Það má búast við hörkuleik í Krikanum á mánudaginn. Bæði lið mæta til leiks full sjálfstrausts eftir sterka sigra í síðustu umferð. Blikar hafa náð ágætum árangri í Krikanum allt frá fyrsta leik liðanna í efstu deild. Í 33 leikjum frá 1976 hafa heimamenn þó yfirhöndina - með eins leiks mun.

Miðasala á leikinn er á Stubb. 

Fyrri leik liðanna í Bestu í Kópavogi í byrjun maí lauk með gallsúru 3:3 jafntefli. Nánar um þann leik hér. 

Ungu leikmennirnir okkar hafa heldur betur stigið upp undanfarnar vikur og skorað mikilvæg mörk þegar á hefur reynt.

Vonandi er farið að sjá fyrir endann á meiðslavandræðum leikmanna og við sjáum menn koma til baka fyrir leikinn mikilvæga gegn FH.

Hlynur Freyr Karlsson (2004) gæti tekið sín fyrstu Blikaskref síðan 2020 þegar flautað verður til leiks í Kaplakrika á mánudaginn.

Óli Skúla og þjálfarateymið hafa þurft að kafa djúpt í hópinn og gera breytingar sem hafa skilað bæði mörkum og sigrum

  • Til dæmis opnaði Arnar Bjarki Gunnleifsson (2010) markareikning sinn þegar hann gulltryggði sigur Blika á KA á heimavelli.

  • Á Akranesi kom svo annar ungur leikmaður, Þór Andersen Willumsson (2009), inn á á 77. mínútu og tryggði Blikum sigur á 85. mínútu eftir frábæra stoðsendingu frá manni leiksins, Degi Erni Fjeldsted (2006).

  • Í leiknum gegn Keflavík var það svo 290 leikja maðurinn og reynsluboltinn - Kristinn Jónsson - sem kom inn á á 60. mínútu og skoraði sigurmarkið á 89. mínútu. Þar á undan hafði Jónatan Guðni Arnarson (2007) jafnað í 1:1 með sínu fyrsta marki í efstu deild í sínum fyrsta byrjunarliðsleik með Breiðabliki.

  • Og í undanúrslitum bikarsins gegn Víkingum kom Gabríel Snær Hallsson (2007) inn á í hálfleik og þakkaði traustið með fyrsta marki leiksins á 77. mínútu.

Reynslumeiri leikmennirnir draga vaginn.

Þrátt fyrir frábæra innkomu ungu leikmannanna eru það þó reynslumeiri leikmennirnir sem hafa dregið vagninn í fyrstu 14 umferðunum og skorað 27 af 34 mörkum liðsins. Fyrstu 11 í síðustu 14 umferðum eru (%=mínútur): Anton Ari Einarsson (100%) – Ágúst Orri Þorsteinsson (90%) – Ívar Örn Árnason (87%) – Viktor Karl Einarsson (83%) – Davíð Ingvarsson (78%) – Óli Valur Ómarsson (78%) – Ásgeir Helgi Orrason (77%) – Viktor Örn Margeirsson (66%) – Kristófer Ingi Kristinsson (63%) – Aron Bjarnason (53%) – Höskuldur Gunnlaugsson (51%). Næstur inn er leikjahæsti leikmaður Breiðabliks frá upphafi, Andri Rafn Yeoman (50%).

Sagan & Tölfræði

FH er eitt aðeins þriggja liða sem Breiðablik hefur mætt oftar en í 130 mótsleikjum. Hin liðin eru Keflavík, ÍA og ÍBH/KRH. FH og Haukar spiluðu undir því samheiti í Litla bikarnum fyrstu árin, en Litla bikarkeppnin var æfingarmót fyrir lið á Suðvesturhorninu frá 1961 til 1995. Keppnin var stofnuð að frumkvæði Alberts Guðmundssonar til að jafna stöðu liða utan höfuðborgarinnar sem tóku ekki þátt í Reykjavíkurmótinu. Mótið var svo lagt niður þegar Deildarbikarinn var stofnaður árið 1996. Nánar hér. 

Allir mótsleikir

Í 133 innbyrðis mótsleikjum liðanna frá upphafi, fyrst 1964, leiðir  FH með 59 sigra gegn 48 – jafnteflin eru 26.

Allir í efstu deild

Í 66 innbyrðis leikjum liðanna í A-deild frá 1976 leiðir Fimaleikafélagið með sem nemur einum sigri.

Efsta deild í Hafnarfirði

Í 33 leikum í A-deild í Hafnafirði frá 1976 er tölfræðin jöfn. Sigrar FH eru 12 gegn 11 sigrum Blika – jafnteflin eru 10. 

2026 - Blikar 20 ár samfellt í efstu deild

Breiðablik spilaði fyrst KSÍ mótsleik í 2.deild árið 1957. Breiðablik vann sig fyrst upp í efstu deild (1.deild) eftir yfirburðatímabil í 2.deildinni árið 1970. Frá 1971 hefur Blikaliðið leikið 40 tímabil, af 55 mögulegum, í efstu deild þar af samfellt 20 ár í röð eftir sannfærandi sigur í næst efstu deild árið 2005. 

Í 44 leikjum í A-deild 2006-2026 hefur FH yfirhöndina með 19 sigra gegn 13 sigrum Blika - jafnteflin eru 12.

Í 22 leikjum í A-deild 2006-2026 í Krikanum hefur FH yfirhöndina með 9 sigra gegn 4 sigrum Blika - jafteflin eru 9.

Síðusti 5 leikir liðanna í Bestu í Krikanum 

J
FH
1 1
Breiðablik
A-deild 24. umferð - Efri hluti Kaplakrikavöllur 27.09.2025
1
1
8
T
FH
2 0
Breiðablik
A-deild 8. umferð Kaplakrikavöllur 25.05.2025
1
10
S
FH
0 1
Breiðablik
A-deild 24. umferð - Efri hluti Kaplakrikavöllur 29.09.2024
11
2
10
T
FH
1 0
Breiðablik
A-deild 12. umferð Kaplakrikavöllur 28.06.2024
1
9
J
FH
2 2
Breiðablik
A-deild 11. umferð Kaplakrikavöllur 10.06.2023
1
11

Hópurinn

Í okkar hópi er það Kristinn Steindórsson sem spilað hefur með FH. Og í fyrra lék Dagur Örn Fjeldsted sem lánsmaður hjá FH. 

Hjá FH er Tómas Orri Róbertsson uppalinn Bliki.

Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins gegn FH, Friðdóra Kristinsdóttir, er fædd á Höfn 1973, foreldrar mínir eru Kristín Auður Gunnardóttir og Kristinn Guðmundsson, sjómaður og göngugarpur með meiru. Ég ólst upp á Höfn meðal tveggja systkina; Lúðvíks (f.1970) og Oddnýjar (f.1977), ég stundaði þar allar þær íþróttir sem í boði voru hverju sinni eins og fótbolta, handbolta, frjálsar íþróttir og körfubolta. Ég æfði fótbolta með strákunum til að byrja með, þar sem engar stelpur voru að æfa á þeim tíma. Ég man eftir því svo seinna meir þegar ég fékk að ráða hvort ég  myndi keppa með strákunum eða stelpunum þegar var farið austur á Breiðdalsvík að keppa. Ég valdi frekar vini mína sem voru strákarnir frekar en að vera með stelpunum sem voru um 6 árum eldri en ég, ætli ég hafi ekki verið svona um 10 ára. 

Mín fyrsta tenging við Breiðablik er þegar ég var sennilega um 17 ára og fékk að mæta á nokkrar æfingar með Breiðablik með tilstuðlan stór Blikanum henni Rósu Valdimars en við Rósa spiluðum saman með  Sindra á Höfn í mörg ár. Þetta var á þeim árum þegar voru kvennalið nánast á hverjum stað á Austurlandi, frá Vopnafirði til Hornafjarðar, Einherji Vopnafirði, Þróttur Neskaupsstað, Valur Reyðarfirði, Austri Eskifirði, Höttur Egilsstöðum, Leiknir Fáskrúðsfirði og Súlan Stöðvafirði. Ég get reyndar líka státað af því að hafa keppt undir merkjum Breiðabliks í handbolta árið 1998, þótt það hafi verið í deild utan Íslandsmótsins

Ég er ein af mörgum Kópavogsbúum sem verða Blikar í gegnum börnin sín en ég flutti ásamt eiginmanni mínum honum Erni Ásgeirssyni og dóttur okkar Eydísi Rún í Hlíðarhjallan árið 2002 og búum við þar enn.

