Besta deildin 2025: Stjarnan – Breiðablik
25.06.2025
Ekki margir leikir síðasta mánuðinn enda tveggja vikna hlé í fyrri hluta júní-mánaðar, en gríðarlega sterkur 3:1 sigur gegn Reykajvíkur Víkingum á Kópavogsvelli 1. júní sem Blikaliðið fylgdi eftir með tveggja marka sigri á ÍBV í Eyjum 15. júní. En leikurinn gegn Fram á Kópavogsvelli á mánudagskvöld skilaði bara einu stigi í pokann fræga eftir harða rimmu í eftirminnanlegum leik - leik sem bauð upp á atvik sem ekki ættu að sjást inn á vellinum, enda virtist dómari leiksins ekki trúa sýnum eigin augum í nokkrum atvikum leiksins og dæmi því ekkert. Með því leyfði hann leikmönnum að ganga of langt án tiltals eða áminninga. Nánar um leikinn gegn Fram: Drama á Kópavogsvelli
Stjarnan - Breiðablik á Samsung-vellinum í Garðabæ föstudagskvöldið 27.júní kl.19:15!
Blikaliðið verður án tveggja byrjunarliðsmanna í leiknum á föstudaginn. Tobias Thomsen verður í leikbanni vegna 4 gula spjalda og fyrirliðinn okkar Höskuldur Gunnlaugssion, nú þriðji leikkjahæsti leikmaður Breiðabliks frá upphafi, tekur út leikbanna vegna reisupassans sem hann fékk á lokamínútum leiksins gegn Fram.
Kópacabana menn benda á að þetta er eini föstudagsleikurinn hjá okkar mönnum í sumar og því hvetja þeir alla til að leggja leið sína yfir Arnarneshæðina að hvetja strákana og skapa stemningu á Samsung-vellinum sem eingöngu Blikar kunna að gera!
Ein gömul en góð sem sýnir yfirtöku sveitarinnar á stúkunni í Garðabæ:
Stemmingin var rosaleg í kvöld! Okkur líður svosem ágætlega í Garðabæ #fotboltinet #takkÍBV #OnToTheNextOne pic.twitter.com/iId2EFqlrH
— Kópacabana (@KopacabanaKp) August 24, 2015
Miðasala á leikinn er á: Stubb
Flautað verður til leiks á Samsungvellinum í Garðabæ á föstudag kl.19:15!
Staðan í deildinni eftir 12 umferðir. Blikaliðið í 2. sæti þremur stigum á eftir liðinu í efsta sæti og þremur stigum á undan Stjörnunni.
Sagan & Tölfræði
Leikurinn á miðvikudaginn er seinni viðureign liðanna í ár í hefðbundnu 22 leikja móti. Blikar unnu góðan 2:1 sigur í fyrri viðureigninni á Kópavogsvelli í apríl með sigurmarki frá fyrirliðanum Höskuldi Gunnlaugssyni á lokaandartökum leiksins. Nánar um þann leik hér.
Mótsleikir
Innbyrðis mótsleikir Breiðabliks og Stjörnunnar eru 76. Blikar leiða með 36 sigra gegn 27 - jafntefli eru 13.
Efsta deild
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 43. Staðan er okkar mönnum í vil með 23 sigra gegn 11 - jafnteflin eru 9. Markaskorun í þessum 42 leikjum er: Breiðablik 83 mörk, Stjarnan 58 mörk.
Efsta deild frá 2006
Hlutfallið er jafnt frá endurkomu Breiðabliks upp í efstu deild árið 2006 er 20 Blikasigrar gegn 8 sigrum Stjörnumanna – jafnteflin eru 7.
Stjörnuvöllur
Leikir liðanna í efstu deild á Samsungvellinum í Garðabæ eru 19. Blikar leiða þar með 8 sigra gegn 6 - jafteflin eru 5.
