S
Breiðablik
2 1
Keflavík
A-deild 14. umferð Eikarvöllurinn 13.07.2026
26
2
11

Það var rigningarsuddi og sunnangola mánudagskvöldið 13. júlí á Kópavogsvelli þegar Breiðablik mætti liði Keflavíkur í 14. umferð bestu deildarinnar 2026.  Kópavogsvöllur var vígður árið 1975 í Smáranum en þau tíðindi bárust fyrir hálfum mánuði að eftir rúmlega hálfrar aldar nafngift var tekin ákvörðun um að breyta nafninu á Kópavogsvelli. Núna fer maður ekki lengur á heimaleiki æskufélagsins sem hefur borið tignarheitið „Kópavogsvöllur“ – heldur heitir hann núna „Eikarvöllurinn“.

Maður þarf eiginlega langt tilhlaup til að venjast þessari breytingu. Ég spurði einn Breiðabliksfélaga minn og gamlan samherja í Blikaliðinu hvað honum þætti um þessa ákvörðun.  Svarið var eftirminnilegt:   „Heilinn á mér á eftir að venjast þessu af hreinum praktískum ástæðum.  Við búum í kapítalísku samfélagi þar sem peningar ráða för.  En  Breiðablikshjartað er ekki sátt – allavega ekki ennþá.“ 

Pistlahöfundur tekur undir þetta sjónarmið.  Þetta er eflaust óþarfa viðkvæmni okkar sem eldri erum, þróunin er í þessa átt mjög víða. Það má líka hugga sig við að nýja nafnið ber heiti fagurrar plöntu og fer ágætlega í íslensku máli.  Við megum þakka fyrir að Kópavogsvöllur heiti ekki í höfuðið á Samsung, Origo eða Blush! 

Keflavík er verðugur andstæðingur

Eins og kemur fram í prýðis samantekt á blikar.is þá er Keflavík sá andstæðingur sem Breiðablik hefur oftast leikið gegn frá því að Breiðablik byrjaði að keppa í fótbolta árið 1957, eða alls 135 mótsleiki. Sjá hér  Við gerðum jafntefli við Keflavik í fyrri umferðinni á grasinu í Reykjanesbæ í markalausu jafntefli þann 22 apríl. Menn voru ósáttir við þau úrslit og leikurinn ekki mikið fyrir augað.  Albert Brynjar Ingason í Stúkunni sagði að það hafi verið tvö ánægjuleg augnablik í þeim leik.  Fyrst þegar flautað var til hálfleiks – og síðan aftur þegar lokaflautið kom. 

Reyndar hefur komið á daginn að Keflavik – sem var spáð neðsta sætinu af sérfræðingum fyrir mótið hefur komið á óvart í sumar og er vel samansett lið.  Þeir hafa líka verið lánsamir með útlendinga og hafa náð góðum leikjum og Suðurnesjamenn eru sáttir við spilamennsku liðsins.  

Byrjunarliðið í fyrsta opinbera leik Breiðabliks á Eikarvellinum var þannig: 

Anton í markinu og miðverðirnir þrír aftastir, Ívar Örn, Viktor Örn og Ásgeir Orri.  Á vængjunum Davíð Ingvarsson og  Ágúst Orri.  Fyrirliðinn Viktor Karl, Arnór Gauti, Jónatan Guðni og Gabríel á miðjunni.  Fremstur var svo hinn 15 ára Arnar Bjarki Gunnleifsson. 

Strax í upphafi stýrðu Blikarnir leiknum og Anton Ari tók ekki boltann með höndum fyrr en á 18. mínútu sem segir mikið.  En fótbolti snýst ekki um hversu mikið þú heldur boltanum innan liðsins – XG tölfræði og slíkt.  Það var ekki mikil ógnun í leik Blikanna og litlir tilburðir til að skapa verulega hættu.  „Er Breiðablik alveg hætt að sækja hratt fram á við“ spurði hinn hægláti Kristján Björnsson múrarameistari en hann hefur séð nánast alla heimaleiki Breiðabliks í marga áratugi.  Ásgeir Helgi átti reyndar gott skot sem var varið og Jónatan gerði tilkall til að fá víti á 7. mínútu sem var hunsað af dómaranum.  Það var því eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar Keflavík skorar fyrsta mark leiksins með skoti fyrir utan vítateig.  Þarna átti vörnin að gera betur.  8 mínútum síðar skora síðan Keflvíkingar aftur – en það er dæmt af vegna rangstöðu.  Til allrar hamingju hefur VAR tæknin ekki verið innleidd á Íslandi því frá mínum bæjardyrum séð var þetta löglegt mark, þó afar ósanngjarnt hefði það verið. Keflavík sótti talsvert það sem eftir var hálfleiks en markalaust var í leikhléinu.  

