BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik – Stjarnan í PEPSI laugardaginn 27. ágúst kl. 17:00

25.08.2016

Fyrsti opinberi leikur Breiðabliks og Stjörnunnar fór fram á Melavellinum í Reykjavík 22. ágúst 1970. Leikurinn var í 1. umferð Bikarkeppni KSÍ. Blikar unnu þessa fyrstu viðureign liðanna nokkuð stórt eða með 11 mörkum gegn engu!

Liðin hafa mæst 48 sinnum í öllum keppnum frá árinu 1970 þ.m.t. 1:3 sigurleikurinn á Samsungvellinum í lok maí sl. Leikirnir 48 dreifast á 6 mót: A-deild (23) og B-deild (12), Bikarkeppni KSÍ (2), Litlu Bikarkeppnina (6), Lengjubikarinn (2) og Fótbolta net mótið (3). Blikar hafa unnið 22 leiki, Stjarnan 17 leiki og jafnteflin eru 9.

Í 15 efstu deildar leikjum liðanna frá endurkomu  Stjörnunnar upp í efstu deild árið 2009 hafa Blikar sigrað 9 sinnum, Stjarnan hefur unnið 2 leiki og 4 sinnum hefur orðið jafntefli. Blikar hafa skorað 32 mörk gegn 17 mörkum Stjörnunnar eða samtals 49 mörk eða meira en 3 mörk að meðaltali per leik. Í stigum talið skilar þessi árangur Blikum 31 stigi af 45 mögulegum (69%) gegn 10 stigum Stjörnunnar af 45 mögulegum (22%).

Leikurinn á Kópavogsvelli á laugardaginn er 12. efstu deildar viðureign liðanna á Kópavogsvelli frá því að liðin léku þar fyrsta efstu deildarleikinn 14. júlí 1991. Sá leikur tapaðist 0:2 sem og efstu deildar leikur liðanna á Kópavogsvelli 11. júlí 1994. Á þeim 22 árum sem liðin eru síðan hefur Stjarnan ekki unnið Breiðablik í efstu deild á Kópavogsvelli. Viðureignir liðanna í efstu deild á Kópavogsvelli árin 2009 - 2013 voru miklir markaleikir eins og lesa má um hér.

En munum að þessi tölfræði segir ekki neitt þegar út á völlinn er komið á laugardaginn.

Okkar drengir þurfa að ná upp sama fítonskrafti og í síðasta leik og þá eru okkur allir vegir færir.

Kópacabana stuðningshópur Blika fjölmennir auðvitað.

Athugið! Leikurinn hefst klukkan 17:00 á laugardaginn.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

BlikarTV Upphitun.

Til baka