Síðustu 5 viðureignir liðanna í efstu deild í Garðabænum í 22 leikja móti:










Leikmannahópar
Þjálfari Stjörnunnar - Jökull Ingason Elísarbetarson lék 116 mótsleiki með Blikum á árunum 2010-2013 og varð Íslandsmeistari með Blikaliðinu árið 2010. Blikinn Benedikt V. Warén leikur nú með Stjörnunni eftir félagaskiti frá Vestra á Ísafirði. Benó spilaði 31 mótsleik og skorðai 5 mörk á árunum 2019 til 2022. Uppalinn Bliki, Guðmundur Kristjánson, leikur með Stjörnunni. Guðmundur spilaði 136 mótsleiki og skoraði 36 mörk með Breiðabliki á árunum 2006-2012 og var sterkur póstur í Bikarmeistaraliði Breiðabliks 2009 og Íslandsmeistaraliðinu 2010. Og varnarmaður Stjörnunnar, Sindri Þór Ingimarsson, er uppalinn Bliki.
Kristófer Ingi Kristinsson er uppalinn hjá Stjörnunni en hélt mjög ungur út í atvinnumennsku og náði þ.a.l. aðeins einum mótsleik með Stjörnuliðinu. Óli Valur Ómarsson, fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar, kom til Breiðabliks fyrir keppnistímabilið frá sænska félaginu Sirius og skrifaði undir 4 ára samning við Breiðablik til ársins 2028. Í þjálfarateymi Breiðabliks eru einn fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar. Haraldur Björnsson markmannsþjálfari með 138 leiki fyrir Stjörnuna á árunum 2017-2022.
Leikmannahópur Breiðabliks 2025
Teymið: Halldór Árnason er aðalþjálfari Breiðabliksliðsins. Aðstoðarþjálfari er Arnór Sveinn Aðalsteinsson. Eiður Eiríksson er transition þjálfari. Stryrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.
Stuðningsmaðurinn
SpáBliki leiksins gegn Stjörnunni er Rósa Áslaug Valdimarsdóttir. Blikakonan er fædd 1959 og alin upp á Álfhólsvegi 36. Móðir mín var Rósa Sigurbjörg Sigurjónsdóttir og faðir minn var Valdimar Kristinn Valdimarsson ýmist kallaður Valdi fisksali eða Valdi vallarvörður. Við systkinin vorum sex, fjórir strákar og við tvær stelpurnar. Öll tengdumst og tengjumst við Breiðablik á einhvern hátt, nema sá elsti Brynjar en hann var mikið í öðrum félagsmálastörfum í Kópavogi frá unglingsaldri, t.d. siglingaklúbbnum. Sigurjón, Ásgeir, Kristín og Valdi Fr. hafa öll spilað fyrir Breiðablik og erum við Valdi að mestu alin upp á Vallargerðisvelli. Mynd: Systkynin Rósa Áslaug og Valdimar Fr. með bikara sem Valdimar faðir þeirra fékk gefins fyrir fyrsta skólamótið sem hann skipulagði vorið 1969.
Ég er gift Sigurði Guðnasyni og eigum við þrjú börn sem mjög lituð af græna litnum og hafa stelpurnar mínar Hulda Rós og Valdís Ósk fengu að æfa og spila í yngri flokk með félaginu en Jón Guðni taldi til fimm ára aldurs að það væru aðeins stelpur sem spiluðu fótbolta enda þekkti hann ekkert annað svo uppeldi og viðhorf hefur áhrif.
Ég byrjaði að æfa með Breiðablik sumarið 1968 þegar ég var níu ára, fyrsta og eina stelpan sem æfði. Valdi bróðir spurði þá þjáfarann Þorstein upp á Melaheiði hvort ég mætti vera með og þessum degi hef ég aldrei gleymt. Þjálfarinn og Valdi urðu að hetju, Þorsteinn fyrir að leyfa stelpu að vera með og Valdi fyrir að þora að spyrja. Þorsteinn Karlsson var framsýnn maður.
