Snillingurinn Damir Muminovic hefur skrifað undir samning við Breiðablik og mun því ganga aftur til liðs við Íslandsmeistarana eftir hálfs árs dvöl hjá DPMM FC í Brúnei.

Damir, sem er 35 ára gamall, er næst leikjahæsti leikmaðurinn í sögu Breiðabliks með 388 mótsleiki og 18 mörk, þar af 229 leiki og 12 mörk í efstu deild á Íslandi. 

Damir spilaði stóran þátt í Íslandsmeistaratitlunum 2022 og 2024. Hann var einnig hluti af Breiðabliksliðinu sem tryggði sér þátttökurétt í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu, fyrst íslenskra liða.

Velkominn heim í Kópavoginn, Damir!

FERILL

Damir byrjaði meistaraflokksferilinn hjá HK árið 2007 þá 17 ára gamall:

Heildarleikjafjöldi

Eftir veruna í Asíu, þar sem Damir spilaðu 14 leiki í deild og 6 í bikar, er heildarleikjafjöldi Damirs nú 571 leikir í öllum mótum með fjórum íslenskum liðum og einu erlendu liði.

Leikjafjöldi Damirs skiptist svona: A-deild: 281. B-deild: 36. C-deild: 9. D-deild: 25. Bikarkeppni: 43. Deildabikar: 101. Reykjavíkurmót: 3. Meistarkeppni: 2. Evrópuleikir: 37. Vormót: 34.

Samtals: 571 mótsleikir. 

A-landsleikir Damirs eru 6. 

Ferill með Blikum

Viðurkenning 2024: 350 mótsleikir með Breiðabliki

Viðurkenning 2022: 300 mótsleikir með Breiðabliki

Viðurkenning 2021: 250 mótsleikir með Breiðabliki

Viðurkenning 2019: 200 mótsleikir með Breiðabliki

Viðurkenning 2018150 mótsleikir með Breiðabliki

Viðurkenningarskjal 2017: 100 mótsleikir með Breiðabliki

Grafík: haxx.design
Grafík: haxx.design