Sagan & Tölfræði
Mótsleikir Fram og Breiðabliks í öllum keppnum frá fyrsta leiknum árið 1961 eru 79. Fram hefur unnið 35 sinnum, Breiðablik 25, og 19 leikjum hefur lokið með jafntefli.
Efsta deild
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild frá upphafi eru 61. Fram hefur þar yfirhöndina með 27 sigra, Breiðablik hefur unnið 17, og 17 leikir hafa endað jafnir.
Frá endurkomu Breiðabliks í efstu deild árið 2006 er hins vegar jafnræði. Innbyrðis leikir liðanna síðustu 20 ár eru 25: Breiðablik hefur unnið 9. Fram hefur unnið 8. Jafnteflin eru 8.
Leikir Breiðabliks á heimavelli Fram
Í 30 viðureignum liðanna í efstu deild á heimavelli Fram hefur Breiðablik aðeins unnið 4 leiki. Fram hefur unnið 18, og 8 leikjum hefur lokið með jafntefli. Athygli vekur að þrír af fjórum útisigrum Breiðabliks hafa komið á síðustu fjórum árum, sem undirstrikar hvað Fram hefur verið erfitt viðureignar fyrir Blika í gegnum tíðina.
79 mótsleikir Fram og Breiðabliks í öllum keppnum frá upphafi
Allir innbyrðis leikir liðanna í efstu deild frá upphafi
Útileikir gegn Fram í efstu deild
Útileikir gegn Fram í efstu deild frá 2006
Útileikir gegn Fram í efstu deild síðustu 4 ár:
Hópurinn
Breytingar á leikmannahópi Breiðabliks milli ára. Komnir: Ívar Örn Árnason, Jónatan Guðni Arnarsson. Farnir: Damir Muminovic, Brynjar Atli Bragason, Daniel Obbekjær, Guðmundur Magnússon, Tobias Thomsen, Viktor Elmar Gautason, Þorleifur Úlfarsson
Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.
Stuðningsmaðurinn
Það má segja að ég sé alinn upp í smáranum því sem barn átti ég heima í Fífuhvammi sem liggur rétt ofan við Kópavogsvöll norðan meginn. Þar varði ég ófáum stundum nánast alltaf með bolta við fót. Öll fjölskyldan mín eru blikar og tengdafjölskylda líka og því má segja að ræturnar nái djúpt.
Inngrip "Fyrsti mótsleikur Arnórs Sveins Aðalsteinssonar með meistaraflokki Breiðabliks var bikarleikur gegn Njarðvík í júní 2003. Árið 2005 er Arnór leikmaður meistarflokks, en það ár lék Breiðablik síðast í næstefstu deild. Arnór var einn af lykilmönnum í bikarmeistaraliðinu 2009 og síðar í Íslandsmeistaraliðinu 2010. Að loknum þeim árangri hélt hann í atvinnumennsku til Noregs og lék þar með Hönefoss í tvö ár, 2011–2013. Þar spilaði hann 55 leiki og skoraði eitt mark. Að atvinnuárunum loknum sneri Arnór aftur til uppeldisfélagsins og lék með Blikum í nokkur ár áður en hann söðlaði um og gekk til liðs við KR. Þar átti hann sex farsæl ár, spilaði 142 leiki og skoraði þrjú mörk fyrir Vesturbæjarliðið. Mótsleikir Arnórs með Breiðablik eru alls 277 á 14 keppnistímabilum. Leikir hans með landsliðum Íslands eru 21. Nánar um feril Arnórs hjá Breiðabliki má lesa í greinum á Blikar.is: „Blika goðsögn kveður boltann sem leikmaður“ og „Arnór Sveinn Aðalsteinsson ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla“.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson - Hvernig fer leikurinn?
Varðandi leikinn þá bíður okkar verðugt verkefni í Úlfarsárdal næstkomandi föstudag. Fram hefur verið eitt besta lið landsins framan af sumri og hefur minn gamli lærifaðir, Rúnar Kristinsson, byggt upp ógnarsterkt lið sem virðist alltaf bæta sig á milli ára. Ég óska honum auðvitað alls góðs, nema á föstudaginn.
Á móti KR síðast sýndum við okkar rétta andlit, pressuðum maður á mann og spiluðum í gegnum miðjuna með Anton Loga í fararbroddi. Ég spái því og vona að við höldum áfram á þessari braut og keyrum á þennan jákvæða og sóknarsinnaða leikstíl. Ég spái opnum leik og fullt af mörkum en að lokum tökum við Framarana 4-2 með mörkum frá Kristó, Gústa og Viktori Margeirs þar sem annaðhvort Gústi eða Kristó setja tvö.
SpáBlikinn Arnór Sveinn fór fyrir Blikaliðinu í síðasta leik haustið 2023 og
er hér ásamt börnunum sínum, þeim Alexander Atlas og Hrafney Aþenu.
Dagskrá
Flautað til leiks á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal kl.19:15 á föstudagskvöld. Miðasala á leikinn er á Stubb
Þetta er síðasti leikur fyrir landsleikjahlé. Næsti leikur í deildinni verður Stjarnan – Breiðablik 16. júní.
En í millitíðinni fer Breiðabliksliðið 12. júní til Þorlákshafnar og mætir þar liði Ægis, undir stjórn Nenads Zivanovic, í fjórðungsúrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ.
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
/PÓÁ
Klippur frá síðustu heimsókn okkar manna á Lambhagavöllinn: