Elfar Freyr með nýjan 3 ára samning
05.05.2015Miðvörðurinn sterki Elfar Freyr Helgason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.
Elfar Freyr sem verður 26 ára á þessu ári hefur leikið 136 leiki með meistaraflokki Breiðabliks og skorað í þeim 7 mörk. Hann lék um tíma erlendis með AEK í Grikklandi og Stabæk í Noregi. Elfar Freyr á þar að auki að baki 6 leiki með U-21 árs liði Ísland og einn A-landsleik.
Það þarf vart að taka fram hve þessi áfangi er mikilvægur fyrir Blikaliðið. Elfar Freyr er geysilega vinnusamur og sterkur miðvörður sem gefur alltaf 110% í alla leiki.
Blikar.is fagnar þessum tíðindum og vonar að þetta verði upphafið að nýjum bikarkafla í sögu Blikaliðsins enda var Elfar Freyr lykilmaður í Bikarmeistaraliði Blika árið 2009 og Íslandsmeistaraliðinu 2010.
-AP