Eftir góðan sigur í 16-liða úrslitum í Mjólkurbikarnum í vikunni er Blikaliðið tilbúið í slag gegn Val í 7. umferð Bestu deildar karla. Keppnisleikir liðanna í öllum mótum eru alls 109 frá fyrsta leik í 2. umferð Bikarkeppni KSÍ á gamla Melavellinum árið 1965
Sagan & Tölfræði
Keppnisleikir liðanna í öllum mótum eru alls 109 frá fyrsta leik í 2. umferð Bikarkeppni KSÍ á gamla Melavellinum árið 1965. Valur leiðir með 45 sigra gegn 41.
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 82 frá fyrsta leiknum árið 1971. Sá leikur var jafnframt fyrsti sigur Breiðabliks í efstu deild frá upphafi. Breiðablik var þá á sínu fyrsta ári í efstu deild og var heimavöllur liðsins á Melavellinum í Reykjavík á árunum 1971–1974. Leikurinn fór fram í 2. umferð Íslandsmótsins 6. júní 1971 og endaði með 2:0 sigri Blika. Mörkin skoruðu: Magnús Steinþórsson úr vítaspyrnu á 35. mínútu og Guðmundur Þórðarson á 55. mínútu. Sigurinn var því bæði fyrsti sigur Breiðabliks í efstu deild og mark Magnúsar fyrsta félagsins í efstu deild.
Í 42 heimaleikjum Vals gegn Breiðabliki frá 1971 leiðir Hliðarendaliðið með 19 sigra gegn 14.
En í 23 leikjum frá endurkomu Breiðabliks upp í efstu deild árið 2006 er það Breiðablik sem leiðir með 10 sigra gegn 8.
Í 8 leikjum - 3 leikir í úrslitakeppni og 5 leikir í hefðbundnu 22 leikja móti - leiðir Hliðarendaliðið með 4 sigra gegn 3. Liðin gerðu 1:1 jafntefli í úrslitakeppninni í fyrra.
Síðustu 5 leikir á Hlíðarenda í hefðbundnu 22 leikja móti:
Anton Ari Einarsson á að baki 36 meistaraflokksleiki með Valsmönnum og Aron Bjarnason á 21 leiki með Val sem lánsmaður frá Újpest.
Stuðningamaðurinn
SpáBliki leiksins gegn Val er fyrrum leikmaður Breiðabliks, núverandi þjálfari 2. fl. karla og uppalinn í Smáranum. Hann hefur búið alla tíð í Kópavogi, fyrir utan nokkur ár erlendis. Spáblikinn er með stórt Blikahjarta og þakklátur öllu Breiðabliksfólkinu í okkar samfélagi.
"Inngrip ritstjórnar. Ítarefni um feril Olivers Sigurjónssonar: Nú er ég hættur í fótbolta og Tíma Olivers hjá Breiðabliki lokið."
Oliver Sigurjónsson - Hvernig fer leikurinn?
2-1 fyrir Breiðablik. Ég held að þetta verði fram og til baka. Skemmtilegur leikur, þ.e.a.s. mikil barátta, tæklingar, færi, hiti og mörk á síðustu 15 mín leiksins. Viktor Karl skorar með því að skjóta boltanum í jörðina og upp eða skýtur í einhvern og inn. Kristinn Steindórsson verður auðvitað besti fótboltamaðurinn á vellinum og mun eiga second assist eða assist. Ég er mikið í tví tryggingum eins og þið lesið, þannig ég tek eina í viðbót og segi að Óli Valur eða Aron Bjarnason skora eitt mark Blika. Við stuðningsmenn Blika förum sáttir heim eftir alvöru baráttuanda hjá leikmönnum, þjálfurum og stuðningsmönnum.
SpáBlikinn Oliver Sigurjónsson og fjölskylda á góðum degi fyrir ekki alls löngu.
Dagskrá
Flautað verður til leiks á N1-vellinum Hlíðarenda kl.18:15 á sunnudagskvöld.
Miðasala á leikinn er á: Stubb
Nú fylkjum við liði og mætum öll saman á Hlíðarenda að öskra og syngja okkar menn áfram til sigurs!
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
PÓÁ
Klippur frá heimsókn okkar á Hlíðarenda í lok september í fyrra: