orðin 2:3 fyrir þá svarthvítu úr Hafnarfirði. Reyndar var vítaspyrnudómurinn sem dæmdur var á okkur mjög vafasamur en það þýðir ekki að deila við dómarann. Þjálfarateymið greip þá í taumana og henti 100 leikjamanninum Antoni Loga Lúðvíkssyni inn á. Miðjuspil Blikaliðsins lagaðist mikið við þetta og við náðum vopnum okkar á nýjan leik. Skömmu síðar fengum við dæma vítaspyrnu og Höskuldur setti knöttinn öruggleg í netið. Við gerðum harða hríð að marki gestanna undir lokin og á lokamínútum leiksins varði markvörður gestanna á ótrúlegan hátt frá Viktori Erni sem hafði komið inn á sem varamaður skömmu áður. Lokatölur voru því 3:3.

Þrátt fyrir þessi úrslit má ekki gleyma þeim merka áfanga sem Andri Rafn Yeoman náði í þessum leik en hann spilaði sinn 500. mótsleik fyrir Breiðablik! Þetta er ótrúlegur árangur og er fjallað meira um það á stuðningsmannavefnum okkar góða blikar.is.

En aftur að leiknum. Þrátt fyrir að vera taplausir í deildinni þá mætti vera meiri leikgleði og kraftur í Blikaliðinu. Uppspilið er hægt og við erum mikið að spila til hliðar og aftur í stað þess að sækja hratt fram á við. Það er eins og margir lykilmenn liðsins séu með handbremsuna á og við stuðningsmenn neitum að trúa því að það búi ekki meira í liðinu.

Við lendum í alvöru prófraun á miðvikudaginn þegar við mætum Reykjavíkur-Þrótturum  i leik í Mjólkurbikarnum í Laugardalnum. Þeir rauðröndóttu eru á mikilli siglingu í 1. deildinni og ætla sér stóra hluti í sumar. Við þurfum því að ná upp meiri krafti og ákveðni til að ná fram góðum úrslitum í þeim leik.

Það tekst með góður stuðningsi áhorfenda. Leikurinn er á óhefðbundnum tíma kl.17.30 í Laugardalnum.

Áfram Blikar- alltaf- alla leið!

AP