Knattspyrnumaðurinn ungi og efnilegi Sveinn Aron Guðjohnsen hefur verið seldur frá Blikum til ítalska liðsins Spezia.
Sveinn Aron sem er tvítugur að aldri kom til Blika frá Val í fyrra. Hann hefur leikið 31 leik með Breiðabliksliðinu og skorað í þeim sjö mörk. Sveinn Aron á einnig að baki 17 leiki með yngri landsliðum Íslands og hefur skorað fjögur mörk.
Málið kom frekar óvænt upp og þrátt fyrir að leikmaðurinn sé mikilvægur hlekkur í Blikaliðinu vildi stjórn knattspyrnudeildar ekki standa í vegi fyrir því að þessi ungi framherji fengi tækifæri til að spreyta sig í atvinnumennsku. Sveinn er núna á leið út til að ganga frá sínum málum og undirgangast læknisskoðun.
Blikar óska Sveini Aroni til hamingju með samninginn, þakka honum fyrir hans framlag til félagsins og óska honum velfarnaðar.