Tvö þúsund leikja reynsla fjarverandi

Menn voru alls ekki  nógu sáttir í hálfleik í Blikakaffinu. Reyndar voru menn samt afslappaðir og ég heyrði að Willum Þór forseti ÍSÍ og Pétur Már Ólafsson bókaútgefandi og pistlahöfundur hér á þessari síðu ræddu mest um vel heppnað Landsmót hestamanna í Skagafirði í síðustu viku. Það var áhugavert að einn fór að rifja upp mikla fjarveru  fjarveru lykilleikmanna úr byrjunarliðinu.  Andri Rafn Yeoman, Höskuldur Gunnlaugsson, Kristinn Jónsson, Aron Bjarnason, Anton Logi Lúðvíksson, Kristófer Ingi Kristófersson, Óli Valur Ómarsson, Valgeir Valgeirsson og Kristinn Steindórsson.  Þessir 9  leikmenn eiga samanlagt 2.004 leiki með Breiðabliki samkvæmt upplýsingum á blikar.is.  Var einhver að tala um leikreynslu?   Reyndar voru 3 þeirra á varamannabekknum og Kristinn Steindórsson fékk blómvönd frá Flosa formanni fyrir leikinn en hann á núna 350 leiki með Breiðablik.  Sjá hér  Bæði Kristinn Jónsson og Anton Logi komu eftirminnilega við sögu í síðari hálfleik.  Ástæður fyrir fjarveru eru meiðsli og þetta hefur gert verkefni Ólafs Inga flóknari en allir ætluðu.

Allir hafa þessir leikmenn hafa verið reglulegir kandidatar í byrjunarliði Breiðabliks. Ef einhver hefði sagt Ólafi Inga þjálfara að í mikilvægum leik um miðjan júlí ætti hann ekki kost á því að velja neinn af þessum leikmönnum í byrjunarliðið í mikilvægan leik í Bestu deildinni held ég að hann hefði gert einhverjar ráðstafanir.  Til dæmis fengið til liðsins útlendinga sem hefur verið hefð fyrir hjá Breiðablik frá árinu 2010.  En það var ekki gert.  Í staðinn hefur Ólafur gefið ungum og uppöldum leikmönnum tækifæri – og þeir hafa gripið það og sýnt úr hverju þeir eru gerðir, ekki síst í síðustu leikjum.  Af þeim 15 leikmönnum sem tóku þátt í leiknum gegn Keflavík voru 11 sem eiga Breiðablik sem uppeldisfélag. Tölfræði sem þessi er mjög sérstök á Íslandi í efstu deild, hvað þá í útlöndum.  

Víðir Sigurðsson er sennilega mikilvirkasti og öflugasti íþróttafréttamaður landsins.  Megas (blessuð sé minning hans)  myndi sennilega hafa kallað hann „óljúgfróðan“ mann um allt sem snertir íslenska knattspyrnu.  Ég spurði Víði í vikunni hvenær það hafi gerst síðast að lið í efstu deild hafi ekki haft neinn útlending á sínum snærum – en það er einmitt staðan hjá Breiðablik 2026. Hann mundi eingöngu eftir að hans félag – HK var ekki með neinn erlendan leikmann árið 2019 – en gat ekki nefnt neitt annað félag. Þetta er afar áhugavert efni fyrir knattspyrnunörda að velta sér upp úr.  

Viðsnúningur í síðari hálfleik

Keflavík byrjaði síðari hálfleik af miklum krafti og sköpuðu hættu en Blikar stóðust áhlaupið og sóttu smám saman í sig veðrið. Þó verður að segjast að jöfnunarmark Breiðabliks á 57. mínútu hafi komið upp úr þurru. Davíð átti lúmska sendingu á Jónatan utarlega vinstra megin.  Hann á fantagóðan snúning í vítateignum og skrúfar hann í hægra hornið fjær.  Þetta var virkilega vel gert og fyrsta mark Jónatans Guðna fyrir Breiðablik staðreynd.

Gat ekki komið á betri tíma. Kristinn Jónsson og Dagur Örn Fjeldsted komu inn á 60. mínútu fyrir þá Viktor Karl og Davíð Ingvarsson.   Á 70 mínútu kemur Þór Andersen Willumsson inn fyrir markaskorarann Jónatan og sókn Blika þyngdist.   Svo virtist sem farið var að draga af Keflvíkingum og á 83. Mínútu er Anton Loga Lúðvíkssyni skipt inn á fyrir Gabríel Snæ.  Eftir innkomu Antons virtist sem vörn Keflvíkinga riðlaðist verulega og Blikarnir spiluðu virkilega vel og það var Anton Logi sem leiddi þá spilamennsku með hugmyndauðgi og þeirri yfirburða tækni sem hann býr yfir.  Það myndi styrkja liðið mikið ef hann nær fullri leikgetu, algerlega magnaður spilari.  Það hlaut eitthvað að bresta.  Á 89. mínútu  fær Dagur Fjeldsted boltann eftir samspil við Anton Loga hægra megin.  Sending hans er góð en fer í gegnum þvöguna og boltinn berst til Kristins Jónssonar, og sá reynslumikli leikmaður (hann lék fyrst með Breiðablik árið 2007!) gerði engin mistök. Hárnákvæmt viðstöðulaust skot hans fór í hliðarnetið fjær og fögnuðurinn á Eikarvelli var mikill hjá okkur stuðningsmönnum. Reyndar hafði Páll Einarsson sá ágæti þjálfari 2. flokks karla sagt mér í hálfleik að endurkomusigur myndi vinnast í þessum leik.

Ásgeir Helgi Orrason var kjörinn maður leiksins.  Hann á það fyllilega skilið. Það er magnað hvað Ásgeir hefur komið sterkt inn í liðið og fyllt skarð Damir Muminovic í vörninni afar vel.  

Kaplakriki næst

Næsti leikur Breiðabliks verður mánudaginn 20 júlí gegn FH í Kaplakrika.  Það verður hörkuleikur og við ætlum okkur sigur þar.  FH hefur ekki gengið vel í ár en vann þó sterkan sigur á Val í þessari umferð.  Það er alltaf gaman að fara í Krikann og Blikar eru hvattir til að fjölmenna.   

Hákon Gunnarsson