Birt með góðfúslegu leyfi Víðis Sigurðssonar....

Kristófer Ingi Kristinsson sóknarmaður Breiðabliks (Knattspyrnudeild Breiðabliks) skoraði fyrsta mark Íslandsmóts karla í knattspyrnu árið 2026 í kvöld.

Hann kom Blikum yfir gegn Íslandsmeisturum Víkings strax á 5. mínútu í leik liðanna sem hófst í Fossvoginum klukkan 19.15 og er upphafsleikur tímabilsins.

Kristófer er aðeins fjórði leikmaður Breiðabliks í sögu efstu deildar sem skorar fyrsta mark tímabils, en þetta er samt annað árið í röð sem þeir grænklæddu komast fyrstir á blað í deildinni.

Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Breiðabliks skoraði fyrsta mark Íslandsmótsins 2025, gegn Aftureldingu, úr vítaspyrnu strax á 7. mínútu, en Breiðablik vann þá nýliða Aftureldingar 2-0 í fyrsta leik deildarinnar á Kópavogsvelli.

Þá voru liðin sautján ár frá því leikmaður Kópavogsliðsins skoraði fyrstur en vorið 2008 skoraði hollenski framherjinn Prince Rajcomar fyrsta mark mótsins fyrir Breiðablik gegn ÍA á Akranesvelli en sá leikur endaði 1-1. Rajcomar lék með Blikum í tvö ár og síðan með KR í eitt ár en hann skoraði 15 mörk í 49 leikjum fyrir félögin í úrvalsdeildinni.

Þar áður hafði aðeins einn Bliki afrekað það að skora fyrstur á Íslandsmótinu. Sævar Pétursson (Saevar Petursson), núverandi framkvæmdastjóri KA, skoraði fyrsta mark mótsins árið 1996, fyrir Breiðablik gegn Fylki á Kópavogsvellinum. Það mark dugði skammt því Fylkismenn skoruðu sex mörk í seinni hálfleik og sigruðu 6-1. Um haustið féllu liðin saman úr deildinni.

Mark Kristófers er hans tólfta mark í 47 leikjum í efstu deild fyrir Breiðablik. Hann lék áður í Hollandi, Danmörku og Frakklandi og hóf meistaraflokksferilinn 18 ára gamall með Willem II í hollensku úrvalsdeildinni, eftir að hafa farið þangað kornungur frá Stjörnunni.

Hinir fimm leikirnir í fyrstu umferð Bestu deildarinnar fara allir fram á sunnudaginn.