-
Ný stjórn knattspyrnudeildar. Aftari röð f.v: Flosi Eiríksson, Lilja Víglundsdóttir, Snorri Arnar Viðarsson, Helgi Aðalsteinsson. Fremri röð f.v: Gunnar Þorvarðarson, Vilhelm Þorsteinsson, Ólafur Hrafn Ólafsson, Halldór Arnarson.
-
Sigurður Hlíðar Rúnarsson og Eysteinn Pétur Lárusson færðu fráfarandi formanni Borghildi Sigurðardóttur blóm.
Ólafur Hrafn kosinn formaður
09.02.2017Aðalfundur knattspyrnudeildar Breiðabliks var haldinn í glersalnum í stúkunni á Kópavogsvelli. Eins og hefur komið fram gaf Borghildur Sigurðardóttir ekki kost á sér aftur sem formaður og var Ólafur Hrafn Ólafsson kosinn formaður í hennar stað. Rekstur deildarinnar heldur áfram að vaxa en var réttu megin við strikið eins og undanfarin ár.
Aðrir í stjórn voru kosnir Vilhelm Þorsteinsson, Gunnar Þorvarðarson, Snorri Arnar Viðarsson, Halldór Arnarson, Flosi Eiríksson og Lilja Víglundsdóttir. Þau þrjú síðastnefndu eru nýliðar í stjórn og einnig Helgi Aðalsteinsson sem var kjörinn í varastjórn.
Fjörugar umræður voru á fundinum um skort á aðstöðu til vetraræfinga. Sífelt fjölgar iðkendum deildarinnar og hafa stjórnendur deildarinnar íhugað að takmarka þann fjölda sem æfir. Til að mæta þessum aukna fjölda hefur deildin meðal annars leigt tíma á ÍRvellinum með ærnum kostnaði.
Í lokin voru Borghildi færð blóm og henni þökkuð frábær störf fyrir knattspyrnudeildina undanfarin 10 ár.
-AP