Sergio farinn
24.05.2016Knattspyrnudeild Breiðabliks og Spánverjinn Sergio Carrallo Pendás hafa náð samkomulag um rifta samningi hans við deildina.
Sergio kom til okkar í vetur frá Spáni en þar hafði hann meðal annars verið á mála hjá yngri flokka starfi Real Madrid.
Hann spilaði töluvert á undirbúningstímabilinu með Blikaliðinu en hefur ekki verið í leikmannahópnum frá því að Pepsí-deildin hófst.
Það varð því að samkomulagi að Spánverjinn héldi heim á leið og reyndi fyrir sér á öðrum slóðum.
Knattspyrnudeildin þakkar Sergio Carvallo fyrir góð kynni og óskar honum alls velfarnaðar á nýjum slóðum.