Jordan Halsman til liðs við Blika
27.01.2014
Knattspyrnudeild Breiðabliks og hefur náð samkomulagi við skoska vinstri bakvörðinn Jordan Halsman um að hann leiki með Breiðabliksliðinu út þessa leiktíð.
Halsman lék með Fram seinasta sumar og spilaði 25 leiki í deild og bikar. Hann átti stóran þátt í því að Fram varð bikarmeistari.