Stefán Gíslason skrifar undir 3ja ára samning við Breiðablik
31.01.2014Varnarmaðurinn Stefán Gíslason hefur skrifað undir þriggja ára samning við Breiðablik.
Stefán, sem verður 34 ára gamall á árinu, á að baki 32 landsleiki fyrir Íslands hönd.Sjá yfirlit yfir alla landsleiki Stefáns hér.
Hann hefur undanfarið ár leikið með OH Leuven í Belgíu en fékk sig lausan þar fyrir skemmstu til að halda heim á leið. Stefán, sem er uppalinn á Eskifirði, hefur áður leikið hér á landi í efstu deild en það var með KR og Keflavík. Sjá leikjaferil á Íslandi hér.
Knattspyrnudeild Breiðabliks býður Stefán velkominn heim til Íslands aftur og væntir mikils af honum næstu árin.
Áfram Breiðablik!