BIKARVIKAN
UPPHITUNARPARTÝ Í DAG
Við byrjum daginn saman í Þróttaraheimilinu áður en haldið er á völlinn. Húsið opnar kl. 16:00. Happy hour milli 16:00 - 17:00. Óli Kristjáns. Herra hnetusmjör. Knattþrautir. Brasserie Kársnes. Bæjarins beztu.
Afturelding - Breiðablik
Föstudagur 11. september
Laugardalsvöllur - kl. 19:00
Tryggðu þér miða á midasala.ksi.is eða í appinu.
Sjá einnig: Bikarvika Blika 2026 & Bikarúrslit 1971 - Bikarvika Blika 2026 & Bikarúrslit 2018 - Bikarvika Blika 2026 & Bikarmeistarar 2009
Fánaniðurtalning Hilmars Jökuls
Einn dagur í leik HÉR
Leikdagsfáni er HÉR
Sagan & Tölfræði
Innbyrðis keppnisleikir Aftureldingar og Breiðabliks eru 11 talsins: einn leikur í Bikarkeppni KSÍ 1993, 4 leikir í B-deild Íslandsmótsins árin 2002 og 2003, 4 leikir í vormótum og tveir leikir í Bestu deildinni árið 2025.
Fyrsti innbyrðis leikur liðanna var í 2. umferð Bikarkeppni KSÍ árið 1993 á Smárahvammsvellinum í Kópavogi. Blikar, þá í 2. deild, unnu Aftureldingu, þá í 4. deild, með tveimur mörkum gegn engu. Markahrókurinn Jón Þórir Jónsson skoraði bæði mörkin úr vítaspyrnum, sitt í hvorum hálfleik.
Í 11 leikjum liðanna í gegnum tíðina hefur vinningshlutfallið verið Blikum í vil: 9 sigrar, 1 sigur Aftureldingar og 1 jafntefli.
Leið liðanna á Laugardalsvöll 11.9.2026
Mynd: Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar, Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks, Aron Elí Sævarsson fyrirliði Aftureldingar og Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Breiðabliks.
Breiðablik
32 liða úrslit - Kormákur/Hvöt - Breiðablik 1-6
16 liða úrslit - Þróttur R. - Breiðablik 1-2
8 liða úrslit - Ægir - Breiðablik 0-3
Undanúrslit - Breiðablik - Víkingur R. 3-0
Afturelding
32 liða úrslit - Afturelding - Ýmir 6-1
16 liða úrslit - Afturelding - Njarðvík 5-2
8 liða úrslit - Afturelding - Stjarnan 3-1
Undanúrslit - Fylkir - Afturelding 1-1, 3-4 eftir vítaspyrnukeppni
Leikmannahópurinn
Í gegnum tíðina hafa nokkrir öflugir, uppaldir leikmenn Aftureldingar spilað með Breiðabliki. Efstan þeirra ber að nefna markvörðinn okkar Anton Ara Einarsson. Anton Ari er nú á sínu sjöunda keppnistímabili með Breiðabliki og hefur leikið 267 mótsleiki fyrir félagið.
Mynd: Kristinn Jónsson, Reynir Magnússon, Andri Rafn Yeoman, Kristinn Steindórsson árið 2009 / Andri Rafn Yeoman og Viktor Örn Margeirsson árið 2018.
Andri Rafn Yeoman er eini leikmaðurinn í núverandi leikmannahópi Breiðabliks sem tók þátt í bikarúrslitaleikjunum 2009 og 2018. Andri Rafn er meiddur og verður því ekki í leikmannahópnum í kvöld.
Kristinn Jónsson og Kristinn Steindórsson voru báðir í sigurliði Breiðabliks 2009, en voru ekki með félaginu árið 2018. Þá lék Kristinn Jónsson með KR og Kristinn Steindórsson með GIF Sundsvall.
Viktor Örn Margeirsson spilaði úrslitaleikinn 2018, en Davíð Ingvarsson og Aron Bjarnason voru ónotaðir leikmenn í hópnum í úrslitaleiknum gegn Stjörnunni sama ár.
Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.
Leikmannahópur Breiðabliks 2026
Dómarateymi leiksins
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson - Aðstoðardómarar: Birkir Már Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson - Varadómari: Gunnar Oddur Hafliðason - Varaaðstoðardómari: Guðmundur Ingi Bjarnason - Eftirlitsmaður dómara: Oddur Helgi Guðmundsson - Eftirlitsmaður leiks: Haraldur V. Haraldsson
/PÓÁ
Þetta gerðist í síðustu heimsók okkar manna á Laugardalsvöll