Breiðablik mætir Val á heimavelli á sunnudaginn í leik sem heimavöllurinn gæti reynst lykilatriði. 

Þessar tölur undirstrika hversu miklu máli það getur skipt að leikurinn á sunnudaginn er í Kópavogi.

Breiðablik á heimavelli – 3. sæti - Að venju hafa Blikar hafa verið sterkir á heimavelli og sitja í 3. sæti, þegar aðeins er horft á heimaleikina í sumar, með 19 stig (80% stigaárangur) í 8 leikjum, 6 sigrar, 1 jafntefli, 1 tap. Markatalan er 21:12. Liðin fyrir ofan Blika eru Víkingar í 2. sæti með 22 stig eftir 8 heimaleiki og KR tekur toppsætið með 25 stig eftir 9 heimaleiki. Á hinum enda stigatöflunar eru Stjarnan og KA bæði með 7 stig eftir 8 heimaleiki. 

Breiðablik á útivelli – 5. sæti - Á útivöllum hefur gengi Breiðabliksliðið verið óstöðugra: 10 stig (37% stigaárangur) í 9 leikjum, 2 sigrar, 4 jafntefli, 3 töp. Markatalan er14:15. Liðin fyrir ofan eru Víkingur efstir með 22 stig eftir 9 leiki, Fram með 20 stig í 2. sæti eftir 9 leiki, KR í 3. sæti með 11 stig eftir 8 leiki og Stjarnan í 4. sæti með 11 stig eftir 9 leiki. 

Valur er í 7. sæti á bæði heima- og útivelli - Á heimavelli: 10 stig í 9 leikjum, 3 sigrar, 1 jafntefli, 5 töp. Markatalan er 16-21. Á útivelli: 9 stig í 8 leikjum, 3 sigrar, 0 jafntefli, 5 töp. Markatalan er 12:14. 

Við hverju má búast á sunnudaginn - Blikar þurfa að nýta styrk heimavallarins. Halda boltanum betur en gegn Þór og stjórna miðjunni. Pressa Val hátt og nýta hraðann í vængjunum. Valur mun líklega reyna að brjóta upp leik Blika með beinum spilum og hraða í sókninni og treysta á einstaklingsgæði til að skapa færi.

Stemningin á pöllunum - Eikarvöllurinn hefur verið sterkt vígi í sumar og stuðningsmenn Blika hafa verið líflegir á pöllunum. Eftir svekkjandi tap á Akureyri er liðið staðráðið í að svara fyrir sig – og heimavöllurinn er rétti staðurinn til þess. Allt bendir til þess að Blikar séu í betri stöðu fyrir þennan leik, sérstaklega miðað við heimavallarformið og brothættan útivallarárangur Vals. Þetta verður þó hörkuleikur!

Staðan í Bestu deildinni.  Eftir 17 umferðir í Bestu deildinni halda Blikar áfram að sigla lygnan sjó í 4. sæti. Valur er í jafnri baráttu við ÍA um sæti, þar sem bæði liðin hafa skorað 28 mörk en ÍA hefur fengið á sig einu marki meira en Valur og situr því í 7. sæti.

Sagan & Tölfræði

Keppnisleikir liðanna í öllum mótum eru alls 110 frá fyrsta leik sem var leikur í 2. umferð Bikarkeppni KSÍ á gamla Melavellinum árið 1965. Valur leiðir með 46 sigra gegn 41 – jafnteflin eru 23.

Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 83 frá fyrsta leik árið 1971. Leikurinn gegn Val 1971 var jafnframt fyrsti sigur Breiðabliks í efstu deild. Breiðablik var þá á sínu fyrsta ári í efstu deild og heimavöllur liðsins var þá Melavöllurinn í Reykjavík frá 1971–1974. Leikurinn var í 2. umferð Íslandsmótsins 6. júní 1971 og endaði með 2:0 sigri Blika. Mörkin skoruðu: Magnús Steinþórsson úr vítaspyrnu á 35. mínútu og Guðmundur Þórðarson á 55. mínútu. Sigurinn var því bæði fyrsti sigur Breiðabliks í efstu deild og mark Magnúsar fyrsta mark félagsins í efstu deild.

Efsta deild

Í 83 innbyrðis viðureignum liðanna í efstu deild er það Valur sem leiðir með 34 sigra gegn 31 – jafnteflin eru 18.

Í 40 heimaleikjum gegn Val er það Blikaliðið sem leiðir með 17 sigra gegn 14- jafnteflin eru 9. 

Í 21 heimaleik frá endurkomu Breiðabliks upp í efstu deild árið 2006 leiða Blikar með 10 sigra gegn 6 – jafnteflin eru 5.

Síðustu 5 leikir liðanna í efstu deild í Kópavogi:

S
Breiðablik
2 1
Valur
A-deild 7. umferð Kópavogsvöllur 19.05.2025
30
1
12
J
Breiðablik
2 2
Valur
A-deild 23. umferð - Efri hluti Kópavogsvöllur 06.10.2024
50
3
12
T
Breiðablik
2 3
Valur
A-deild 5. umferð Kópavogsvöllur 06.05.2024
1
11
S
Breiðablik
1 0
Valur
A-deild 13. umferð Kópavogsvöllur 25.05.2023
1
15
S
Breiðablik
1 0
Valur
A-deild 20. umferð Kópavogsvöllur 05.09.2022
52
1
14

Hópurinn

Þrír núverandi leikmanna Breiðabliks hafa leikið með Hlíðarendaliðinu. Í byrjun júlí komust IF Brommapojkarna og Breiðabliks að samkomulagi um að Hlynur Freyr Karlsson muni leika með Breiðabliki það sem eftir lifir keppnistímabilsins 2026. Hlynur Freyr er uppalinn Bliki. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk félagsins árið 2020, þá aðeins 16 ára gamall. Í kjölfar þess hélt Hlynur til Ítalíu, þar sem hann var á mála hjá úrvalsdeildarfélaginu Bologna um nokkurra ára skeið. Keppnistímabilið 2023 lék Hlynur Freyr 33 leiki með Val. Anton Ari Einarsson á að baki 36 meistaraflokksleiki með Valsmönnum og Aron Bjarnason á 21 leiki með Val sem lánsmaður frá Újpest. 

Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.

Leikmannahópur Breiðabliks 2026

Dagskrá

Eikarleikurinn

Eik Fasteignafélag mun bjóða upp á hálfleiksleik þar sem kastað verður 6 boltum upp í stúku og þeir einstaklingar fá tækifæri á að vinna allskyns flotta vinninga.

Vel tekið á móti öllum í Blikaskúrnum. Kaldur á krana í Grænu stofunni og klassísku borgararnir frá Kjöthúsinu á sínum stað í sjoppunni.

Flautað verður til leiks á Eikarvellinum í Kópavogi kl.20:15 á sunnudagskvöld. 

Miðasala á leikinn er á: Stubb 

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

PÓÁ

Klippur frá heimsókn Vals í Kópavoginn í 7. umferð 19. maí í fyrra: