BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Stiklað á stóru í tilefni 75 ára afmælis Breiðabliks

12.02.2025 image

Stiklað á stóru í sögu upphafsára meistaraflokka Breiðabliks í knattspyrnu í tilefni 75 ára afmælis félagsins 12. febrúar 2025.

Í þessum pistli er stiklað á stóru í upphafsögu meistaraflokka Breiðabliks í knattspyrnu. Raktar eru helstu vörður í sögu knattspyrnudeildar til ársins 1975. 

- Ungmennafélagið Breiðablik, UBK, var stofnað 12. febrúar 1950 á fundi í  Kópavogsskóla.

- Knattspyrnudeildin var stofnuð 1957.

- Knattspyrnudeild Breiðabliks sendi fyrst lið til keppni í mfl karla í 2. deild árið 1957.

- Liðið var þáttakandi í UMSK móti 1957-1964 og vetarmóti KRH árið 1969.

- Breiðablik hefur tekið þátt í Bikarkeppni KSÍ óslitið frá upphafi þeirrar keppni árið 1960.

- Blikar hófu þáttöku í Litlu bikarkeppninni árið 1965.

- Meistaraflokkur karla í knattspyrnu sigraði í 2. deild árið 1970 og komst upp í efstu deild.

- Um 1968 var tekin upp skipuleg þjálfun í kvennaknattspyrnu á vegum deildarinnar.  Þjálfari var Guðmundur Þórðarson.  Stúlkurnar tóku skjótum framförum  og urðu Íslandsmeistarar í efstu deild árið 1977. Fyrsti landsleikur kvenna í knattspyrnu er merkilegur fyrir Breiðablik því félagið átti 8 leikmenn í liðinu. Leikið var við Skota og fór leikurinn fram í Skotlandi  20. sept. 1981. 

image

1972 Kvennalið Breiðabliks á fyrsta Íslandsmóti utanhúss. Aftari röð f.v.: Dóra Vilhelmsdóttir, Anna María Þórðardóttir, Rósa Á. Valdimarsdóttir fyrirliði, Þorbjörg Erlendsdóttir, Annar S. Ragnarsdóttir, Sigurbjörg Kristinsdóttir, Ingibjörg H. Halldórsdóttir og Ægir Guðmundsson þjálfari. Fremri röð f.v.: Margrét Þorsteinsdóttir, Guðlaug Þráinsdóttir, Matthildur Kristinsdóttir, Anna M. Ingófsdóttir, Bryndís Einarsdóttir og Guðný Pétursdóttir.

Sjá ítarefni um upphaf kvennalið Breiðabliks í knattspyrnu í pistli á blikar.is „Knattspyrna kvenna í 50 ár“ 26.ágúst 2022

Upphafsár knattspyrnunnar hjá Breiðabliki

Nokkrir sérvaldir punktar úr grein um upphaf knattspyrnunnar hjá Breiðabliki sem okkar maður Valdimar Fr. Valdimarsson skrifaði á sínum tíma, en Valdimar á að baki 157 leiki / 13 mörk með Breiðabliksliðinu á árunum 1976 til 1983.

"Á mínu æskuheimili kom ekki annað til greina en að ganga í Breiðablik þegar kom að hefja iðkun íþrótta. Þetta var upp miðjum sjötta áratug síðustu aldar og mér fannst lengi vel að saga félagsins hafi hafist með komu minni. Lítið vissi maður um þá merkilegu sögu sem félagar í Breiðablik höfðu skapað og voru að skapa á fyrstu árum mínum í félaginu alveg án þess að ég kæmi þar nærri. Ég ætla að reyna að segja þá sögu frá stofnun félagsins og fram til 1980."

Félagið fékk árið 1953 úthlutað svæði á horni Kópvogsbrautar og Urðarbrautar. Svæðið er þekkt sem Vallargerðisvöllur og hefur frá upphafi verið malarvöllur. Völlurinn var tekinn formlega í notkun árið 1954 og hófu félagar í Breiðabliki með aðstoð bæjarins að byggja baðhús.

Fram til ársins 1957 starfaði félagi sem einn deild en þá var tekin upp deildaskipting, stofnaðar voru fjórar deildir, knattspyrnudeild, handknattleiksdeild, frjálsíþróttadeild og skák- og bridgedeild.

VALLARGERÐISVÖLLUR

"Um langt skeið hefur Vallargerðisvöllur staðið að mestu ónotaður í kjölfarið á glæsilegri uppbyggingu íþróttamannvirkja í Kópavogi. Góðu heilli þá slapp hann við að verða fórnarlamb uppbyggingarnar í góðærinu og enda ævi sína sem byggingarlóð, Hann stendur því enn á sínum stað sem minnismerki um glæsta fortíð og sinni skólabörnum Kársnesskóla. Hann er líka til merkis um það frumkvöðlastarf sem íbúar Kópavogs lögðu á sig við uppbyggingu vallarins, Þessi íbúar börðust fyrir þvi að fá svæði til íþróttaleikja og lagði á sig ótrúlegustu hluti og mikla vinnu til þess að svo mætti verða... þetta myndband er þeirra saga.

Heisi Heison"

Fyrsti mótsleikur

Fyrsti mótsleikur okkar manna var í  2. Deild. Leikið var gegn Þrótti á Melavellinum föstudaginn 7. júní 1957. Leikurinn fór 1-0 fyrir Þrótti. 

07.06 18:00
1957
Breiðablik
Þróttur
0:1
5
5
B-deild | riðill
Melavöllur | #

Árin 1958 og 1959 var einungis 3. flokkur var sendur til keppni á Íslandsmóti og stóðu drengirnir sig  prýðilega unnu KR og gerðu jafntefli við Val. Áhuginn var mikill því þegar unglinganefnd KSÍ hélt kynningarfund um knattþrautir í félagsheimili Kópavogs 2. nóvember 1959 mættu um 90 drengir.  Eftir fundinn kom fram hjá formanni Breiðabliks að aðstaðan væri ekki góð en verið væri að reyna að fá að vera á flötum skammt frá malargryfjunum í Fífuhvammi, þar sem Smárahvammsvöllur er. Einnig að ákveðið væri að framtíðarleikvöllur bæjarins yrði sunnan Hvammslækjar og austan Hafnarfjarðarvegar.  Af þessu má draga þá ályktun að fólkið sem stýrði Breiðablik og stjórnmálamenn í hinum unga bæ hafi snemma farið að huga að því að hafa íþróttasvæði þar sem höfuðstöðvar Breiðabliks eru núna.

image

Mynd af Breiðablikssvæðinu tekin 2017.

Uppgangur knattspyrnunnar

Knattspyrnan í Kópavogi efldist með bættri vallaraðstöðu. Á árunum 1963-1964 var ráðist í það að hækka Vallargerðisvöllinn og leggja nýtt leirkennt malarlag.

Völlurinn var tekinn í notkun 13. júní 1964 með leik Breiðabliks og  FH sem fór 1-1 og gerði Jón Ingi Ragnarsson mark Blika í leiknum. 

13.06 18:00
1964
Breiðablik
FH
1:1
4
6
B-deild | A-riðill
Vallargerðisvöllur | #

Árið 1966 sendi knattspyrnudeildin í fyrsta skipti lið í öllum flokkum til þátttöku í Íslandsmóti. 

Sumarið 1970 voru gerðar endurbætur á Vallargerðisvelli.  Hann var girtur af, breikkaður og gerður að löglegum keppnisvelli.  Áhorfendasvæði var enn of lítið og því lék liðið heimaleiki á Melavellinum í Reykjavík næstu ár. 

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu sigraði í aðra deildina árið 1970 og komst upp í efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Guðmundur Þórðarson var markahæsti leikmaður 2. deildar með 16 mörk og var valinn í landsliðið. 

image

Breiðabliksliðið sem vann 2. deildina 1970

Efri röð frá vinstri: Þór Hreiðarsson, Magnús Steinþórsson, Ríkharð Örn Jónsson, Helgi Helgason, Einar Þórhallsson, Guðmundur Þórðarson, Haraldur Erlendsson. Fremri röð frá vinstri: Heiðar Breiðfjörð, Guðmundur H. Jónsson, Trausti Hallsteinsson, Gissur Guðmundsson, Gísli Sigurðsson og Daði Jónsson.

1971

Meistaraflokkur karla hélt sæti sínu í efstu deild árið 1971.  Þrátt fyrir hrakspár fjölmiðla var liðið aldrei í neðsta sæti yfir sumarið.  Glæstur árangur náðist í bikarkeppni KSÍ en liðið spilaði til úrslita um bikarinn við Víking og fór leikurinn 1-0 fyrir Víking.

09.11 00:48
1971
Víkingur
Breiðablik
1:0
5
4
Bikarkeppni KSÍ | Úrslitaleikur
Melavöllur | #

Enn voru gerðar endurbætur á Vallargerðsvelli veturinn 1972-1973 þegar sett voru flóðljós til að hægt væri að nota völlinn í skammdeginu. Flóðljósin voru vígð 15. mars 1973.

