Aron Kári lánaður í HK
27.03.2019Varnarmaðurinn ungi og efnilegi Aron Kári Aðalsteinsson hefur verið lánaður til nágranna okkar í HK. Aron Kári verður tvítugur í sumar og hefur spilað 11 leiki með meistaraflokki Breiðabliks.
Síðasta sumar spilaði hann bæði með ÍR og Keflavík að láni og stóð sig mjög vel með báðum liðum. Aron Kári á að baki 19 leiki með yngri landsliðum Íslands. Aron stefnir á háskólanám í Bandaríkjunum í haust og mun því ekki klára tímabilið með HK.
Við hlökkum til að fylgjast með Aroni Kára halda áfram á braut framfara