Fyrsti leikurinn minn á Vallargerði var 9. sept.1968, austurbær á móti vesturbæ. Í austurbæjarliðinu vantaði einn leikmann og þar sem Nonni bróðir hafði verið verkstjóri þessara stelpna sem léku sér í fótbolta í kaffitímanum, benti hann á mig. Ég var fljót að grípa tækifærið til að spila fótbolta, stelpunum fannst mjög gaman af þessu og létu mig vera fyrirliða. Sjónvarpið kom á leikinn og tók hann upp, síðan þegar ég horfði á hann í sjónvarpinu sá ég að ég hljóp út um allan völl og djöflaðist í þeim, stelpunum sem voru um 16 ára aldurinn. Myndir: Þær eru einbeittar og ákveðnar, og úr svip þeirra má lesa: Við getum Iíka spilað fótabolta! Já, auðvitað geta stúlkurnar leikið knattspyrnu eins og piltar. Það sýndu þessar ungu Kópavogsstúlk ur okkur á sunnudaginn, en þá fór fram keppni miili tveggja kvennaiða í Kópavogi. Tíminn 10. september 1968. Rósa, þá 9 ára gömul, snýr baki í myndavelína á myndinni til hægri.
Ég æfði og spilaði með strákunum og var mér alltaf vel tekið. Ég kynntist því að skipta um föt inn á klósetti en ég upplifði aldrei að ég væri ekki ein af hópnum.
Um haustið sem Guðmundur Þórðarson byrjaði með æfingar inn í Kópavogsskóla mætti ég þar, haustið 1970. Síðan þá hefur ekki verið aftur snúið hjá Breiðablik að halda úti kvennaliði. Fyrsta Íslandsmótið innanhúss var haldið um vorið 1971 en vorum við ekki skráðar í það mót. Akranes urðu Íslandsmeistarar innanhúss það ár og í sárabót fengum við að fara upp á Skaga og spila við þær, í þessari ferð sáum við að við stóðum jafnfætis þeim. Strax ári seinna tókum við þátt, bæði inni- og útimótinu og síðan hefur ekki verið aftur snúið hjá Breiðablik.
Íslands- og bikarmeistarar 1982. Aftari röð f.v.: Sigurður Hannesson þjálfari, Theresa Linda Árnadóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Ragnheiður Þorgilsdóttir, Magnea Helga Magnúsdóttir, Ásta María Reynisdóttir, Heiðrún Bára Þorbjörnsdóttir, Þjóðhildur Þórðardóttir og Valdimar Valdimarsson meistaraflokksráði kvenna.Miðröð f.v.: Karl Steingrímsson formaður knattspyrnudeildar, Berglind Hrafnkelsdóttir, Edda Herbertsdóttir, Dagný Halldórsdóttir, Svava Tryggvadóttir, Sigríður Jóhannsdóttir, Halldóra Gylfadóttir, Sigríður Tryggvadóttir, Kristín S. Valdimarsdóttir liðssjóri og Pétur Ómar Ágústsson meistaraflokksráði kvenna. Fremri röð f.v.: Margrét Sigurðardóttir, Erla Rafnsdóttir, Guðríður Guðjónsdóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir fyrirliði, Ásta Óskarsdóttir, Ásta B. Gunnlaugsdóttir og Bryndís Einarsdóttir.
Ég er mjög stolt kolla/bliki að geta sagt að ég hafi verið fyrirliði þessa hóps frá upphafi til ársins 1983 þegar ég varð frá að hverfa. Hjartað mitt er og verður alltaf grænt í grunninn og hef ég eðlilega alltaf fylgst með mínu uppeldisliðinu mínu.
Rósa Áslaug Valdimarsdóttir - Hvernig fer leikurinn?
Ég spái að leikurinn fari 2:0 fyrir Breiðablik.
Áfram Breiðablik!
SpáBlikinn Rósa Áslaug Valdimarsdóttir og Haraldur Erlendsson taka á móti viðurkenningu í veislusal Smárans í tilefni 50 ára afmælis Kópavogsvallar en þau voru fyrirliðar liðanna keppnistímabilið 1975.
Dagskrá
Miðasala á leikinn gegn Stjörnunni er á: Stubb
Kópacapana sveitin mætir og ætlar að halda uppi stuði í stúkunni.
Flautað verður til leiks á Samsungvellinum í Garðabæ á föstudag kl.19:15!
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
PÓÁ
Blikar gerðu 2:2 jafntefli í heimsókn í Garðabæinn í fyrra: