BREIÐABLIK STUÐNINGSMANNAVEFUR

Rakel Hönnudóttir semur til þriggja ára

31.10.2013

Sóknarmaðurinn sterki, Rakel Hönnudóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik.
Hún hefur leikið alls 171 leik í deild og bikar og skorað í þeim 144 mörk þar af 36 leiki fyrir Breiðablik og skorað í þeim 20 mörk.
Rakel á að baki 55 landsleiki og var m.a. ein af 4 leikmönnum landsliðsins sem spilaði allar mínúturnar á EM í sumar.
Hún hefur verið ein af lykilleikmönnunum í Breiðabliks liðinu sem vann m.a. Bikarmeistaratitilinn í sumar.

Knattspyrnudeild Breiðabliks væntir mikils af áframhaldandi samstarfi við Rakel og lýsir mikilli ánægju sinni með að njóta krafta hennar á knattspyrnuvellinum í þrjú ár í viðbót hið minnsta.

 

Knattspyrnudeild Breiðabliks

Til baka