Vallargerðisvöllur var aðalíþróttasvæði bæjarins fram til ársins 1975 er Kópavogsvöllur var tekinn í notkun 7. júní 1975 með leik Breiðabliks - Víkings Ólafsvík í næst efstu deild karla (2. deild).

image

Mynd frá vígsluleik Kópavogsvallar 1975

Frá vinstri: Sveinn Skúlason, Kristján Þorvaldz, Gísli Sigurðssion, Ríkharð Örn Jónsson, Heiðar Breiðfjörð, Kormákur Bragason, Bjarni Bjarnason, Ólafur Friðriksson, Þór Hreiðarsson, Hinrik Þórhallsson, Gunnlaugur Helgason, Hörður Harðarson, Einar Þórhallsson, Ólafur Hákonarson og Haraldur Erlendsson fyrirliði.

Ein stærsta stundin í sögu knattspyrnudeildar

Ein stærsta stundin í sögu knattspyrnudeildar var 12. ágúst 1974 þegar 5.,4., og 3. flokkar karla urðu allir Íslandsmeistarar á Melavellinum.

image

Íslandsmeistarar 3. fl. 1974

Efsta röð f.v.: Hákon Gunnarsson, Einar Guðlaugsson, Rúnar Guðmundsson, Tómas Þór Tómasson, Sigurjón Rannversson, Kjartan Árnason. Miðröð f.v.: Ásgeir Þorvaldsson þjálfari, Jón Orri Guðmundsson, Ingvar Teitsson, Kristján Gunnarsson, Andrés Kristjánsson, Pálmar Breiðfjörð, Guðni Stefánsson formaður. Fremsta röð f.v.: Páll Kristinsson, Ólafur Björnsson, Valdimar Valdimarsson fyrirliði, Theodór Guðfinnsson, Vilmar Pétursson.

image

Íslandsmeistarar 4. fl. 1974

Efsta röð f.v.: Gissur Guðmundsson þjálfari, Halldór Eiríksson, Jóhann Grétarsson, Jóhann Jóhannsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson, Halldór Sigurbjörnsson, Guðmundur Halldórsson. Miðröð f.v.: Guðni Stefánsson formaður, Guðmundur Þorkelsson, Árni Dan Einarsson, Guðmundur Agnar Kristinsson, Sigurður V. Halldórsson, Jóhann Baldurs, Valdimar Kr. Valdimarsson. Neðsta röð f.v.: Benedikt Þór Guðmundsson, Páll Ævar Pálsson, Birgir Teitsson, Þorsteinn Hilmarsson fyrirliði, Sveinn Ottóson, Þórir Gíslason. Á myndina vantar Bjarna Sigurðsson.
 

image

Íslandsmeistarar í 5. flokki árið 1974

Efri röð frá vinstri: Guðni Stefánsson formaður knattspyrnudeildar, Heiðar Heiðarsson, Vilhjálmur, Helgi Bentsson, Óskar Friðbjörnsson, Sigurður Grétarsson, Aðalsteinn Jónsson, Júlíus Hafsteinsson, Jón Magnússon, Guðmundur Þórðarson þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Friðgeir Guðmundsson, Birgir Árnason, Trausti Ómarsson, Sigurjón Kristjánsson, Birgir Mogensen, Sigtryggur Baldursson, Þórður Davíðsson og Ingvaldur Gústafsson. 

Guðmundur Þórðarson

Mátaði heimsmeistara í skák og markverðirnir verða ósjaldan mát

Í viðtali við Guðmund Þórðarson sem birtist í Tímanum sunnudaginn 26. ágúst 1973 undir fyrirsögninni „Mátaði heimsmeistara í skák og markverðirnir verða ósjaldan mát“ rifjar Alfreð Þorsteinsson blaðamaður upp erfiða baráttu Blikamanna við að komast upp úr 2. deildinni á arunum 1965-70.

Ár tára og vonbrigða

Já, víst var hún erfið gangan upp í 1. deild, vonbrigðin of mikil og stundum féllu tár. En þeir, sem fylgdust með Breiðabliks-liðinu á árunum 1965-70, gátu ekki annað en dáðst að þrautsegu og dugnaði Blikanna. Öll þessi ár voru þeir meðal efstu liða í 2. deildar.

Til að mynda 1966, er þeir léku úrslitaleik gegn Fram á Laugardalsvellinum, en töpuðu með þriggja marka mun.

Síðar barátta við Vestmannaeyjinga. Og 1969 stóðu þeir ekki aðeins einu sinni, heldur tvisvar, á þröskuldi 1. deildar. Þeir léku úrslitaleik gegn Víkingi og höfðu tryggt sér tveggja marka forskot í hálfleik. Var allt útlit fyrir, að Breiðablik myndi nú loks hreppa það sæti, sem liðið hafði svo lengi keppt að. En síðari hálfleikurinn, og ekki sízt framlenging leiksins, varð martröð fyrir Blikana. Víkingur skoraði fljótlega í síðari hálfleiknum og tókst að jafna, þegar mokkrar mínútur voru til leiksloka. Var leikuinn framlengdur, og átti Breiðablik mun meira í leiknum. En hamingjusísirnar voru þeim ekki hliðhollar. Á síðustu mínútu var dæmd vítaspyrna á Breiðablik. Dómarinn sýndist sem Logi markvörður Kristjánsson gripi um fætur Gunnars Gunnarssonar í Víkingi. Flautan gall við, dómarinn benti á vítapunkt. Víkingar framkvæmdu spyrnuna, og nú virtust hamingjudísirnar hliðhollar Breiðabliki, því knötturinn small í þverslá og hafnaði í fangi Loga markvarðar, sem ekki var seinn á sér og spyrnti knettinum frá marki. En Adam var ekki lengi í Paradís. Línuvörðurinn veifaði fána sínum og gaf til kynna, að knötturinn hefði farið inn fyrirlínu. Dómarinn samsinnti – staðan 3:2 – og leiktíminn útrunninn.

Síðar um sumarið fékk Breiðablik annað tækifæri til að öðlast sæti í 1. deild. Fjölgað var í 1. deild og heyja varð aukaleik um nýja sætið. Var ákveðið, að lið númer 2 í 2. deild, Breiðablik, léki gegn því liði, sem varð í neðsta sæti í 1. deild. Akureyri. Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli en síðari leikinn unnu Akureyringar. Þar með var 1. deildar draumurinn búinn – í bili.

image

Vallargerðisvöllur 1970. Á mynd Guðmundur Þórðarson, Ríkharð Örn Jónsson og Einar Þórhallsson í undirbúningi hornspyrnu.

Með fljúgandi byr inn í 1. deild

En öll él birtir upp um síðir. Árið 1970 var Breiðabliksár. Nú var 2. Deildinni ekki skipt niður í tvo riðla eins og verið hafði heldur var keppt í einum riðli.

Enginn vafi lék á því að Breiðablik var langsterkasta lið 2. deildar þetta ár. Sigur liðsins var aldrei í hættu. Og Guðmundur Þórðarson var sannarlega í essinu sínu þetta árið. Í næstum öllum leikjum liðsins skoraði hann mörk, og þegar upp var staðið, var hann markhæsti maður 2. deildar, hafði skorað samtals 16. mörk.

Litla bikarkeppnin

Ekki er hægt að fjalla um upphafsár meistarflokks karla í knattspyrnu án þessa fjalla aðeins um Litlu bikarkeppnina (Litla bikarinn).

Litla bikarkeppnin hófst árið 1961. Aðal hvatamaður að stofnun Litlu bikarkeppninnar var Albert Guðmundsson. Mótið var hugsað sem æfingamót fyrir utanbæjarliðin til jafnvægis við Reykjavíkurmótið.Leikin var tvöföld umferð með einhverjum undantekningum. Fyrstu fjögur árin 1961-1964 voru þetta 4 lið: Keflavík, Akranes og KRH/ÍBH (Knattspyrnuráð Hafnarfjarðar/Íþróttabandalag Hafnarfjarðar). Breiðablik bætist í hópinn árið 1965. Þannig er svo fyrirkomulag keppninnar næstu 10 árin. Árið 1976 verða liðin 5 þegar í FH og Haukar mæta til leiks sem sitt hvort liðið, en ekki undir merkjum KRH/ÍBH. Þetta 5-liða fyrirkomulagið varði næstu 12 árin. Þegar Selfyssingar, Stjörnumenn og Víðismenn bætast við árið 1987 eru liðin orðin 8. Tekin er upp einföld umferð og riðlaskipting. Árið 1993 eru þáttökulið orðin 12 þegar Grindavík, ÍBV, HK og Grótta bætast við. Undir lok 34 ára sögu Litla bikarsins (Litlu bikarkeppninnar) árið 1995 voru þáttökuliðn orðin 16: Afturelding, Breiðablik, FH, Grindavík, Grótta, Haukar, HK, ÍA, ÍBK, ÍBV, Reynir, Selfoss, Skallagrímur, Stjarnan, Víðir og Ægir.  Síðasta árið (1995) var leikið í 4 riðlum frá 20.apríl til 1.maí. 8-liða úrslit fór fram dagna 4. og 5. maí. Undanúrslit 9. maí. Úrslitaleikurinn 13. maí 1995.

Afmæliskveðja frá formanni Breiðabliks

Kæru félagsmenn Breiðabliks,

Breiðablik fagnar 75 ára afmæli í dag. Þeim framtakssömu einstaklingum sem stofnuðu félagið hefur án efa ekki órað fyrir því hvað þetta litla ungmennafélag í litlu en vaxandi bæjarfélagi gæti vaxið mikið og dafnað á þessum 75 árum. Breiðablik hefur vaxið og dafnað bæði á íþróttasviðinu og sem samfélag. Núna stunda um fjögur þúsund einstaklingar íþróttir undir merkjum Breiðabliks í 13 deildum. Smárinn og Fífan fá um eina milljón heimsókna á hverju ári og þá eru ekki taldar snertingar þeirra sem stunda íþróttir á vegum Breiðabliks í öðrum íþróttamannvirkjum. Við sinnum ungum sem öldnum allt frá íþróttaskóla barna til eldri borgara leikfimi og með öflugt æskulýðs- og afreksstarf þar á milli.

Breiðablik er einstakt félag og sameiningartákn fólks sem kemur saman til að æfa og keppa í íþróttum og njóta félagsskapar. Félagið á ríkan sess í hjörtum fólks sem upplifir gleði í sigrum og sorg í ósigrum. Íþróttafólk félagsins hefur unnið fjölmarga titla bæði hérlendis og erlendis. Við höfum verið sigursæl í nánast öllum íþróttagreinum sem við keppum í og í fremstu röð á flestum sviðum. Þá er félagið orðið vel þekkt víða um heim fyrir þátttöku og góðan árangur okkar fólks í Evrópukeppnum og öðrum alþjóðlegum mótum.  Á íþróttahátíð Breiðabliks nú í byrjun janúar verðlaunuðum við okkar besta afreksfólk, og bar þar hæst heimsmeistara- og Evrópumeistaratitlar Sóleyjar Margrétar Jónsdóttur í kraftlyfingum og Íslandsmeistaratitlar í knattspyrnu kvenna og karla svo fátt eitt sé nefnt af frábærum árangri sem okkar fólk hefur náð.

Þrátt fyrir að við fögnum góðum árangri þá er það sem skiptir mestu máli í starfi félagsins að byggja upp góða einstaklinga og bæta samfélagið okkar. Þar tel ég að vel hafi til tekist og vil nota tækifærið til að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til að gera Breiðablik að því sem það er í dag. Iðkendur, þjálfarar, sjálfboðaliðar, stuðningsmenn og allir félagsmenn – án ykkar væri þetta ekki mögulegt. Sérstaklega vil ég þakka þeim sem hafa verið með frá upphafi og hafa séð félagið vaxa og þróast í gegnum árin.

Stjórn Breiðabliks hefur ákveðið að skrásetja sögu félagsins og kemur frumkvæði af því frá Andrési Péturssyni sem mun stýra því verkefni ásamt ákaflega vel skipuðum ráðgjafahóp sem nú þegar hefur tekið til starfa. Áformað er að saga Breiðabliks komi út á 80 ára afmæli félagsins árið 2030.

Ákveðið hefur verið að halda upp á 75 ára afmæli Breiðabliks með afmælishátíð í Smáranum þann 10. maí næstkomandi og vonast ég til að sjá ykkur sem flest þar.

Framtíðin er björt fyrir Breiðablik. Við höfum sterkan grunn til að byggja á og ég er fullviss um að við munum halda áfram að vaxa og ná nýjum hæðum. Við skulum halda áfram að vinna saman, styðja hvert annað og hjálpast að við að ná árangri innan sem utan vallar.

Til hamingju með daginn kæru Blikar,

Með Blikakveðju,

Ásgeir Baldurs

Formaður Breiðabliks

Ítarefni

Leikir mfl kvk 1972 - 2025

Leikir mfl kk 1957 - 2025

Íslandsmeistarar 2024

Knattspyrna kvenna í 50 ár

50 marka klúbburinn

Sagan: 2022 - 2021 - 2018 - 1994 - 1993 - 1992 - 1991

Fréttir kvk 2025 - 2024

Fréttir kk 2025 - 2024

/PÓÁ

image

Til baka