BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Besta deildin 2024: Vestri - Breiðablik

05.07.2024 image

Vestri - Breiðablik

Komið að leik í 13. umferð Bestu deildarinnar. Okkar menn fljúga til Ísafjarðar til að etja kappi við heimamenn á nýjum heimavelli Vestramanna - flautað verður til leiks á Kerecisvellinum kl.14:00 á laugardaginn. 

Miðasala á leikinn á Ísafirði er á Stubbur 

Leikurinn verður sýndur á BD rás 2 Stöðvar 2. 

Stöðutaflan fyrir leikinn um helgina - Breiðabliksliðið á er í 2.sæti á eftir Reykjavíkur Víkingum:

Sagan & Tölfræði

Íþróttafélagið Vestri er ungt félag - stofanð 16. janúar 2016 við sameiningu íþróttafélaganna BÍ88, KFÍ, Skellur og Sundfélagið Vestri, á Ísafirði. En upphaf Vestra má rekja til ársins 1986 þegar BÍ er stofnað. Þegar ÍBI er lagt niður árið 1987, og félagið fært undir Héraðssamband Vestur-Ísfirðinga, færðust flestir leikmenn ÍBÍ yfir til BÍ sem þá breytir nafni félagsins í BÍ 88 fyrir keppnistímabilið 1988. Átján árum síðar (2006) breytist nafn félagsins í BÍ/Bolungarvík og keppir undir því nafni þar til fjölgreinafélagið Vestri er stofnað árið 2016.

Tölfræði

Leikurinn á laugardaginn verður önnur innbyrðis viðureign liðanna í efstu deild. Fyrri leikur liðanna í deildinni var á Kópavogsvelli um miðjan apríl:

Gagnagrunnur blikar.is sýnir 6 innbyrðis viðureignir Breiðabliks og Vestra í öðrum mótum - fyrst árið 2011 þegar liðin mættust í 16-liða úrslitum Valitor-bikarsins á Torfnesvelli. Heimaliðið, þá BÍ /Bolungarvík, sló okkar menn út með öruggum 4:1 sigri. Liðin mætast svo aftur ári síðar í bikarnum, þá Borgunarbikarinn, og vinna okkar menn öruggan 5:0 sigur í 32-liða úrslitum á Kópavosgvelli.

Leikmannahópurinn

Í leikmannahópi heimamanna á Ísafirði er einn leikmaður sem hefur spilað með Breiðabliki. Benedikt V. Warén skipti yfir í raðir Vestra fyrir keppnistímabilið 2023. Benedikt var þa´ekki ekki alveg ókunnugur á þeim slóðum en hann lék sem lánsmaður frá okkur okkur Blikum sumarið 2021. Benedikt á að baki 34 leiki með Breiðabliki og skoraði í þeim 5 mörk. 

Leikmenn sem komu til okkar fyrir keppnistímabilið:

Kristinn Jónsson (KR) Kiddi Jóns kominn heim * Aron Bjarnason (Ungverjaland) Aron Bjarna mættur í grænt * Arnór Gauti Jónsson (Fylkir) Arnór Gauti mættur í Kópavoginn * Benjamin Stokke (Noregur) Norski framherjinn Benjamin Stokke til Breiðabliks * Daniel Obbekjær (Færeyjar) Daniel Obbekjær gerir 3 ára samning við Breiðablik * Ísak Snær Þorvaldsson á láni (Noregur) Ísak Snær aftur í Kópavoginn.

Leimenn Breiðabliks sem voru á láni hjá öðrum liðum 2023: Dagur Örn Fjeldsted (Grindavík) - Eyþór Aron Wöhler (HK) - Pétur Theódór Árnason (Gróttu). Í mars rifti Pétur samningi sínum við Breiðablik og íhugar að hætta í fótbolta, en meiðsli hafa sett risastórt strik í feril hans undanfarin 2-3 ár. - Tómas Orri Róbertsson (Grindavík) - Tumi Fannar Gunnarsson (Augnablik) - Viktor Elmar Gautason (Augnablik)

Leikmenn Breiðabliks á láni hjá öðrum liðum keppnistímabilið 2024: Ásgeir Helgi Orrason (Keflavík). Tómas Orri Róbertssson (Grótta). 

Farnir: Alex Freyr Elísson (Fram...var á láni hjá KA) - Anton Logi Lúðviksson (Noregur) - Arnar Númi Gíslason (Fylkir...var á láni hjá Gróttu) - Ágúst Eðvald Hlynsson (Danmörk) - Davíð Ingvarsson (Danmörk) - Gísli Eyjólfsson (Svíþjóð) - Hilmar Þór Kjærnested Helgason (Fylkir) - Klæmint Olsen (Færeyjar ...var á láni frá NSÍ) - Oliver Stefánsson (ÍA). - Eyþór Aron Wöhler (KR)

Teymið: Halldór Árnason er aðalþjálfari Breiðabliksliðsins. Aðstoðarþjálfari er Eyjólfur Héðinsson. Eiður Eiríksson er transition þjálfari. Stryrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Marinó Önundarson og Brynjar Dagur Sighvatsson. 

image

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins gegn Vestra er fædd og uppalin í Kópavogi og fyrrum leikmaður og þjálfari Breiðabliks. 

Frá unglingsaldri spilaði hún með Breiðabliki og á að baki 154 meistaraflokksleiki með Blikaliðinu í deild, bikar og evrópukeppnum á 16 keppnistímabilumm 1981 til 1996 þ.m.t tvö gullaldartímabil liðsins, árin 1981 - 1985 og svo aftur 1990 - 1996. SpáBliki leiksins hóf síðar þjálfarstörf hjá félaginu 18 ára gömul og þjálfaði síðast fyrir félagið, meistaraflokk kvenna árið 2004.

Gaman er að geta þess að hljómsveitin Pigerne gaf út fyrsta stuðningslag á Íslandi fyrir knattspyrnulið kvenna “Breiðablik po banen/ Breiðablik í stuði” en spáblikinn er ein af þremur meðlimum sveitarinnar.

Margrét Sigurðardóttir - Hvernig fer leikurinn?
 
Það er ávallt gaman að heimsækja Vestfirði. Breiðablik verður í miklu stuði í vestfirska loftinu og spái ég sigri Blika, vinna með fjórum mörkum gegn einu.

Áfram Breiðablik!

Margrét Sigurðardóttir, SpáBliki leiksins

Dagskrá

Miðasala á leikinn á Ísafirði er á Stubbur 

Flautað verður til leiks á Kerecisvellinum kl.14:00 á laugardaginn. 

Leikurinn verður sýndur á BD rás 2 Stöðvar 2.  

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

PÓÁ

Mörk og atvik úr leik liðanna í 2. umf Bestu 2024 á Kópavogsvelli í apríl: 

Til baka