BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Pepsi MAX 2020: Breiðablik - Fjölnir

28.06.2020 image

Pepsi MAX deild karla 2020. Breiðablik – Fjölnir á Kópavogsvelli mánudagskvöld kl.19:15.

Eftir eins árs fjarveru eru Fjölnismenn aftur komnir upp í efstu deild.

Staðan liðanna í Pepsi Max deildinni eftir 2 umferðir. Blikar hafa unnið báða sína leiki, gegn Gróttu og Fylki, en Fjölnir gerði jafntefli við Reykjavíkur Víkinga og tapaði gegn Stjörnunni.

image

Leikurinn á Kópavogsvelli á mánudagskvöld er mjög mikilvægur fyrir bæði lið. Fjölnismenn þurfa á stigum að halda til að lyfta sér frá botninum en Blikaliðið þarf að vinna til að halda í við FH og og Stjörnuna sem eru með sama stigafjölda og við eftir 2 umferðir.

Tölfræði

Heilt yfir hafa liðin spilað 23 mótsleik frá upphafi. Breiðablik leiðir þar með 16 sigurleiki. Jafnteflin eru 5 og Fjölnismenn hafa unnið 2 leiki. Nánar hér.

Síðustu 5 í efstu deild

Sagan fellur með Blikum því í 12 efstu deildar viðureignum liðanna leiða Blikar með 7 sigra gegn 2 sigrum Fjölnismanna.

Síðustu 5 leikir í efstu á Kópavogsvelli (hægt að smella á + eða #)

Leikurinn

Það verður börger á grilli og heitt á könnunni. Sparkvellir á sínum stað fyrir krakkana.

Selt verður í 2 hólf í stúkunni og verður sér inngangur fyrir hvert hólf.

Hólf A: Stuðningsmenn Breiðabliks
Hólf B: Suðningsmenn Fjölnis

Einnig er selt í hólf C (gamla stukan og grasbrekkan) en þar gildir 2 metra reglan (sjá mynd).

Miðar seldir í gegnum miðappið Stubbur. Appið má nálgast hér: Stubbur

image

Sjáumst öll á Kópavogvelli á mánudagskvöld og hvetjum okkar menn til sigurs.

Leikurinn hefst kl.19:15!

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka