BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Við eigum gúmmikurl!

16.06.2025 image

,,Við eigum gúmmikurl“ trölluðu kátir Kópakabanaliðar í Vestmannaeyjum í gær þegar Blikaliðið vann góðan 0:2 sigur á liði heimamanna í Bestu deild karla. Vísuðu hinir kátu Kópavogsbúar til vandræða heimamanna að klára Hásteinsvöllinn vegna skorts á gúmmikurli. Illar tungur herma að forráðamenn ÍBV liðsins geymi kurlið í lokuðum vörugeymslum þar til liðið hafi klárað erfiða heimaleiki gegn Val í bikarnum og Víkingi í deildinni. Við tökum að sjálfsögðu ekki undir slíka kjaftasögur enda eru Vestmannaeyingar vammlausir upp til hópa og höfðingjar heim að sækja!

Annars skörtuðu Vestmannaeyjar sínu fegursta pússi í gær, sólin skein, lofthiti í kringum 12 gráður og sjófuglarnir létu vel í sér heyra í klettunum á Heimaey. Fyrir utan glæsilega Blikaleikmenn inn á vellinum þá voru Kópakabanadrengir undir öflugri forystu Hilmars Jökuls og Sindra trommara tvímælalaust stjörnur dagsins.  Innkoma þeirra með Herjólfi inn í Vestmanneyjahöfn með trommuslætti og söng verður lengi í minnum höfð. Heimamenn höfðu meðal annara á orði að engu líkara væri en Þjóðhátíð væri hafin! Hafið mikla þökk fyrir Kópacabana fyrir að mala leikinn í stúkunni.

Þetta er einungis annar sigur okkur á Vestmannaeyjum síðan árið 2010 og sá fyrsti síðan árið 2016.  Segja má að miklum álögum hafi verið létt af okkur við þennan sigur. Við skellum okkur því á toppinn og vonandi er þessu þrjú stig vendipunktur í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn á þessu ári.

En ef við fjöllum aðeins um leikinn þá verður að segja að hans verði ekki minnst fyrir fallega spilamennsku. Enda bauð Þórsvöllurinn ekki upp á neina sparitakta, þótt hann hafi verið í betra standi en margir áttu von á.  Leikurnn sjálfur var hins vegar lokaður og tuðran oft upp í háloftunum eða út af vellinum. Blikaliðið var meira með boltann en tókst ekki að skapa sér mörg færi. Sama má segja um heimadrengina. Þeir lágu aftarlega á vellinum og reyndu mikið langar sendingar fram. Það skilaði hins vegar ekki miklu enda stóð varnarlína Blika sig, með þá Viktor Örn og Anton Loga í forsvari, með miklu prýði. 

Það var hins vegar besti leikmaður vallarins, Ágúst Orri Þorsteinsson, sem braut ísinn með fínu marki á 20. mínútu leiksins.

image

Eftir að hafa hraðspólað upp kantinn og skilið varnarmenn Eyjaliðsins eftir í reykmekki þá sendi Ágúst knöttinn í netið með smá viðkomu í varnarmanni þeirra hvítklæddu. Vel gert og fyrsta mark þessa unga og efnilega leikmanna í Bestu deildinni staðreynd.

Seinni hálfleikur var svipaður. Blikar meira með knöttinn en ÍBV menn hættulegir í skyndisóknum sínum. En vinnujaxlinn úr efri byggðum Kópavogs, Valgeir Valgeirrson, náði knettinum eftir mikinn darraðadans á miðjum vallarhelmingi Eyjapeyja á 76. mínútu leiksins. Lék upp að vítateig og sendi gullfallega sendingu inn á danska dínamítið Tobias Thomsen sem gerði engin mistök og gulltryggði sigur gestaliðsins.

image

Þá var hún heldur betra trallað og sungið í stúkunni! Vestamennaeyingar virtust gefast upp og Blikar sigldu gríðarlega mikilvægum sigri í hús.

Það voru grænir og glaðir Blikar, bæði leikmenn og stuðningsfólk, sem sigldu með Herjólfi aftur upp á land um kvöldið. Ógleymanleg ferð fyrir alla þá sem fengu að upplifa þennan sigur. Meira segja að heimamenn viðurkenndu að þetta hefði verið sanngjarnt. Einn öflugur stuðningsmaður Blika fékk þetta skeyti frá Eyjafélaga sínum : ,,Takk fyrir komuna til Eyja...sanngjörn úrslit í dag. Skilaðu kveðju á stuðningsmenn ykkar, voru klúbbnum til sóma“ !

Þarf nokkur að segja meir ????

Áfram Blikar – alla leið!

AP

@breidablikfc

Vestmannaeyja takeover ????

♬ Lifa af - BRÍET & Birnir

Til baka