BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Drama á Kópavogsvelli

24.06.2025 image

Afmælisveisla -  50 ár frá fyrsta leik á Kópavogsvelli.

Það var tvöfalt tilefni til að gera sér glaðan dag á Kópavogsvelli mánudaginn 23 júní.

Þá voru 50 ár frá því Kópavogsvöllur var tekinn í notkun með frægum 11-0 sigri á Víkingi Ólafsvík 7 júní árið 1975 í næstefstu deild.    Mér skilst að það hafi viðrað vel til róðurs þennan dag og því stór hluti Víkingsliðsins verið við veiðar á Breiðafirði.  Afmælisveislan á undan leiknum gegn Fram tókst einstaklega vel. Mætingin var frábær og heiðursgestir á leiknum gegn Fram voru einmitt þeir leikmenn (karla og kvenna) sem léku upphafsleikina árið 1975.  Veislan og stjórnun Ásgeirs formanns var til mikillar fyrirmyndar.  Þessum viðburði er gerð góð skil hér

Tengslin mín við Fram

Ég er af þeirri kynslóð Blika sem vann marga titla í yngri flokkum – en áttum erfiðara uppdráttar þegar í meistaraflokkinn kom.  Ég fór ásamt félögum mínum Jóni Orra og Tómasi Tómassyni í MH meðan flestir vinirnir fóru í MK.  En satt að segja brá okkur íþróttastrákunum úr Kópavogi því umhverfið í MH á þessum tíma var vægt til orða tekið afar andsnúið íþróttaiðkun.

MH var hins vegar hverfisskóli og auðvitað var þar fullt af fólki sem hafði áhuga á íþróttum en menn voru Valsarar og Framarar til skiptis.  

Þarna kynntist ég mörgum góðum Frömurum sem enn eru félagar og vinir.  Sumir þeirra voru á vellinum í gær og gaman að hitta þá.   

Framarar áttu sinn blómatíma á 9 áratug síðustu aldar undir stjórn Ásgeirs heitins Elíassonar með Pétur Ormslev og Viðar Þorkelsson sem máttarstólpa.  Þá gekk ekki vel hjá Breiðablik.  En allt hefur sinn tíma eins og segir í Prédikaranum í Gamla Testamentinu og svo fór að halla undan fæti hjá Fram eins og gengur meðan Breiðablik fór að ná vopnum sínum á þessari öld.  Nánari tölfræði í leikjum Breiðabliks og Fram má finna hér í þessari fínu samantekt Péturs Ómars. Sjá hér.

Leikurinn

Það viðraði vel til að spila fótbolta á mánudaginn. Nánast fullkomið.   Sólarlaust, 12 gráðu hiti og blankalogn.    Liðið okkar var þannig:   Anton Ari í markinu.   Viktor Örn og Anton Logi í miðverðinum.  Andri Yeoman og Valgeir í bakvörðunum.  Arnór Gauti fyrir framan.   Viktor Karl og Höskuldur á miðjunni. Óli Valur og Ágúst Orri á köntunum og Tobias Thomsen frammi.    Eina breytingin frá síðasta leik var að Óli Valur kom inn fyrir Kristin Steindórsson. 

Eins og kannski við var að búast stýrðu Blikarnir spilinu framan af og voru miklu meira með boltann.  Fengum samt engin afgerandi færi og þannig var að fyrsta hálftímann. Þó var alltaf hætta ef Framarar næðu skyndisóknum – ekki síst gegnum Kennie Chopart hægra megin.  En þegar svona pressa er í gangi er alltaf hætta á að slysin gerast í skyndisóknunum.  Slíkt var einmitt í uppsiglingu á 27 mínútu – en Framari fær frítt skot á markteig.  Sem betur fer fór það hárfínt yfir.   Enn betra færi kom á 44 mínútu þegar Chopart á frían skalla á markteig en Anton Ari nær að verja á ótrúlegan hátt. 

Því miður náðu Blikarnir engan veginn að nýta stöðuyfirburðina.  Við áttum ekkert opið færi – nokkrar góðar sóknir hins vegar.

Í leikhléinu voru Blikar alls ekki nógu sáttir  „Fyrirsjáanleiki“ var orð sem var mikið notað og vissulega hafa Blikarnir oft spilað betur.  Framararnir og vinirnir Skúli Helgason og Snorri Már Skúlason voru ánægðir. „Við eigum eftir að skora“ – sagði Snorri.  „Við höfum átt betri færi“ og má til sanns vegar færa. Ætli það sé ekki að nálgast hálfa öld frá því þeir sáu um sjaldgæfa útvarpsþætti um framsækna tónlist.  Alla vega er það þeim að þakka að ég hlusta enn á Style Council.  En til að allrar sanngirni sé gætt þá er sonur Snorra, Freyr einn mesti Bliki sem til er. 

Áfall í upphafi seinni hálfleiks

Síðari hálfleikur var ekki nema 4ra mínútna gamall þegar Framarar voru komnir yfir og Snorri reyndist sannspár.     Að vísu var brotið á Valgeir en ekkert dæmt.  Fyrirgjöf frá áðurnefndum Kennie og Fram komið í 1-0.   Aðeins 2 mínútum síðar gerist það að almættið var algerlega á bandi Breiðabliks.  Það myndast ótrúlegt gat í miðju varnarinnar hjá okkur og Fram á sláarskot. Boltinn hrekkur til annars Framara  og fær boltann fyrir galopnu marki – en skýtur himinhátt yfir!  Herregud!  Þökk sé Múhameð, Jesú Kristi og öllum þeim félögum. 

Í kjölfarið förum við að ná aftur tökum á leiknum – nema færin skorti.  Á 61 mínútu á Valgeir frábært skot í þverslána reyndar.  Sama mynstrið hélst síðan áfram út leikinn. Breiðablik var með stöðuyfirburði – fengu td 7 hornspyrnur gegn 2 hjá Fram.  En það er líka stórmerkilegt að Fram átti 12 skot á markið – en Breiðablik 8 talsins. Sem sýnir skyndisóknarþungann hjá Fram.

Dramatík í lok leiks

Á 86 mínútu kemur Gabríel Snær Hallsson inn á fyrir Ólaf Val Ómarsson.  Eftir aðeins 2 mínútur á hann frábæra sendingu fyrir markið. Þar kemur Höskuldur fyrirliði og stangar boltann í stöngina.  Boltinn berst út í teiginn og þar kemst Ágúst Orri í gott færi.  Framari fer aftan í hann og víti dæmt!  Framarar setja upp mjög hallærislegan leikþátt.  Leggjast niður með sinadrátt og reyna að trufla einbeitingu Höskuldar fyrirliða.  Hann skorar örugglega og eðlilega vill sækja boltann og sigur í kjölfarið.

image

Úr verður þvílíkt drama.  Höskuldur Gunnlaugsson, mesta ljúfmenni sem ég hef kynnst – fær rautt spjald vegna meints ofbeldis.  Það er svipað og að snúa faðirvorinu upp á andskotann.   Framari fær að fylgja sömu leið – og leikurinn fjarar út.   En eftir dauðafærið hjá Fram getum við vel við unað að fá 1 stig.   Þetta var alls ekki okkar besti leikur, langt frá því – og það gerist þannig í fótboltanum.  Gott að innbyrða stigið.

Þetta var hinsvegar skemmtilegur dagur á Kópavogsvelli, mætingin var góð og stemningin líka.   Næsti leikur er á föstudagskvöldið á Samsungvellinum í Garðabæ.  Stjarnan er á flugi (með 10 af 12 mögulegum stigum í 4 leikjum).    Mætum öll og styðjum strákana – sem verða án Höskuldar, og er skarð fyrir skildi.

Áfram Breiðablik

Hákon Gunnarsson

Til baka