Elsta dóttir okkar, Eydís (f.1998) æfði frjálsar með Breiðablik í tæpt ár sennilega í kringum 2004 en það var svo þegar tvíburastelpurnar okkar, þær Kristín Sara og Berglind Bára kynntust Edith Kristínu Kristjánsdóttur í Álfhólsskóla að við áttuðum við okkur à því að við værum í Blikahverfi en ekki HK. Stóra HK skiltið við Digranes íþróttahúsið var að rugla okkur en það var á þessum tíma sem skiptingin var ekki svo skýr í bæjarfélaginu. Haustið 2015 skiptu stelpurnar svo úr HK yfir í Breiðablik og stór Blikinn hún Ída (Sigrún Óttarsdóttir), mamma Edithar, kynnti okkur fyrir félaginu og fljótlega var ég orðin umsjónarmaður flokksins hjá stelpunum ásamt Ídu og öðru góðu fólki. Ég var umsjónarmaður alveg inn í 3. fl. og var einnig í vallarsjoppunefndinni en það er virkilega gefandi að vera umsjónarmaður. Þarna kynnist maður mörgum foreldrum og ekki síst var dýrmætt að kynnast æfingafélögum barnanna svona vel, ég mæli virkilega með því að bjóða sig fram í umsjónarmannahlutverk eða annað sjálfboðastarf innan félagsins. Ég lét ekki staðar numið við sjálfboðavinnu sem umsjónarmaður flokksins og vallarsjoppu því Ída bað mig um að sjá um Símamótsbæklinginn árið 2020, vegna misskilnings náði ég að þrefalda tekjurnar fyrsta árið og stækka bæklinginn um 25%, keppnisskapið kemur víða fram í manni.  Ída hafði sent mér sölutölur samanlagt síðustu þriggja ára og ég hélt að þetta væri bara eitt ár og ætlaði sko ekki að fara að selja færri auglýsingar en árinu áður og skellti því í túrbó gír og heyrði i kunningjum út um allan bæ og niðurstaðan var því þreföldun á tekjum.  2021 var mér svo boðið að taka að mér starf Rekstrarstjóra fasteigna hjá Breiðablik og síðar starf Markaðsstjóra. Þessi fjögur ár hjá Breiðablik voru erilsöm, lærdómsrík og einstaklega gefandi. Þar kynntist ég frábæru fólki, starfsfólki, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum, sem var tilbúið að leggja mikið á sig fyrir félagið. Nándin við iðkendurna og fjölskyldur þeirra var ekki síður dýrmæt; að fá að fylgjast með krökkunum dafna, eflast og njóta sín í íþróttunum sínum.

Myndir f.v.: Ída, Friðdóra og Ásgeir Þór á Akureyri 2018, Kristín Sara, Örn og Berglind Bára á Símamóti 2017, Kristín, Edith og Berglind á Goðamóti 2019.

Mín saga hjá Breiðabliki hófst í gegnum börnin mín, eins og hjá svo mörgum öðrum, en áður en ég vissi af var félagið orðið stór hluti af mínu eigin lífi. Ég hvet alla sem langar að leggja sitt af mörkum til að taka skrefið og bjóða sig fram. Verkefnin eru fjölbreytt, stór og smá, og það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Íþróttafélag er nefnilega ekki bara merkið, mannvirkin eða liðin sem keppa, það er fólkið sem mætir, tekur þátt og lætur hlutina gerast. Án þessa fólks er ekkert félag.

Friðdóra Kristinsdóttir - Hvernig fer leikurinn?

FH hefur ekki tapað leik síðan í maí og Kaplakriki er aldrei auðveldur útivöllur. Fyrri leikur liðanna í Kópavogi endaði með jafntefli og ég á von á öðrum jöfnum og spennandi leik. FH situr í fallsæti og verður því með bakið upp við vegg, þannig að það verður ekkert gefið eftir þar á bæ. Á sama tíma þarf Breiðablik á stigunum að halda í baráttunni ofarlega í deildinni.

Mér finnst Blikar eiga töluvert meiri gæði fram á við, sérstaklega ef þeir leikmenn sem hafa verið tæpir verða klárir. Þeir hafa líka verið á góðri siglingu síðan í júní og aðeins tapað einum leik á þeim tíma.

Ég held að fyrrum Blikinn Tómas Orri Róbertsson skori fyrir FH, en Blikar svari með þremur mörkum og taki stigin með sér í Kópavoginn. Ég spái því að Gabríel Snær og Anton Logi verði á meðal markaskorara, en þriðja markið... þar læt ég örlögin ráða.

Spáin mín: FH 2-3 Breiðablik.

Áfram Breiðablik!

SpáBlikinn Friðdóra að fagna Íslandsmeistaratitli í Víkinni 2024 (Mynd: Jón Gautur) 

Dagskrá

Miðasala á leikinn er á Stubb. 

Flautað verður til leiks á Kaplakrikavelli mánudaginn 20. júlí kl.19:15! 

Áfram Blikar – alla leið!

/PÓÁ

Síðasta heimsón okkar í Krikann endaði með 1:1 jafntefli.